Saga - 1951, Blaðsíða 35
209
í ætt við sira Jón. Sennilegra er, að hún
hafi verið bróðurdóttir sira Jóns, en ekk-
ert skal um það fullyrt. Börn þeirra voru:
aa) Steingrímur, 12 ára 1703, kvæntist
Ingibjörgu Guðmundsdóttur á Sneis
í Engihlíðarhreppi 1703, en í Þver-
árdal 1708 Þorsteinssonar.
bb) Sigríður, 7 ára 1703, giftist Jóni
lrm. í Bræðratungu Magnússyni.
cc) Ingibjörg, 13 ára 1703, giftist Þor-
láki b. í Ásgeirsbrekku í Skagafirði
Jónssyni á Veðramóti Sigurðssonar.
c. Jón, 37 ára 1703, bóndi og nefndarmaður
á Yzta-Mói í Fljótum, kv. Ingiríði Ara-
dóttur pr. á Mælifelli Guðmundssonar.
Börn þeirra voru:
aa) Ingibjörg, 5 ára 1703 á Flugumýri,
átti Jón b. í Framnesi Ólafsson í
Litluhlíð Kárssonar.
bb) Jón, 4 ára 1703, bjó á Þverá, lík-
lega í Blönduhlíð, fyrr kvæntur
Þóru Marteinsdóttur í Hofsstaðaseli
í Viðvíkurhreppi Magnússonar, en
síðar Helgu Jónsdóttur.
cc) Sigurður, 3 ára 1703, prófastur í
Holti undir Eyjafjöllum, kv. Val-
gerði Jónsdóttur b. í Laugarnesi
Þórðarsonar.
dd) Steingrímur, 2 ára 1703, bjó á
Þverá í Blönduhlíð. kvæntist Sig-
ríði Hjálmsdóttur á Keldulandi
Stefánssonar á Silfrastöðum Rafns-
sonar. Sonur þeirra var sira Jón
á Prestsbakka.
<s'aga. 14