Saga - 1951, Page 59
233
1944
1945
1946
1947
1948-1951
kr. 107131/3
— 107131/3
— 11710
— 12600
— 12000 á ári.
Styrkurinn hefur verið nokkuð mismunandi
að krónutölu, eins og yfirlit þetta sýnir, og hef-
ur hann ekki alltaf fylgt þeim breytingum, er
orðið hafa á verðgildi peninga. En oftast hefur
alþingi verið Sögufélaginu heldur vinveitt, og
þar hafa jafnan setið ýmsir menn, sem hafa
vel kunnað að meta starfsemi félagsins.
Enn fremur hefur félagið nokkrum sinnum
hlotið styrk úr sjóði Jóns Sigurðssonar, þá er
þörfin var mest:
1915 kr. 1000
1917 — 1000
1921 — 900
1925 — 1000
1931 — 1600
1933 — 1600
Hinn 29. nóv. 1940 gerði stjórn Sögufélags-
ins samning við Isafoldarprentsmiðju h.f. þess
efnis, að prentsmiðjan tók að sér allan kostnað
af útgáfu bóka félagsins, 22 arka á ári, gegn
árstillögum félagsmanna og ríkissjóðsstyrknum.
Jafnframt skyldi hún annast innheimtu tillag-
anna, afgreiðslu bóka til félagsmanna og lausa-
sölu þeirra gegn venjulegum bóksalalaunum
(25%). Hins vegar skyldi stjórn félagsins ráða
ritum þeim, er út yrðu gefin, og félagið eiga allt
upplagið, er eigi rynni til félagsmanna. Samn-
ingurinn var gerður til 5 ára, og skyldi upp-