Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 32

Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 32
32 Kvikmyndir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is S umarið teygir sífellt meira úr sér í báða enda. Það er gósentími kvik- myndanna, tími smellanna þegar ódýrar jafnt sem fokdýrar afþrey- ingarmyndir trylla stærsta mark- aðshópinn, unglingana, í bíóferðir. Við eigum von á mikilli spennu, brellumyndum, gamanmyndum, í stuttu máli, ósviknum dægrastyttingum, auðgleymdum og auðmeltum. Hér verður gerð grein fyrir þeim myndum sem vænlegastar þykja til að standa undir nafni sólarmánuðina. Frumsýningar í apríl: Observe and Report Leikstjóri: Jody Hill. Aðalleikarar: Seth Ro- gen, Anna Faris, Michael Pena, Ray Liotta. 86 mín. Svört grínmynd. Í Forest Ridge-verslanamiðstöðinni, heldur ör- yggisvörðurinn Ronnie (Rogen), uppi járnaga og hræðir líftóruna úr hjólabrettatöffurum, búða- þjófum og öðrum illa séðum gestum. Undir niðri langar hann þó mest af öllu í byssu og lög- reglumerki og fær tækifæri til hetjudáða þegar perri fer að bera sig í klasanum. Ef Ronnie grípur hann með trollið úti veit hann að lögregluskólinn opnar dyrnar og draumadísin Brandi, hjarta sitt. State of Play Leikstjóri: Kevin Macdonald. Aðalleikarar: Russell Crowe, Ben Affleck, Rachel McAdams, Robin Wright Penn, Jason Bateman, Jeff Dani- els, Helen Mirren. 115 mín. Spennumynd. Pólitískur þriller um Stephen Collins (Ben Af- fleck), spilltan og sleipan þingmann á hraðri upp- leið þegar ritarinn hans og viðhald finnst myrt. Þá kemur til kasta rannsóknarblaðamannsins McCaffrey (Crowe), og óbugandi ritstjóra hans (Mirren), sem vilja komast til botns í gruggugu málinu. Hópur frábærra leikara kemur við sögu og leikstjórinn er Kevin Macdonald (The Last King of Scotland). The Soloist Leikstjóri: Joe Wright. Aðalleikarar: Jamie Foxx, Robert Downey Jr., Catherine Keener. 110 mín. Drama. Eins og nafnið bendir til fjallar The Soloist um einleikara, fiðluleikarann Ayers (Foxx), fyrrver- andi heimsþekktan snilling sem nú spilar fyrir skiptimynt á götuhornum San Fransisco. Athygli blaðamannsins Lopez (Downey, Jr.,) er vakin og milli þeirra skapast vinátta sem leiðir til þess að Lopez reynir að koma Ayers aftur á sporið. Leik- stjórinn á m.a. að baki Atonement og Pride and Prejudice. Frumsýningar í maí: X-Men Origins: Wolverine Leikstjóri: Gavin Hood. Aðalleikarar: Hugh Jackman, Liev Schreiber, Ryan Reynolds, Tay- lor Kitsch, Will.i.am, Danny Huston, Dominic Monaghan. 120 mín. Brellur/framtíðartryllir. Í kjölfar þrennunnar vinsælu um teiknimynda- hetjurnar X-Men, kemur fyrsta framhalds- myndin sem á að fjalla um uppruna þeirra. Eins og nafnið bendir til er það Wolverine (Jackman, eða Jörfinn), sem ríður á vaðið og segir af því hvernig hann öðlaðist yfirskilvitlega krafta og ástamálum hans í ofbeldisfullri fortíð. Leikstjóri er Suður-Afríkubúinn Gavin Hood, sem vann til Óskarsverðlauna fyrir Tsotsi (2005), sem besta erlenda mynd ársins Star Trek Leikstjóri: J.J. Abrams. Aðalleikarar: John Cho, Ben Cross, Bruce Greenwood, Winona Ry- der, Eric Bana, Leonard Nimoy. 