Morgunblaðið - 19.04.2009, Page 41

Morgunblaðið - 19.04.2009, Page 41
Umræðan 41 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 NÚ STYTTIST í að kosið verði til Alþingis og línur farnar að skýr- ast í kosningabarátt- unni. Afleiðingar hrunsins setja mark sitt á umræðuna, fram- bjóðendur þeysast um víðan völl, opinbera viðhorf sín og gefa fög- ur fyrirheit um bjart- ari tíma framundan. Því miður er oft holur hljómur í mörgu af því sem þar er sagt og skrifað og heilu flokkarnir forðast eins og heitan eldinn að nefna það sem mestu skiptir og ekki verður vik- ist undan. Í þeirri íþrótt hefur Sjálfstæð- isflokkurinn sett glæsilegt met því eftir landsfund hans verður ekki með nokkru móti greint hvað sá flokkur leggur til í peninga- og fjár- málastjórn þjóðarinnar; aðeins tí- undað hverju hann er á móti og þar með er sagan öll. Fullkomið ábyrgð- arleysi og gaspur hefur tekið völdin í þessum merka stjórnmálaflokki og eftir standa fyrirtæki, heimili og al- menningur í forundran. Það er því síst að undra að þessi áður öflugi flokkur mælist nú í skoðanakönn- unum sá næstminnsti sem kemur mönnum á þing. Göngum hreint til verks Sýnt hefur verið fram á að 70% heildartjóns þjóðarinnar vegna hrunsins eigi rætur að rekja til hinn- ar veiku íslensku krónu og falls henn- ar, en 20 til 30% tjónsins sé vegna hruns bankanna. Því er eðlilegt að sjónum sé nú þegar beint að framtíð þessarar örmyntar og hvað sé til ráða. Eins og sakir standa er um tvær leiðir að ræða. Annars vegar að halda áfram um ókomin ár að lúta stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins og auka enn frekar á hömlur í gjaldeyr- isviðskiptum. Hinn kosturinn er sá að ganga svo fljótt sem auðið er til samninga við ESB og stefna síðan markvisst að því að taka upp evru sem gjald- miðil. Sannleikurinn er sá að þetta er eina leiðin sem bent hefur verið á til lausnar vandanum – ekkert annað bitastætt hefur komið fram. Að sjálf- sögðu er þessi leið hvorki blómum stráð né auðveld og engin töfralausn eins og andstæðingar hennar hafa þrástagast á. Hún er þrátt fyrir það eina leiðin sem bent hefur verið á sem gæti forðað okkur frá eingangr- un og aukið traust og trúverðugleika sem ábyrgrar þjóðar sem er for- senda árangurs. Þess vegna skiptir mestu að sú stjórn sem tekur við eftir kosningar sæki þegar í stað um aðild að ESB og taki með því af skarið hvert ferðinni er heitið. Að því gefnu að viðunandi samningur náist við ESB um auðlindir okkar og annað sem við leggjum mesta áherslu á væri stefnan mörkuð og síðan unnið eftir henni. Hinn valkosturinn, sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins bauð upp á, er að afnema höft á gjaldeyrisviðskiptum án þess að geta þess einu orði hvernig það skuli gert, skilað auðu um þetta grundvall- aratriði og gera svo kröfu um að vera tekin alvarlega. Þetta er fullkomlega ábyrgðarlaus málflutningur og að engu hafandi. Það er ekki nægj- anlegt að hjala fagurlega um frelsi og andæfa miðstýringu og ríkisvæðingu ef engin leið er vörðuð frá því ástandi sem þjóðin býr nú við eftir áralanga stjórn Sjálfstæðisflokksins. Slík af- greiðsla hlýtur að verða aðhláturs- efni annarra þjóða og eyðileggja um leið fyrir okkur að fá lausn brýnustu mála. Þá hefur Ísland valið sér ein- angrun af fúsum og frjálsum vilja og verður áreiðanlega látið í friði með það. Áfram veginn Þegar samningur liggur fyrir við ESB er loks hægt að ræða um kosti hans og galla og þjóðin kveður svo upp sinn dóm. Hinn kosturinn er sá að halda áfram að segja tröllasögur, í anda Sjálfstæðisflokksins, af því hversu hrikaleg örlög mæta okkur ef við höldum áfram að vinna með öðr- um Evrópuþjóðum og fylgja eðlilegri þróun á þeim vettvangi. Verði sú ógæfuleið valin mun sannast á okkur eins og ágætur maður sagði af öðru tilefni, að Íslandi tókst með miklu átaki að brjótast til fátæktar. En vonandi taka kjósendur nú af skarið og styðja þau stjórnmálaöfl sem vilja vinna með öðrum Evrópuþjóðum að því að efla grundvöll heilbrigðs at- vinnulífs og verðmætasköpunar sem er forsenda velferðar þjóðarinnar. Kjósendur taki af skarið Ragnar Sverrisson vill upptöku evru » Sýnt hefur verið fram á að 70% heild- artjóns þjóðarinnar vegna hrunsins eigi ræt- ur að rekja til hinnar veiku íslensku krónu og falls hennar … Ragnar Sverrisson Höfundur er kaupmaður á Akureyri. , ,magnar upp daginn ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.HUSAVIK.NET Elías Haraldsson, lögg. fasteignasali Reynir Björnsson, lögg. fasteignasali  Allar íbúðir með sólskála.  Íbúðir með hjónasvítu.  Stærðir frá 97-162 fm.  Rúmgóð bílageymsla.  Verð frá 26,4 millj. Boðaþing er reitur sem Húsvirki hf. og Hrafnista DAS fengu úthlutað til skipu- lagningar fyrir almennar íbúðir, þjónustu- íbúðir, hjúkrunarheimili og þjónustu- miðstöð aldraðra. Þetta er skemmtilega skipulagt svæði sem myndar kjarna almennra íbúða í kringum hjúkrunar- íbúðir og þjónustumiðstöð á vegum Kópavogsbæjar og Hrafnistu DAS. Sími 510-3800 Húsavík fasteignasala Borgartúni 29 www.husavik.net NÝTT HÚS FRÁ HÚSVIRKI hö nn un :w w w .s ki ss a. ne t 55+Glæsilegar íbúðirfyrir fólk á besta aldriBoðaþing 6-8 Trésmiðja til sölu eða leigu Til sölu eða leigu trésmiðja með sérhæfða framleiðslu og góð tæki. Fyrirtækið er lítið skuldsett og er vel staðsett á höfuðborg- arsvæðinu. Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Jens Ingólfsson hjá Kontakt í síma 414 1200 eða með tölvupósti: jens@kontakt.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.