Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 26

Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 26
26 Tíska MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is F æreyska tískumerkið Guð- run & Guðrun er eitt þeirra sem tóku þátt í Nor- ræna tískutvíæringnum. Hægt var að líta þessa fær- eysku hönnun augum í Norræna hús- inu fyrr í vor en aðdáendur danskra sjónvarpsþátta hafa líka séð peysu frá Guðrun & Guðrun á aðalsögu- hetju Forbrydelsen, sem fór varla úr færeysku lopapeysunni sinni. Tvær konur standa á bakvið tísku- merkið, nöfnurnar Guðrun Ludvig hönnuður og Guðrun Rogvadottir framkvæmdastjóri. Þær vinna eftir hugmynd sem þær kalla „slow cloth- ing“, einhvers konar hæglát tíska. Hugmyndin er byggð á „slow food“ sem hefur verið nefnt „rókostur“ á íslensku. Samnefnd samtök voru stofnuð til höfuðs skyndibitamenning- unni og til verndar staðbundnum mat og matreiðsluvenjum og þeim dýrum og plöntum sem liggja þeim til grundvallar. Sömu gildi eru að baki Guðrun & Guðrun. Stór hluti fatn- aðarins er handprjónaður og teng- ingin við ræturnar í Færeyjum er áberandi. Guðrunarnar tvær segja það gott að fara til meginlands Evrópu til þess að fá hugmyndir og viðbrögð en finnst það nauðsynlegt að fara aftur í rólegt umhverfi eyjanna, þar blómstri þær. Hönnuðurinn Guðrun Ludvig vísar stundum til málshátt- arins „Neyðin kennir naktri konu að spinna.“ Hún segir að hún notist við hefðbundin efni og innblástur vegna þess að þessir hlutir umkringi hana. Hún flýr ekki upprunann heldur not- færir sér hann. Náttúran og sí- breytilegt veður er innblástur hennar vegna þess að borgarumhverfið er ekki til staðar. Glamúrinn og glysið er víðsfjarri. Lífrænt, sjálfbært og ábyrgt Ennfremur eru fötin úr lífrænu efni. Vinsælustu peysurnar eru úr 100% ómeðhöndlaðri og ólitaðri fær- eyskri ull. Lögð er áhersla á í mark- aðsetningunni að færeyskar kindur séu meira eða minna uppi á fjöllum og éti þar gras, sem ekki er borið á. Fötin eru sjálfbær því ullin og mokkaskinnið sem notað er í vörur G&G er af kindum sem ræktaðar eru vegna kjötsins. Reksturinn er samfélagslega ábyrgur. Konur í Færeyjum og ennþá stærri hópur í Jórdaníu hand- prjónar fatnað fyrir fatamerkið. Guð- runarnar ítreka að þær þekki hverja einustu prjónakonu með nafni og að þær þekki stefnu annarra birgðasala sinna. Þeir eru allir frá löndum Evr- ópusambandsins og fylgja siða- og umhverfisreglum sambandsins. Síðast en ekki síst leggja stöll- urnar mikla áherslu á að þetta sé færeyskt fatamerki og gera mikið úr dulúð eyjanna. Þær eru greinilega stoltar af Fjáreyjunum sínum og gera mikið úr arfleifðinni og skapa sér þannig sérstöðu. Auk dömulínunnar Guðrun & Guð- run er líka til sérstök lína fyrir herramenn, G&G menn, og einnig fyrir börn, sem heitir Óvitar by G&G. Meðfylgjandi myndir eru allar af haust- og vetarlínunni 2009-10. Hæglát tíska Óvitar Þægilegur fatnaður fyrir litlu börnin, að sjálfsögðu úr ull. Fjáreyjar Sambandið við færeysku ullina sýnt á skýran hátt. Svalt Ullin getur sannarlega verið töff, hettan gerir gæfumuninn. Grænt og vænt Létt peysa úr komandi vetrarlínu. Náttúrubarn Tengingin við náttúruna er sterk hjá G&G. Fyrir karlmenn Guðrun & Guðrun eru líka með sérstaka herrafatalínu.‘‘STÓR HLUTI FATN-AÐARINS ER HAND-PRJÓNAÐUR OGTENGINGIN VIÐ RÆT- URNAR Í FÆREYJUM ER ÁBERANDI. Glæpsamlegt Peysa eins og sú sem var mikið á skjánum í Forbrydelsen. einfaldlega betri kostur laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is Lizard. Hitamælir. 13,5 x 6,5 cm. Ýmsir litir. 790,- Nýtt kortatímabil Sumarið nálgast!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.