Saga - 1952, Side 51
B09
bróður sínum — síðar biskupi — með sextán
manna fylgdarsveit stefnuför vestur í Dali, og
bjó ásamt tengdamönnum sínum, er þar komu
til móts við hann, málin til alþingis um sum-
arið. Var Salbjörg flutt frá Staðarhóli, og
staðurinn fenginn Þorgilsi presti Gunnsteins-
syni, dóttursyni Þorgils Oddasonar, til for-
ráða.
Á alþingi urðu vegendur Einars, en Ari
sterki hélt þar uppi svörum fyrir þá, sekir og
og gerðir úr landi, en sæzt var á önnur mál1).
Gjöfin til Kolfinnu var ónýtt2). Er af þessu
ljóst, að Yngvildur hefur fengið greinilega
sönnun þess, að hún hafði eignazt efnilegan
tengdason.
Framar því, sem nú hefur sagt verið, segir
ekki frá Yngvildi í Sturlungu, en í Hungurvöku
og Jóns sögu biskups ögmundssonar, þar sem
segir frá Klængi Þorsteinssyni, er nafns hennar
hvergi getið, enda er Klængur þar við enga
konu kenndur. En ekki er ólíklegt, að Gunn-
laugur munkur og höfundur Jóns sögu elztu
hafi haft á bak við eyrað ástafar Klængs og
Yngvildar, þótt varla færi það fram á Hólum,
er þeir segja eftirfarandi sögu, sem vert er að
taka hér upp alla, því að henni er vitanlega
allri beint að Klængi. Sagan er svona: „Leikur
sá var kær mönnum, áður en hinn heilagi Jón
varð biskup, að kveða skyldi karlmaður til
konu í dans blautlig kvæði og regilig, og kona
til karlmanns mansöngsvísur; þenna leik lét
1) Sturl. I. 231.
2) Sturl. I. 450.