Morgunblaðið - 19.04.2009, Síða 54

Morgunblaðið - 19.04.2009, Síða 54
54 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 Grettir ÉG OG LÍSA ÆTLUM AÐ FARA SAMAN Í BÍÓ Á FÖSTUDAGINN VIÐ ÆTLUM AÐ FARA Á STELPUMYND, EN MÉR ER ALVEG SAMA SVO ÞETTA ER ÁST... Kalvin & Hobbes PABBI, ERU KOLIN HEIT? JÁ, ÉG ER VIÐ ÞAÐ AÐ SETJA HAMBORGARANA Á GRILLIÐ ÉG Á LEIÐINLEGASTA PABBA Í HEIMI! ÁÐUR EN ÞÚ SETUR ÞÁ Á, VILTU EKKI HELLA SMÁ BENSÍNI Á GRILLIÐ TIL AÐ BÚA TIL STÓRAN ELDBOLTA? Kalvin & Hobbes ÞESSAR KAFARA- GRÍMUR GERA OKKUR KLEIFT AÐ KAFA ENDALAUST ÍMYNDAÐU ÞÉR ALLA FISKANA SEM VIÐ MUNUM SJÁ OG ALLAR SKELJARNAR DRÍFUM OKKUR! ÞETTA ERU NÚ MEIRI VONBRIGÐIN Kalvin & Hobbes GERI ÞAÐ SAMKVÆMT UPP- SKRIFTINNI ÆTTU AÐ VERÐA ÚR ÞESSU 20 PÖNNUKÖKUR ÞAÐ ER ALLT OF MIKIL FYRIRHÖFN VIÐ BÚUM BARA TIL EINA STÓRA! BÆTTU SVO VIÐ EGGJUM ÞAÐ ER EITT GOTT VIÐ ÞAÐ AÐ VERA FASTUR Á EYÐIEYJU HVAÐER ÞAÐ? ÉG SLEPP VIÐ GRÁA FIÐRINGINN HEIMA HJÁ MÉR Hrólfur hræðilegi Æ, NEI! MAMMA ER AÐ HORFA! Gæsamamma og Grímur Ferdinand EKKI er amalegt að skokka í fögru umhverfi Vífilsstaðavatns svo ekki sé minnst á að fá milt og gott veður í bónus eins og verið hefur í höfuðborg- inni að undanförnu. Eftir gott skokk er nauðsynlegt að teygja og toga heita vöðvana, eins og þessi kona gerir á myndinni. Morgunblaðið/Heiddi Skokkað í fallegu umhverfi Saga NÚ ER að líða að kosningum. Stjórn- málamenn ljúga öllu, fimm mínútum fyrir bankahrunið sögðu þeir sem stjórnuðu Ís- landi að við værum ríkust og best í heimi. Þeir vita ekki hvað siðferði er. Bjóðast til að pakka öllum inn í dúnsæng ef við bara kjósum þá. Spilltir. Spilltur, spilltari, því meiri spilling því betra. Hvernig væri að Íslendingar fengju alþjóðlegan dómstól til að skoða og rétta yfir verkum íslenskra stjórnmálamanna undanfarin ár? Spilltir. Núna sitja þeir á feitum röss- unum með ofurlaunin og ræða skattahækkun á lágtekjufólkið. Þeir minnast ekki einu orði á of- urlaun sín, sem tekin eru að mest- um hluta af lágtekjufólkinu. Á meðan situr alvöru fólkið í skulda- fangelsi heima hjá sér og allt að því sveltur. Hvers konar spilling stjórnar Íslandi? Einkavinavæddu Sjálfstæð- isflokkurinn og Framsóknarflokk- urinn allt heila klappið. Skiptu þeir á milli sín bönkunum og sjáv- arútveginum. Í sjávarútveginum eru ca. 30.000 þúsund störf ef allt er eðlilegt. Einkavinavæddi Davíð Oddsson dómstólana þegar hann réð marga vini sína í Hæstarétt og aðra í aðra dómstóla á Íslandi. Hver á Ísland? Verður Hæstirétt- ur einhvern tímann trúverðugur eftir þetta? Það er ekkert tján- ingar- og atvinnufrelsi eftir á Ís- landi. Spilltur, spilltari spilltastur. Það er öllum stjórnmálaflokkum um að kenna hvernig komið er fyr- ir Íslendingum, það eru allir stjórnmálamenn á Íslandi spilltir. Hvar eru tíu þúsund milljarðarnir sem haldið er að hafi horfið úr ís- lenska hagkerfinu? Útrásarvíkingarnir sóuðu