Saga


Saga - 1951, Blaðsíða 84

Saga - 1951, Blaðsíða 84
258 Þessi lög eru að vísu frá kirkjuvaldinu runnin. en þau eru vafalítið árangur af samningum milli erkibiskups annars vegar og konungs og Gizur- ar Þorvaldssonar hins vegar, sem Gizur hefur svo fengið lögréttuna 1253 til þess að sam- þykkja. Þau eru sjálfsagt óbeinlínis einn þátt- ur í viðleitni konungs til að festa fang á íslandi. Þau eru að öðrum þræði pólitísk ráðstöfun kirkjuvaldsins og að hinu leytinu pólitískt bragð af hendi Noregskonungs. „Do ut des“ (Æ sér gjöf til gjalda). Erkistóllinn í Niðarósi hjálpar konungi til valda á Islandi og mælir til fríðinda í staðinn. Gizur þykist þurfa að koma sér við konunginn og gengst fyrir samþykkt þessara þýðingarmiklu laga, enda fær hann þá leyfi kirkjuvaldsins til þess að gera brúðkaup til Gró Álfsdóttur, frændkonu sinnar. Þau hafa verið fimmmenningar réttir, talið frá Ámunda Þor- steinssyni Síðu-Hallssonar (Sturl. II. ættaskrá 7. og 8., Rvík 1946). Þá gengu þau lög í landi hér, að fimmmenningar, sem vildu eigast, urðu að gjalda 10. hluta fjár síns (tíund ina meiri). Og virðist svo sem Gizur hafi fengið hjúskapar- leyfið ókeypis, því að það hefði hann þegar átt að fá orðskviðalaust, ef gjaldið var greitt. Vér vitum ekkert um bókmenntun Þorvarðar Þórarinssonar. Með líkindum má segja, að hann hljóti að hafa fengið þá fræðslu, sem þá hefur verið títt að veita höfðingjasonum. En um slíkt brestur víst fræðslu. 1 sögu Árna biskups Þor- lákssonar (Biskupas. Bókm.félags I. 705-706) er getið bréfs, er Þorvarður ritaði Magnúsi kon- ungi og dr. Björn einnig getur, og má bréf þetta heldur vera Þorvarði til lofs en lasts, en naum- ast verður mikið af því ráðið um bókgerð eða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Saga
https://timarit.is/publication/775

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.