Morgunblaðið - 19.04.2009, Page 13

Morgunblaðið - 19.04.2009, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 „Ég held að það hafi kannski aldrei verið eins auðvelt að svara þessari spurningu og núna,“ segir Aðalsteinn Baldursson, formaður Fram- sýnar stéttarfélags á Húsa- vík. „Við erum nýbúin að halda fjölmennan aðalfund, þar sem mætti þverskurðurinn af fólki, og það mátti glöggt finna að málefni fjölskyldn- anna eru brýnust. Flestir eru að kikna undan mikilli skuldabyrði og koma þarf hjólum atvinnu- lífsins í gang. Í því sambandi er áríðandi að bankakerfið fari aftur að virka. Það er algjörlega frosið og það gerir mönnum erfitt fyrir sem annars væru tilbúnir í framkvæmdir, en fá engin lán og enga fyrirgreiðslu.“ Hann segir tvennt brenna sérstaklega á Hús- víkingum, hvernig opinberri þjónustu muni reiða af og hvort af álversframkvæmdum verði. „Það stóð til að gera breytingar á heilbrigðiskerfinu með því að færa yfirstjórnina til Akureyrar. Það átti að færa ríkinu sparnað, en það gleymdist að það er ekki sparnaður, því kostnaðurinn lendir á fólki sem þarf að keyra norður til Akureyrar.“ Þurfum að fá fjármagn inn í landið Húsavík Aðalsteinn Baldursson – En það stóð ekki til að flytja þjónustuna, heldur yfirstjórnina. „Það átti að endurskipuleggja heilbrigðisþjón- ustuna á öllu svæðinu og þegar ég spurði for- stjórann hér, þá vissi hann ekki hvernig átti að útfæra það. En það fylgdi með aukin hagræðing. Svo er það alvarlegt mál að landsbyggðin er að verða höfuðlaus, yfirstjórnin færist annað og við það tapast góðu störfin úr byggðalaginu.“ Aðalsteinn er staddur á Narfastöðum í Reykjadal þegar samtalið fer fram og segir nóg að líta þar í kringum sig til að rökstyðja mál sitt. „Hér sé ég til dæmis tvö öflug fyrirtæki, Lauga- fisk og Fosshótel, yfirstjórnir beggja fyrirtækj- anna eru fyrir sunnan.“ Hvað varðar álver á Bakka segir Aðalsteinn að Húsvíkingar séu spenntir fyrir því. „Víst erum við hluti af umheiminum og ljóst að það sem gerist í Bandaríkjunum hefur áhrif hér, en þegar vorar og ástandið lagast í fjár- málaheiminum er það vilji mikils meirihluta Hús- víkinga að hér rísi álver. Ég held að við þurfum á því að halda að fá fjármagn inn í landið til að endurreisa atvinnulífið. Margfeldisáhrifin eru gíf- urleg, því það skapast störf fyrir fólk með alls- kyns bakgrunn, svo sem hagfræðinga, verkfræð- inga, lækna, verkamenn og bílstjóra. Svo hefur verið ráðist í gríðarlegar fjárfestingar í leit að orku, sem menn hafa fundið og við verðum að fá arð út úr því.“ „Góð spurning,“ segir Kristján Leósson, vísindamaður við Háskóla Íslands. „Brýnast finnst mér að fólk nái meiri fókus. Vandamálið er að það er svo mikið suð – það eru all- ir uppteknir af sínum hug- myndum um hvernig eigi að sigrast á kreppunni. Ég held að þetta eigi að snúast um að ná meiri sátt og sameiginlegri stefnu. Ég hef minni áhyggjur af því hver hún verður – bara að það sé stefna.“ Kristján segir að til framtíðar litið felist tækifæri í því að horfa inn á við og treysta innviði sam- félagsins, fremur en að eyða öllu púðrinu í að sækja út fyrir landsteinana. „Útrásin hefur sogað til sín mikið af góðu vinnuafli úr háskólunum og öðrum greinum. Nú gefst tækifæri til að horfa inn á við.