einhverju, en hvar er restin af pen- ingunum? Þeir kunna ekki að skammast sín, vegna þess að þeir vita ekki hvað siðferði er. Jón H. Valsson. Kæru landsmenn ÉG ÆTLA að biðja þá kjósendur, sem áð- ur hafa styrkt Sjálf- stæðisflokkinn, að gera það aftur í næstu kosningum. Ég hef rekið mig á það í gegn- um tíðina, bæði í atvinnu og kristi- legu starfi, að ef eitthvað þarf að gera þá gera sjálfstæðismenn það vel. Það er mín reynsla. Unnur Elíasardóttir. Sýndarmennska ÞAR sem flokkarnir eru búnir að birta bókhald sitt, vil ég benda á að ekki er allt rétt sem kemur fram í bókhaldinu. Af tilviljun var mér sýndur tölvupóstur sem rataði nú ekki al- veg rétta leið, þar sá ég að hjá Samfylkingunni, sem var alveg bú- in að hvítþvo sig, var ýmislegt sem vantaði. Rétt skal vera rétt. Kjósandi. Eyrnalokkur tapaðist GULLEYRNALOKKUR með hvítri perlu frá Flora Danica tap- aðist um síðastliðin mánaðamót. Líklegir staðir eru Laxakvísl, Ár- skógar eða Akraland. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 588 4407 eða 869 4407.   Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Árskógar 4 | Handavinnusýning kl. 14- 17. Glæsilegir munir og veitingar í boði. Myndlistasýning. Bólstaðarhlíð 43 | Vorgleði 0́9 verður á fimmtudaginn 14. maí. Uppl. í síma 535 2760. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur sunnudagskvöld kl. 20-23.30. Danshljómsveitin Klassík leikur danslög við allra hæfi. feb.is. Félagsheimilið Gjábakki | Þriðjudaginn 21. apríl kl. 20 verður fræðsluerindi Glóðar í Gjábakka. Sigríður Bjarnadóttir segir frá fyrirlestri David Rodriguez og Reginu Beeler á Kanaríeyjum í nóv. sl. þar sem fjallað var um hreyfingu og áhrif hennar á heilsu fólks. Veitingar að hætti Glóðar. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Skráning stendur yfir í ferðina á þriðju- daginn 21. apríl. Lagt af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum, í lok ferðar verður farið í kaffi í Kríunes veitingahús við Elliðavatn. Skráning í síma 586 8014 kl. 13-16 og 692 0814. Félagsstarf Gerðubergi | Miðvikud. 22. apríl kl. 14 er „Vetur kvaddur“ í Breið- holtskirkju. Fjölbreytt dagskrá m.a. Kvennakórinn Senjórítur, sönghópur frá Árskógum, nemendur Tónskóla Sig- ursveins, upplestur, sigurvegarar í stóru upplestarkeppni grunnskóla í hverfinu og Gerðubergskórinn. Kaffiveitingar. Hraunsel | Stjórn FEBH, hefur opna skrifstofu í Hraunseli, mánudaga 13-15 og föstudaga 10-12. Félagar eru hvattir til að líta við, Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum á mánud. kl. 10.40 og Balkan- dansar í Kópavogsskóla kl. 17-18. Línu- dans á þriðjud. í Kópavogsskóla kl. 14.30 byrj. og kl. 15.30 framh. hópur. Hring- dansar á miðvikud. kl. 15-16. Uppl. í síma 564 1490, 554 5330 og 554 2780. Korpúlfar, Grafarvogi | Ganga frá Egils- höll á morgun kl. 10.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.