125 mín. Vísindaskáldskapur/ spennumynd. Frá leikstjóra og höfundi sjónvarpsþáttanna Lost kemur nýjasta myndin í einni langlífustu sjónvarpsþátta- og spennumyndaseríu samtím- ans, og ber einfaldlega nafn hennar: Star Trek. Þær hafa verið upp og ofan eins og önnur mann- anna verk, en aðdáendurnir jafnan skammt und- an. Fátt er vitað um nýjasta kaflann hvað inni- haldið snertir, en það mun vera búið að umbylta efninu og leikaravalið er nýtt af nálinni. Angels & Demons Leikstjóri: Ron Howard. Aðalleikarar: Tom Hanks, Ewan McGregor, Ayelet Zurer, Stellan Skarsgard, Pierfrancesco Favino, Armin Muell- er-Stahl. 140 mín. Spennumynd. Dan Brown, Howard, Hanks og flestir sem stóðu á bak við aðsóknarmyndina The Da Vinci Code, eru mættir með Engla & djöfla, sem er byggð á svipuðum grunni. Hanks leikur að nýju vísindamanninn Robert Langdon, sem lendir enn og aftur í útistöðum við kirkjunnar menn. Þau öfl sem standa á varðbergi í Englum & djöflum eru harðsnúin og víla ekki fyrir sér að reyna að koma söguhetju vorri fyrir kattarnef. Sem fyrr koma frumkristin, trúarleg tákn mikið við sögu. Terminator Salvation Leikstjóri: McG. Aðalleikarar: Christian Bale, Sam Worthington, Anton Yelchin. 130 mín. Vísindatryllir. Myndbálkurinn um The Terminator, telur þrjár myndir og á a.m.k. þriggja mynda framtíð fyrir höndum. Sú fjórða, sem kennd er við Sálu- hjálp, er með nýjan leikara, Bale, í hlutverki Johns Connor – sem Schwarzenegger mannaði óaðfinnanlega. Myndin gerist að loknum ragna- rökum árið 2018, dularfullur vígamaður, Marcus Wright (Worthington), verður á vegi Connors, sem verður að finna út í snarheitum hvort sá ókunnugi er sendur aftur úr framtíðinni eða hvort hann hefur skotið upp kollinum úr fortíð- inni. Þeir snúa bökum saman til að rannsaka hvað stjórnendur Skynets, sem öllu ræður, eru að bralla, miður gott. The Boat That Rocked Leikstjóri: Richard Curtis. Aðalleikarar: Phil- ip Seymour Hoffman, Bill Nighy, Emma Thomp- son, Rhys Iffans, Kenneth Branagh. 129 mín. England/Þýskaland. Gamanmynd. Þeir sem uxu upp úr fermingarfötunum sínum á 7. áratugnum, minnast Radio Caroline með miklum trega, ein af fáum griðarstöðum unglinga á meðan Gufan var þeim hin fjandsamlegasta. The Boat That Rocked, segir einmitt af ungling- um á þessum byltingartímum, hljómsveitum og plötusnúðum sem hreiðra um sig um borð í bát úti á rúmsjó (líkt og Radio Caroline), og hrella gamlingjana á BBC, ungu fólki til ómældrar ánægju. Frumsýningar í júní: Drag Me to Hell Leikstjóri: Sam Raimi. Aðalleikarar: Alison Lohman, Justin Long, Jessica Lucas. 90 mín. Bandaríkin. Hrollvekja. Ekki er titillinn gæfulegur en hann er saminn, líkt og myndin, af sjálfum hrollvekjusmiðnum Raimi, þannig að við getum átt von á góðri gæsa- húð. Leikstjóri Spi- der-Man og Evil Dead-myndanna, fjallar að þessu sinni um ungan og framagjarn- an banka- starfsmann (Lohman), í Los Angeles, sem býr með pró- fessor (Long), við UCLA. Allt leikur í lyndi uns hin dularfulla Frú Ganush (Joan Raver), stingur upp kollinum til að biðja um lán. Á bankadaman að ganga í augun á stjóranum og sýna hörku, eða láta hjartað ráða og hjálpa kerlunni? Hún velur fyrri kostinn. Líf hennar breytist í víti á jörð, hvað annað. Up Leikstjórar: Pete Docter, Bob Peterson. Raddsett á ensku og íslensku. 