Saga - 1951, Blaðsíða 31
205
grímur skáld í Höfða á Höfðaströnd Magnús-
son og er rétt hugsanlegt, með hliðsjón af
föðurnöfnum feðra þeirra, sem Steingrími eru
eignaðir, að Guðmundur faðir hans hafi verið
bróðir Ásgríms. Tengdir urðu nokkrar með
bróðurbömum Ásgríms og afkvæmi Jóns pr.
á Siglunesi Guðmundssonar.
24. nóv. 1675 á Syðri-Ökrum í Blönduhlíð er
tekið fyrir rétt mál Jóns ráðsmanns á Hólum og
lögréttum. Þorsteinssonar og Þorsteins bónda á
Sólheimum í Blönduhlíð Bjarnasonar, sem áður
hafði búið í Syðra-Vallholti (Dómabók Hegra-
nesþ. 1673—1680). Af dómi í máli þessu sést, að
Þorsteinn þessi var sonur Bjama yngra lög-
réttumanns í Hegranesþingi Hrólfssonar lög-
réttum. s. st. Bjarnasonar. Vottar að stefn-
unni á hendur Þorsteini voru Steingrímur
Guðmundsson, Finnbogi Einarsson og Helgi
Sigmundsson. Fyrir réttinum er því barið við,
að Steingrímur og Helgi séu í þremennings-
frændsemi við konu Jóns ráðsmanns og viður-
kenna dómendur og sýslumaður þetta rétt og
og vísa málinu frá réttinum á þeim forsend-
ttm, að Steingrímur og Helgi séu of námægðir
Jóni ráðsmanni til að stefnuvætti þeirra sé lög-
legt, en þá sé einungis einn vottur löglegur og
slíkt nægi eigi til að votta stefnuna. Þegar
þetta gerðist, var Jón ráðsmaður kvæntur fyrri
konu sinni, Ingibjörgu, dóttur Sigurðar sýslu-
manns Hrólfssonar lögréttum. Bjarnasonar og
k. h. Guðrúnar Sæmundardóttur pr. í Glaumbæ
Kárssonar. Ingibjörg og Þorsteinn Bjarnason
voru því bræðrabörn og ef Steingrímur var
skyldur Ingibjörgu í föðurætt hennar var
hann jafnskyldur hinum stefnda og mundi þá