Saga - 1951, Blaðsíða 37
211
en síðar Jóni lrm. á Steinsstöðum
í Tungusveit Eggertssyni.
ff) Kristín, 7 ára 1703, varð síðari kona
sira Magnúsar á Mælifelli Arasonar.
e. Steinunn, fyrrnefnd. Hún er 35 ára 1703,
ekkja eftir Jón lrm. Þorsteinsson lrm. í
Framnesi Steingrímssonar og býr með
börnum sínum ungum á Hofsstöðum í
Viðvíkursveit. Það er auðséð af handriti
ættartalna Steingríms biskups, að hann
hefur í fyrstu haft vitneskju sína um
Steingrímsættina frá Espólín eða frá
sömu heimild sem hann. Síðar hefur hann
bætt við leiðréttingum, einkum um af-
kvæmi Steinunnar langafasystur sinnar,
og er auðvitað, að þær hefur hann frá
Ragnheiði Ólafsdóttur bryta, sem fluttist
suður á Álptanes og frætt hefur Stein-
grím biskup frænda sinn um föðursyst-
kini sín. Því mun það vera óyggjandi, er
Steingrímur biskup segir, að síðari maður
Steinunnar hafi verið Sigurður og þeirra
börn hafi verið Þorsteinn faðir Sigurðar,
sem úti varð í Kjalhrauni, og Sesselja
rnóðir Þorfinns lrm. á Brenniborg Jóns-
sonar. Það er ljóst af aldri barna Jóns
og Steinunnar, að hún hefur ekki verið
gift áður en hún átti Jón og hefur Sig-
urður verið síðari maður hennar.
1 Ættum Skagfirðinga, bls. 216, er Þor-
steinn faðir Sigurðar þess, sem úti varð
í Kjalhrauni, talinn sonur Sigurðar b.
á Skíðastöðum í Tungusveit Jónssonar og
konu hans Þóru Þorláksdóttur. Sigurður