“ – Hvernig á að standa að nýsköpun? „Það er aldrei auðvelt að ætla sér að sjá fyrir nýsköpun eða stýra henni. Það þarf bara að tryggja að innviðirnir séu í lagi og að það séu ekki hömlur á fólki – það sé ekki stöðvað í því að reyna að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Ég held að það sé ekki rétt að ætla sér að sjá framtíðina fyrir og pikka út sérstök tækifæri. Þau munu spretta af sjálfu sér ef almenn skilyrði eru fyrir hendi.“ Svo heldur hann áfram þar sem frá var horfið, að flytja gúmmíhanska og hárnet á milli húsa. „Það er þetta sem vísindamenn gera,“ segir hann og skellihlær. Reykjavík Kristján Leósson Nýsköpun sprett- ur af sjálfu sér „Lýðræðið í landinu!“ segir Áslaug Ingibjörg Kristjáns- dóttir, skrifstofustjóri hjá Marz Sjávarafurðum ehf., í Stykkishólmi. „Að það sé hlustað á fólk en ekki ruðst áfram og ekki einu sinni sagt afsakið ef ekki fer vel, eða að nokkur geti hugsað sér að axla ábyrgð. Mér er eiginlega orðið alveg sama hver það verður, bara ef það verður komið fram við okkur eins og manneskjur. Eitt verði yfir alla látið ganga. Það er ekkert réttlæti í því til dæmis, að allt það fólk sem geymdi sparnað sinn í hlutabréfum í bankanum, og var fullvissað um það af stjórn- endum og starfsmönnum að þetta væri algjörlega traust langtímafjárfesting, sé allt í einu á núlli. Hið sama á auðvitað við um sparnað hjá fjöldanum öll- um af fólki. Fólk hefur samviskusamlega lagt til hliðar til að eiga varasjóð þegar það hættir að vinna eða ef áföll dynja yfir. Þetta fólk grípur nú í tómt. Það á ekki að hygla einum umfram annan í þessu frekar en öðru en nauðsynlegt er að mínu mati að rétta hlut þessa fólk með einhverjum hætti. Við þurfum að gera þetta þannig að við get- um verið sæl og glöð í sinni. Við erum öll mann- eskjur og eigum öll sama rétt á að lifa í þessu landi og að tryggt sé að við getum lifað sómasamlega.“ Stykkishólmur Áslaug Ingibjörg Kristjánsdóttir Eitt verði látið yfir alla ganga „Einhvern veginn finnst mér að kosningarnar ættu að snú- ast um það að finna leiðir til að vinna okkur út úr þeirri stöðu sem við erum í núna,“ segir Lýður Pálsson, safnstjóri á Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka. „En mér finnst mjög lítið talað um kosning- arnar að þessu sinni. Það er ekki eins mikill spenningur og verið hefur. Og þeir sem setjast á þing eru ekkert öfundsverðir af þeirri glímu sem framundan er.“ Lýður segir marga uggandi um hvort þeir haldi húsi sínu og atvinnu. „Ætti það ekki að vera keppikefli stjórnmálamanna að sýna fram á að þeim sé treystandi til að vinna að þessum mik- ilvægu þáttum hverrar fjölskyldu, húsnæði og at- vinnu, í ljósi kreppunnar sem er ekki bara hér á landi heldur í öllum heiminum.“ Varðandi Suðurkjördæmi segir hann sam- göngur og atvinnumál ofarlega á baugi. „Ég geri ráð fyrir að stór hluti kjósenda í þessu kjördæmi vilji hafa góða og breiða vegi til aðalatvinnusvæð- isins, sem er Faxaflóasvæðið. Sömuleiðis hef ég orðið var við að það er meiri áhersla á atvinnu- málin, að efla landbúnaðinn og hvernig sjávar- útvegi sé best fyrir komið. Rætt hefur verið um skuldsetningu sjávarútvegsins síðustu mánuði og sumir hverjir eru uggandi um hag þeirrar at- vinnugreinar. Svo er, þó að umdeilt sé, vissulega áhugi á auknum stóriðnaði, til dæmis í Þorláks- höfn.