Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 www.forlagid.is TRANSAQUANIA - OUT OF THE BLUE ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN KYNNIR EINSTAKAN VIÐBURÐ Í BLÁA LÓNINU MIÐVIKUDAGINN 22. APRÍL Höfundar: Erna Ómarsdóttir – Damien Jalet – Gabríela Friðriksdóttir Tónlist: Ben Frost – Valdimar Jóhannsson Alþjóðlega þekktir listamenn og dansarar ÍD koma saman og skapa einstakan dans og listviðburð þar sem leikhúsið er Bláa Lónið sjálft og áhorfendur taka sér sæti í heitum jarðsjónum. Að lokinni sýningu verður vetur kvaddur og sumri fagnað í Lava sal Bláa Lónsins og allir stíga dans saman. Miðaverð aðeins kr. 3000 Miðasala í síma 568 8000 og á www.id.is Sætaferðir verða í boði með Kynnisferðum Bókanir á www.re.is Mæting kl. 21:30 – Munið sundfötin! AÐEINS ÞESSI EINA SÝNING! Ég er ekki skáksnillingur,heldur snillingur semlagði fyrir sig skák.“Þetta eru ein af mörgum, ekki beint hógværum en fleygum orðum Bobbys Fischer (1943-2008), en skákjöfurinn var einn „Íslandsvina“ sem stóðu und- ir nafni. Samband þessa umdeilda snillings og sérvitrings við land og þjóð spannaði allt aftur til heims- meistarakeppninnar í skák, þar sem hann atti kappi við Boris Spasskíj í Laugardalshöllinni árið 1972, og til dánardags. Hann var að lokum jarðsettur í íslenskri mold sem íslenskur ríkisborgari. Friðrik Guðmundsson hefur gert heimildarmynd um þetta sér- staka samband og byrjar á hefð- bundinn hátt á myndskeiðum frá „Einvígi aldarinnar“ og brotum úr viðtölum við Fischer frá síðari tímum eftir að Bandaríkjastjórn bregst ókvæða við þátttöku hans í skákmóti í gömlu Júgóslavíu. Ástæðan sú að fyrrum heims- meistarinn virti að vettugi alþjóð- legar refsiaðgerðir gegn landinu þegar hann háði skákeinvígi við Spasskíj í Sveti Stefan árið 1992. Um svipað leyti hófst öfgafull gagnrýni hans á gyðinga og Bandaríkin, sem frægt er orðið. Fischer (sem var bandarískur gyðingur), málaði sig út í horn og var að lokum settur í fangelsi í Japan er vegabréfsáritun hans rann út árið 2004. Þegar hér er komið sögu fer myndin í blússandi gang því mannafælan og sérvitringurinn Fischer átti fáa vini aðra en Sæ- mund Pálsson, fyrrum lögreglu- mann, sem annaðist verðandi heimsmeistarann á meðan á ein- víginu stóð. Þá mynduðust sterk vináttubönd og gamla máltækið „sá er vinur sem í raun reynist“, sannast á Sæma sem heldur þvert yfir heiminn til að ná vini sínum úr dýflissunni, jafnskjótt og Fisc- her leitar á náðir hans. Þetta er skondinn og strembinn bardagi þar sem Sæmi fær liðveislu for- sætisráðherra og alþingis til að veita hinum baldna stórmeistara íslenskt vegabréf og ríkisborg- ararétt, því það dugði ekkert minna til að leysa hann úr prís- undinni. Í síðari hlutanum, þegar Friðrik er kominn í návígi við furðufugl- inn Fischer og hið landskunna ljúfmenni (og rokkara, par ex- ellence) Sæma rokk, tekur Me and Bobby Fischer, stórt stökk, breyt- ist úr hefðbundinni heimildarmynd í nærmynd af hinum skemmtilega og aðlaðandi persónuleika Sæma, sem verður bjargvættur meist- arans með sinni óbilandi seiglu og bjartsýni. Mestur fengur er þó að upptökunum af Fischer, sem var orðinn gegnsýrður af gyðinga- hatri, skömm á föðurlandinu, nei- kvæðni út í allt og alla, eilíflega að koma sér í síaukin vandræði með öfgafullum yfirlýsingum og sam- særiskenningum sem gera harm- sögu hæfileikamanns meinfyndna. Sjálfur sýnir Fischer lúmskan húmor þegar sá gállinn er á hon- um, síðan keyrir um þverbak í of- stækinu. Kaflinn með honum og Kára Stefánssyni er rúsínan í pylsuendanum. Hér mætast stálin stinn og skákin lífleg. Til að byrja með veður hatursáróðurinn á Fisc- her og eru einstrengingslegar skoðanir hans Kára lítt að skapi. Fischer segir eitthvað á þessa leið: „Gyðingar og Bandaríkja- menn er sami grauturinn í sömu skál.“ Þegar Kári andmælir svarar Fischer að bragði. „Spurðu Palest- ínumenn.“ Skák! Smám saman tekst Kára að þagga að nokkru leyti niður í for- dómarausi Fischers um óvini í hverju horni, kjarnorkuvána, Schwarzenegger og aðra óáran sem hvílir á honum eins og mara. Að því kemur að Kára leiðist þófið og segir að það sé ekki hægt að eiga samræður við menn sem haldi uppi einræðum. Fischer róast um sinn en lætur sig ekki; „ég er bara að reyna að bjarga plánetunni,“ segir hann og meinar hvert orð. Myndin er tekin á meðan gervi- flugið mikla var á íslenskum „auð- mönnum“. Sæma verður tíðrætt um peningamál heimsmeistarans, sem hafði illan bifur á að flytja millurnar sínar úr traustu skjólinu í Sviss í hendur Landsbankamönn- um og lét senda þær til baka. „Hann vildi ekki eiga peninga í Ís- landi,“ segir Sæmi öldungis for- viða, á miðjum gósentíma svika- myllunnar. Svo eru menn að halda því fram að Bobby Fischer hafi verið geggjaður! Bíódagar Græna ljóssins í Háskólabíói Me and Bobby Fischer bbbmn Íslensk heimildarmynd. Leikstjóri, taka, klipping og handrit: Friðrik Guðmunds- son. Fram koma: Bobby Fischer, Sæ- mundur Pálsson, Kári Stefánsson, Guð- mundur G. Þórarinsson, Miyoko Watai, Jon Bosnich o.fl. 90 mín. Fjölmiðla- félagið Túndra. Ísland. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Þráskák Snillingur „Svo eru menn að halda því fram að Bobby Fischer hafi verið geggjaður,“ segir Sæbjörn Valdimarsson meðal annars í dómi sínum. Robert James Fischer, eða Bobby Fischer, eins og hann var jafnan kallaður, var sannkallað undrabarn í skáklistinni, varð stórmeistari aðeins 14 ára gamall og Banda- ríkjameistari 4 árum síðar. Há- punkturinn á ferli hans var heims- meistaraeinvígið við Boris Spasskíj í Laugardalshöllinni, sem Fischer vann eftir sögufrægt japl, jaml og fuður. Sigurinn var ekki síður rós í hnappagat Bandaríkja- manna í miðjum klíðum kalda stríðsins, en Sovétið hafði einokað titilinn í áratugi. Því miður tefldi Fischer sáralítið eftir þetta, en vann að vísu Spasskíj í umdeildu einvígi 20 árum síðar. Þessi einn snjallasti skákmaður allra tíma einangraðist frá umheiminum sak- ir öfgafullra skoðana sem koma vel í ljós í Me and Bobby Fischer. Undrabarnið Bobby Fischer Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.