Saga - 1952, Qupperneq 68
326
valdur Gizurarson fengið Jóru“. Auk þeirra
röksemda, er áður voru greindar, má bæta því
við, að mjög er það ólíklegt, ef hún hefði verið
fædd áður en faðir hennar varð biskup, að svo
eftirsóknarverð kona hefði ekki verið manni
gefin að föður hennar lifandi heldur um 10 ár-
um eftir hans dag. Hitt er sennilegast, að hún
hafi ekki verið orðin gjafvaxta, er faðir henn-
ar féll frá 1176.
Það er ekki úr vegi að geta þess hér, að hinn
ágæti maður Þorvaldur Gizurarson, sem var
einn vammlausasti og mikilhæfasti höfðingi
landsins um sína daga, var auk þess svo skír-
lífur, að hann virðist ekki hafa átt böm með
öðrum konum en eiginkonum sínum. Þetta bend-
ir til þess, að hann hafi verið ungur að aldri,
er hann kvæntist Jóru. Hann reið síðast til al-
þingis 1234 og andaðist á næsta ári og þá senni-
lega nær bálf áttræður.
Það er lítill vafi á því, að Þorvaldur hefur
verið einna glæsilegastur karlkostur hér á landi
á sínum tíma, og maðurinn sjálfur líklega hið
mesta kvennagull. Báðar Þórur, dætur Guð-
mundar á Þingvöllum, óskuðu að verða síðari
kona hans, er hann hafði verið 10 ár í hjóna-
bandi og átt fimm sonu með konu sinni. Það
er ekki sennilegt, að Þorvaldur hefði í hið fyrra
sinn gengið að eiga konu, þótt biskupsdótttir
væri og mörgum kostum búin, ef hún hefði ver-
ið komin talsvert á fertugs aldur, ekki sérlega
fjáð og átti ekki mannaforráð. öll líkindi mæla
gegn þessu. Aftur á móti koma öll rök niður
í einn stað um það, að Jóra biskupsdóttir hafi