“ Út frá sínu starfi sem safnstjóri segist Lýður verða var við að menn telji mikilvægt á kreppu- tímum að efla menningu, söfnin og menntunina. „En menn vita ekkert um það hvernig málin þróast í safnarekstri. Það er þessi óvissa um framtíðina sem plagar marga.“ Uggandi um húsin og atvinnuna Eyrarbakki Lýður Pálsson „Ég vil ekki sjá það að ganga í ESB,“ segir Unnur Ingólfs- dóttir, Nýja-Sjálandi í Gríms- ey. „Ég vil ekki að allar ákvarð- anir verði teknar í Brussel. Við erum búin að hafa of mikið fyrir því að verða sjálfstæð þjóð, Íslendingar. Ég vil bara halda því. Ég skil eiginlega ekki hvernig þeir ætla að fara að því að þjóðnýta kvótann og af hverju þeir vilja afsala for- ræðinu yfir fiskimiðunum til Brussel.“ Unnur er um borð í ferjunni á leið í land úr Vil ekki ganga í ESB Grímsey Unnur Ingólfsdóttir Grímsey þegar samtalið á sér stað. Og það stend- ur til að kjósa um það í kosningunum eftir viku hvort Grímsey sameinast Akureyri. „Ég tel okkur vera mjög heppin, því við þurfum ekki að samein- ast út af því að við höfum ekki efni á öðru – hrepp- urinn er ekkert á hausnum. En ég veit ekki hvernig kosningin fer. Af hverju ættu Akureyringar að sam- einast okkur? Ef ég á að segja þér eins og er, þá er mér alveg sama, ég sé ekkert nema kosti hvernig sem fer.“ Annars eru „eins og alltaf“ ágætar horfur í at- vinnumálum í Grímsey. „Það er mjög jákvætt að ferjan kemur með ferðamenn,“ segir Unnur, sem rekur veitingastaðinn Kríuna, þar sem sérrétturinn er svartfugl og nýveiddur fiskur. „Þar er nóg að gera yfir sumartímann og svo erum við líka með gistiheimilið Bása við heimskautsbaug!“ „Það sem mér finnst alvarlegast eru atvinnumálin,“ segir Hjalti Egilsson, bóndi á Seljavöllum í Austur- Skaftafellssýslu. „Það er hræðilegt til þess að hugsa hversu margir eru að missa vinnuna og um öll fyr- irtækin sem eiga í erfiðleikum. Það þarf fyrst og fremst að ná tökum á þessum málum. Við þurfum að styðja við atvinnulífið, þannig að hjólin fari að snúast og við förum að framleiða vörur og kaupa vörur.“ – Hvað um bændur? „Auðvitað hefur þyngt verulega að hjá þeim eins og öðrum vegna utanaðkomandi hækkana. En ég held að jákvæði punkturinn sé sá að nú sjá menn virkilega hversu mikil þörf er á því að vera með mat- vælaframleiðslu í landinu sjálfu. Ef menn ætla að halda í það að vera sjálfstæð þjóð, þá hljóta menn að vilja geta framleitt ofan í sig mat. En það sem gerir okkur erfitt bændum eru þessir háu vextir og hrikalegu lánakjör sem menn hafa lent í. Að öðru leyti held ég að við værum ágætlega settir.“ – Hver er þá afstaða þín til ESB? „Ég tel að það væri hreinlega verið að leggja nið- ur sjálfstæði landsins ef við færum inn í ESB. Það yrði mjög alvarlegt mál fyrir þetta land, Ísland, ef við gengjum inn í þann gjörning allan. Það yrði nátt- úrlega enginn landbúnaður á Íslandi, hann myndi leggjast af. Það er nógu erfitt fyrir hin norrænu rík- in, hvað þá okkur. Þá yrðum við eins og ein gata í Evrópu. Ég held að þetta sé spurning um sjálfstæði þjóðarinnar fyrst og fremst og okkar eigin ákvörð- unartöku í okkar eigin lífi.“ Værum að leggja niður sjálfstæði landsins „Alþingiskosningar eiga bara að snúast um réttlæti í garð almennings eftir allt sem á undan er gengið, að það sé tekið almennilega á málum og réttum einstaklingum, en al- menningur ekki látinn borga brúsann,“ segir Margrét Guð- jónsdóttir, þjóðfræðingur á Hvassafelli. „Það er manni efst í huga, hversu sárt er að horfa á al- menning missa vinnuna út af gjörðum örfárra manna. Og maður vill fyrst og fremst að tekið sé á þeim málum. Annars er ég hrædd um að það myndist gjá í samfélaginu til framtíðar sem erfitt verður að brúa.