Saga - 1951, Blaðsíða 11
185
Klængur andaðist 1210, djákn að vígslu. Um
Guðmund er ekki kunnugt. Sighvatur hefur
auðvitað þekkt þá sonu Þorvalds, sem þá voru
lífs, og hefur ekki þurft að kynna þá fyrir
honum. í sögninni er auðsjáanlega líka gert
ráð fyrir því, að þau Þorvaldur og Jóra hafi
bæði átt sonu og dætur (sbr. orðið ,,börn“),
en heimildarrit geta einungis sona. Sögnin
hlýtur og að vera á því reist, að hjúskapur
þeirra Þorvalds og Jóru hafi orðið miklu síðar
en raun var á.
Þó að sögn þessi varði ekki beinlínis mein-
bugi með þeim hjónum, Þorvaldi og Jóru, þá
sýnir hún það ljóslega, að skrásetjari hennar
hefur annað hvort búið hana til frá rótum,
sem þó kann að virðast ótrúlegt, eða hann
hefur skráð marklitla arfsögn. Ið eina í henni,
sem til sanns vegar mætti færa, er kynning
Þorvalds á síðari konu börnum sínum fyrir
Sighvati, og er þó líklegt, að Sighvatur hafi
áður séð Halldóru sem þá var gift Katli presti
og lögsögumanni Þorlákssyni, og Gizur, sem þá
var 14 vetra og Sighvatur hefur vafalítið séð
á alþingi, þegar hér var komið sögu. 12 vetra
sótti Gizur Loft biskupsson um víg Bjarnar
Þorvaldssonar, hálfbróður síns.1) Hefur Gizur
áreiðanlega ekki verið þá á alþingi fyrsta
sinni. Höfðingjasynir, eins og Gizur, hafa
verið látnir læra lög þegar er þeir höfðu þroska
til og verið hafðir til þinga, svo að þeir mætti
sjá og heyra það, sem þar fór fram.
Þetta. sem nú hefur verið sagt, sýnir það,
1) Sturl. I. 283.