Morgunblaðið - 19.04.2009, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 19.04.2009, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is NETIÐ hefur breytt öllu hvað varðar tónlist, flestu hvað varðar fréttamiðlun og mörgu hvað varðar kvikmyndir. Nú er sjónvarpið næst á dag- skrá, enda gefur augaleið að hefðbundið áskrift- arsjónvarp er brátt búið að syngja sitt síðasta. Justin.tv dregur nafn sitt af Justin Kan sem hrinti hugmyndinni úr vör fyrir rétt tæpum tveimur árum með þremur félögum sínum. Upp- haflega hugmyndin var að Kan myndi vera með myndavél á sér og hljóðnema og senda líf sitt út beint og þannig fór vefurinn af stað 19. mars 2007. Þegar á reyndi hafði Kan ekki nennu til að vera sífellt í beinni og breytti vefsetrinu í þá átt að gefa öðrum færi á að vera með eigin útsend- ingar og þá um sumarið opnaði hann fyrir aðrar rásir, ef svo má segja, og síðar það ár var vef- urinn opnaður algerlega að því leyti að hver sem er getur opnað eigin sjónvarpsrás, sett upp beina útsendingu, og þarf ekki annað til en tölvu með vefmyndavél. 16.946 DVD-diskar Á vefsetri Justin.tv er að finna ýmsar upplýs- ingar um fyrirbærið, þar á meðal þær að alls séu beinar útsendingar á 428.000 rásum, áhorfendur losi 41 milljón í hverjum mánuði sem kalli á 177 gígabita á sekúndu þegar mest lætur sem sam- svarar því að sent sé út efni sem samsvarar 16.946 DVD-diskum á klukkutíma. Efnið er mis-spennandi, nema hvað, og ekki víst til að mynda að nokkurn langi til að horfa á beina útsendingu úr gæludýrabúð, svo dæmi sé tekið, en menn sýna sitt hvað meira en stofn- endur Justin.tv hafa gert ráð fyrir. Sl. haust sendi ungur maður út beint frá því er hann svipti sig lífi, tók of stóran lyfjaskammt og lagðist svo niður fyrir framan myndavélina og beið dauð- ans. Ekki reyndi nema einn áhorfandi að rásinni að grípa inní, en hann var staddur í Indlandi og tókst ekki að ná sambandi við lögreglu í heima- borg viðkomandi. Annað sem talsvert er um á Justin.tv er að menn setja inn beinar útsendingar á kapp- leikjum og öðru efni sem annars þarf að greiða fyrir. Dæmi um það eru til að mynda leikirnir í Meistaradeildinni nú í vikulokin, en skömmu áð- ur en þeir fóru af stað voru tugir rása komnar í loftið þar sem hægt var að horfa á ýmsar útsend- ingar frá leikjunum; á spænsku, kínversku, þýsku, frönsku og ensku (þar á meðal útsend- ingu Sky). Vefsíða vikunnar: www.justin.tv 428.000 sjónvarpsrásir Reuters Skalli Á vefsetri Justin.tv er hægt að horfa á allt milli himins og jarðar, þar á meðal Meistaradeildina. TÓNLISTARSKÓLINN Í REYKJAVÍK 2009-2010 Innritun stendur yfir Nánari upplýsingar á tono.is / SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI MONSTERS VS... m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ OBSERVE AND REPORT kl. 8 FORSÝNING RACE TO WITCH MOUN... kl. 2 - 4 PUSH kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ KNOWING kl. 10 B.i. 12 ára MALL COP kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára OBSERVE AND REPORT kl. 10:10 LEYFÐ KILLSHOT kl. 8 B.i. 16 ára MONSTERS VS... m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ DESPEREAUX m/ísl. tali kl. 2 - 6 LEYFÐ FRANKLIN OG FJÁRSJ... kl. 4 LEYFÐ Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! FYRSTA DREAMWORKS ANIMATION TEIKNIMYNDIN SEM ER GERÐ SÉRSTAKLEGA FYRIR ÞRÍVÍDD(3D). SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TA LI “MONSTERS VS ALIENS HEFUR ÞETTA ÞVÍ ALLT. SKEMMTILEGA SÖGU, FLOTT ÚTLIT, GÓÐAN HÚMOR OG FERLEGA FLOTT LEIKARAGENGI Í SVO MIKLU STUÐI AÐ ÞETTA GAT EKKI KLIKKAÐ.” - Þ.Þ., DV ....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR TIL AÐ SEGJA ÞAÐ? ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í KRINGLUNNI SAMbio.is SÝND Í KRINGLUNNI SPARBÍÓ 550 kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu AKUREYRI O SELFOSSI FAST AND FURIOUS kl. 5-8 -10:20 B.i. 12 ára ELEGY kl. 8 LEYFÐ ARN: THE NIGHT TEM... kl. 10:20 MONSTERS VS... m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ FRANKLIN OG... m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ “FUNNY AS HELL…” PETER TRAVERS / ROLLING STONE NY TIMES SEGIR: SPRENGHLÆGILEG, GRÓFUSTU BRANDARAR SEM SÉST HAFA Í BÍÓ, SVARTASTI HÚMOR Í MANNA MINNUM Empire Washington post Chicago tribune EIN AF BESTU MYNDUM ALLRA TÍMA SAMKVÆMT IMDB.COM MYND SEM SKILUR EFTIR VARANLEG SPOR Í HUGUM ÁHORFENDA „AFHVERJU GETA BANDARÍKJAMENN EKKI GERT SVONA MYNDIR LENGUR?“ CNN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.