“ Margrét Guðjónsdóttir Kosningarnar snúast um réttlæti „Þarna hittirðu nú á réttu manneskjuna,“ segir Ólína Jónsdóttir hressilega, en hún rekur heimagistingu í Lækn- ishúsinu í Flatey í Breiðafirði. „Ég ætla nú heldur að leyfa þér að tala við bónda minn. Ég er voðalega lítil kosningamann- eskja og er nú eiginlega búin að fá upp í kok í bili. Ég tala við þig þegar þú kemur hingað.“ Og með það sama kemur Hafsteinn Guðmundsson í símann. „Kosningarnar ættu náttúrlega að snúast svolítið um heiðarleika og örlítið um að það væri hægt að trúa einhverju eðli- legu af því sem haldið er fram. Svo finnst mér að pólitíkin eigi ekki að vera trúmál, eins og mér finnst hún vera í stórum dráttum.“ – Er eitthvað sérstakt sem brennur á þér? „Við höfum búið hér í Flatey í Breiðafirði í þúsund ár. Og alla tíð þar til núverandi fiskveiðistefnu var komið á fót hafa menn haft sínar tekjur að stærst- um hluta af fiskveiðum. Með þessari ráðstöfun sem þarna var gerð var þessu kippt alveg af. Þar þyrfti verulega að lagfæra. Mér finnst líka, að ef að pólitík- usar eru með það á dagskrá, að leggja þessar dreifðu byggðir í eyði, þá eigi þeir að gera það á heiðarlegan hátt, en ekki að kvelja íbúana í burtu. Það er það sem mér finnst hafa verið gert.“ – Fleira? „Er þetta ekki sæmilegt til að byrja með. Ég held að það verði margir óánægðir með þetta hvort sem er – eða ég vona það!“ Pólitík á ekki að vera trúmál Flatey Hafsteinn Guðmundsson „Ætli það séu ekki Evrópu- málin og skattamálin,“ segir Þorbjörn Víglundsson í Vest- mannaeyjum, sem er í námi í Stýrimannaskólanum og titlar sig skipherra í símaskránni. „Það er nú bara í gamni,“ seg- ir hann og hlær. „Þetta kom til af því, að við brugðum nokkrir á leik sem erum að læra til stýrimanns og skráðum okkur skipherra í símaskránni. Það verður vonandi sagt einhvern tímann.“ Þorbjörn er alfarið á móti aðild Íslands að ESB. „Ég held að hagsmunum okkar sé betur borgið ut- an ESB. Fyrir utan að ég vinn sem sjómaður og hef áhyggjur af því að Evrópubáknið éti upp allar afla- heimildirnar. Að minnsta kosti varð einn af hverj- um fjórum sjómönnum í Skotlandi atvinnulaus eft- ir inngönguna í ESB. Það er nokkuð sem ég vil ekki sjá hér á landi. Ég vil að við höfum fulla stjórn yfir okkar auðlindum sjálf.“ – Hvað um skattamálin? „Mér líst bara ekkert á þessar skattahækkanir og allt þetta tal um hátekjuskatt. Hann bitnar verst á þeim sem vinna mest. Þannig var þetta áður en hann var afnuminn. Þá var mikið um að sjómenn lentu í þessu; sjómenn sem reru út í eitt og voru að reyna að hækka við sig launin. Svo vita allir á hverja þessi eignaskattur leggst, það er fólkið sem á skuldlausar eignir – eldri borgarar.“ Og hann er ósáttur við þær breytingar á fisk- veiðikerfinu sem boðaðar hafa verið. „Mér líst ekk- ert á þessa fyrningarleið. Ég veit hvernig færi fyrir þessum fyrirtækjum hérna í Eyjum. Þau hafa látið óháða aðila reikna það út fyrir sig að þau yrðu gjaldþrota við þetta á örfáum árum.“ Bitnar verst á þeim sem vinna mest Vestmannaeyjar Þorbjörn Víglundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.