Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 17

Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 Við erum auðvitað ekki sátt, hvorki við þetta mál né að tekið hafi verið við svona háum styrkjum, en við breytum ekki í dag því sem gerðist 2006. Þórlindur Kjartansson, for- maður SUS, um styrkjamál Sjálfstæðisflokks- ins. Ég segi mútur, og stjórnmálamenn vita upp á sig skömmina. Þegar um óeðlilega háar fjárhæðir er að ræða í styrkjum til stjórn- málaflokka eru það ekkert annað en mútur. Grétar Mar Jónsson, Frjálslynda flokknum. Það er ekki við hæfi að þingmenn beri svona hver á annan sem staðlausa stafi. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, um umæli Grétars Mars. Hugsunin er sú að við ætlum að slökkva á tölvunum í fimm daga og fara og fá náttúr- una beint í æð. Felix Bergsson, sem ásamt Baldri Þórhallssyni stýrir ungmennaferðinni Frí frá Facebook á vegum Ferðafélags Íslands á Strandirnar í sumar. Ef þetta væru úrslit kosninga þá væri þarna á ferðinni pólitískur jarðskjálfti. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórn- málafræði, um skoðanakönnun Capacent Gall- up þar sem Sjálfstæðisflokkurinn tapaði ríf- lega 14 prósentustiga fylgi miðað við niðurstöður síðustu alþingiskosninga. Ég er með mjög góða samvisku gagnvart þessu máli og hef ekkert að fela, og ég vil því að þetta embætti fari yfir málið. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borg- arstjóri, brást við umræðu um styrkveitingu til Sjálfstæðisflokksins með því að óska eftir því að Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar fari yfir samningaferli Orkuveitunnar og Geysis Green Energy um sameiningu félag- anna. Ég er sleginn yfir því að stjórnvöld ætli að láta almenning blæða. Það er greinilegt að yfirvöld ætla að bjarga bönkunum og bakka þá upp í því að knésetja fólkið. Bubbi Morthens tónlistarmaður. Ef peningarnir fylgja sjúklingi er sú hætta fyrir hendi að fjárvana stofnun reyni að finna eitthvað að fólki sem í reynd er heilt heilsu. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, um svonefnt ávísanakerfi sem hann telur vara- samt. Ekki laust við að maður fengi dáldið hland fyrir hjartað þegar maður sá aðgerðirnar í gær. Að þarna kemur lögreglan með kú- bein og keðjusög og í rauninni mylur húsið niður. Nikulási Úlfari Mássyni, forstöðumanni Húsa- friðunarnefndar ríkisins, blöskraði aðferð lög- reglu við að rýma húsið við Vatnsstíg 4. Það þarf að stöðva þetta spádómsniðurrif í miðborginni, því það hefur ekki leitt af sér neina endurnýjun, það eina sem hefur verið gert í gegnum allt þetta þensluskeið er að menn hafa braskað með reiti og sett hús í drabb. Snorri Freyr Hilmarsson, formaður Torfu- samtakanna, um ástandið í miðborginni. Það var eitt grátatriði og þá hugsaði ég um köttinn minn sem dó. Kåre Hedebrant, 13 ára leikari í sænskri hryllingsmynd. Fyrirtækin þurfa að geta valið sér stofur án þess að samkeppnisaðilar séu þar fyr- ir. Magnús Loftsson, framkvæmdastjóri Hvíta hússins, telur ólíklegt að stærri auglýs- ingastofur sameinist. Hvernig er líka hægt að segja að einhver sé barnalegur þegar hann vill berjast fyrir mannréttindum fólks og verja það gegn því sem alþjóðasamfélagið hefur umborið allt of lengi? Cindy Corrie, móðir Rachel Corrie, sem lést þegar hún varð undir jarðýtu ísraelska hers- ins. Rachel ætlaði að verja heimili palen- stínskrar fjölskyldu. Við höfum sagt að kvenfélögin hafi í gegnum tíðina bakað betra samfélag, enda bakstur og kökusala oft meðal verk- efna. Hildur Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Kvenfélagasambands Íslands. Ummæli ’ Morgunblaðið/Heiddi „Koma með lausnir varðandi erlend húsnæðislán.“ Kona, 26 ára. Greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána – langtímalausn sem minnkar greiðslubyrði heimilanna Greiðslujöfnun dregur úr óvissu Jafnari greiðslubyrði Lánstími lengist Jafnari greiðslubyrði Lánstími styttist aftur Styrking styttir lánstímann Sveiflur í greiðslubyrði Ójöfn greiðslubyrði skapar óvissu Kostir • Jafnari greiðslubyrði til frambúðar. • Lægri greiðslubyrði miðað við núverandi afborganir, sem hafa hækkað vegna lægra gengis íslensku krónunnar. • Greiðslubyrði gæti lækkað á milli næstu mánaða gangi spár um þróun greiðslujöfnunarvísitölu eftir. • Styrkist gengi íslensku krónunnar greiðist höfuðstóll lánsins hraðar niður en upprunalega var gert ráð fyrir. • Hægt er að segja greiðslujöfnun upp hvenær sem er. Ókostir • Möguleiki á að lán lengist en þó aldrei lengur en sem nemur helmingi af upprunalegum lánstíma. • Gengisáhætta. Höfuðstóll lánsins greiðist hægar niður (a.m.k. til að byrja með) og gæti því hækkað meira en ella veikist gengi krónunnar. • Vaxtaáhætta. Lengist lánstíminn felur það í sér hærri vaxtakostnað en ella, auk þess gætu breytilegir vextir lánsins hækkað á tímabilinu. • Styrking krónunnar skilar sér ekki í lægri greiðslubyrði. Þess í stað styttist lánstíminn. Fáðu nánari upplýsingar um greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána hjá ráðgjöfum í næsta útibúi eða á islandsbanki.is. Dæmi um lækkun á greiðslubyrði* Afborgun af 25 milljóna króna láni 1. mars 120.000 kr. Afborgun 1. apríl eftir greiðslujöfnun 97.000 kr. * Dæmi m.v. erlent húsnæðislán í 5 myntum tekið þann 1.12.2005 til 40 ára með 2% vaxtaálagi og mánaðarlegum afborgunum. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 9 -0 4 1 6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.