Saga - 1951, Blaðsíða 55
229
af ýmsum ástæðum langur dráttur á því, að út-
gáfan yrði hafin. Loks var henni hleypt af stokk-
unum 1925, og var upphafið (I, 1-160) endur-
prentað í Félagsprentsmiðjunni í Reykjavík,
en framhaldið ljósprentað í Leipzig í Þýzka-
landi á árunum 1927-1937. Við var svo aukið
nafnaskrá eftir Guðna Jónsson (Rv. 1938) og
efnisskrá eftir Einar Ól. Sveinsson, ásamt for-
mála þeim, er Jón Árnason hafði ætlað að hafa
fyrir frumútgáfunni (Rv. 1939). Stóð útgáfan
þannig um 15 ár og varð Sögufélaginu allkostn-
aðarsöm, auk þess sem örðugleikar voru oft á
öflun gjaldeyris. Upphafið var svo einnig Ijós-
prentað 1944 í Lithoprent, og á Sögufélagið
miklar þakkir skilið fyrir, hve myndarlega það
leysti þetta verk allt af hendi.
e) Tímarit. Árið 1918 réðst Sögufélagið í að
gefa út tímaritið Blöndu. önnuðust þeir dr. Jón
Þorkelsson og Hannes Þorsteinsson ritstjórn
hennar í sameiningu til loka II. bindis, þá Hann-
es einn, eftir lát dr. Jóns, aftur á 288. bls. í V.
bindi. Eftir lát Hannesar tók Einar Arnórsson
við ritstjórninni til loka VI. bindis, en síðan
Guðni Jónsson. I Blöndu hefur verið gefinn út
ýmis fróðleikur, en einnig margar frumsamd-
ar ritgerðir. Hún hefur notið allmikilla vinsælda
og verið mest við alþýðuhæfi allra útgáfurita
Sögufélagsins að undan skildum Þjóðsögum
Jóns Árnasonar. Samt sem áður hefur verið
ákveðið að hætta útgáfu hennar með IX. bindi,
er í verða nafnaskrár og efnisskrá, ef hægt
verður. Slíkar skrár þurfti að gera, og var eðli-
legt að binda enda á útgáfuna með þeim, a. m. k.
í bili, úr því að þær voru ekki látnar fylgja
hverju bindi. 1 öðru lagi hefur stjórn Sögufé-