100 mín. Teiknimynd/ævintýramynd. Söguhetjan í nýjustu teiknimyndinni frá Pixar er harla óvenjuleg, blöðrusölumaður kominn undir áttrætt. Hann lætur draumana rætast er hann hengir nokkur þúsund blöðrur við húsið sitt og tekur stefnuna á Suður- Ameríku. Tvennt tók hann ekki með í reikning- inn, 9 ára gamlan strákpjakk sem er laumufar- þegi og lendingarstað sem hvergi finnst í korta- bókum. Land of the Lost Leikstjóri: Brad Silberling. Aðalleikarar: Will Ferrell, Danny R. McBride, Anna Friel. 115 mín. Ævintýri/grínmynd. Ferrell leikur vísindamanninn dr. Rick Mars- hall, sem lendir í tímagati sem flytur hann aftur um árþúsundir. Hann rankar við sér vopnlaus og klæðlítill þegar íbúar jarðar voru forsögulegar risaeðlur og aðrar framandi ófreskjur sem hann verður að berjast við með hugvitinu einu saman. Með honum á tímaflakkinu er ráðagóður vís- indamaður (Anna Friel), og ódrepandi harðjaxl (Danny McBride), sem lætur ekki einu sinni ban- hugraðar graneðlur koma sér úr jafnvægi. The Taking of Pelham 1 2 3 Leikstjóri: Tony Scott. Aðalleikarar: Denzel Washington, John Travolta, John Turturro, Lu- is Guzman, James Gandolfini. Bandaríkin/ Bretland. 120 mín. Átök/spenna. Washington leikur Garber, umferðarstjórn- anda við neðanjarðarlestakerfi New York borgar. Venjulegur dagur endar með ósköpum þegar Ry- der (Travolta), harðsvíraður og slunginn glæpa- maður, rænir einni lestinni ásamt einvala glæpa- gengi, vel búnu vopnum og hátæknibúnaði. Það tekur farþegana í gíslingu og hótar að lífláta þá ef ekki verður greitt himinhátt lausnargjald innan klukkustundar. Spennan magnast, við ofurefli er að etja en Garber hefur forskot, sem er gjörþekk- ing á lestarkerfinu. Endurgerð á magnaðri spennumynd með sama nafni frá 1974, með Wal- ter Mattthau, Robert Shaw og Martin Balsam. Year One Leikstjóri: Harold Ramis. Aðalleikarar: Jack Black, Michael Cera, Oliver Platt, Hank Azaria. Bandaríkin. 100 mín. Gamanmynd. Black og Cera leika blóðlata veiðimenn á stein- öld, sem eru reknir úr þorpinu út á guð og gadd- inn. Letingjarnir lenda í langferð um forsögulegt umhverfi þar sem dauðinn vofir yfir þeim við hvert fótmál. Myndin er úr smiðju hins vinsæla leikstjóra/framleiðenda, Judds Apatow. Hasar, grín og há Sumarið framundan virðist ekki skera sig úr öðrum. Mikið um hasar, spennu og skemmtun. Átök John Travolta er vondi gæinn í Taking Ævintýr ast við ó Harrys Vísindaskáldskapur Spennan virðist sífellt m Framtíð- artryllir Yf- irskilvitlegir kraftar og ástamál Jöf- ursins (Hugh Jackman) koma við sögu í X-Men Origins: Wol- verine. Spe blic En ur Johnn þjóðaróv eitt; ba ingja mo J i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.