SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Blaðsíða 2
2 15. nóvember 2009
12 Þakkarræðan var ekkert spes!
Þóra B. Helgadóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, var valin besti
leikmaðurinn í Noregi á dögunum.
14 Konan bak við Lisbeth Salander
Noomi Rapace hefur hlotið mikið lof fyrir túlkun sína á skáldsagna-
persónu Stiegs Larssons á hvíta tjaldinu. Sunnudagsmogginn sótti
hana heim á hestabúgarð fjölskyldunnar í Svíþjóð.
20 Mannbjörg er besta tímakaupið
Feðgarnir Jóhannes Ólafsson og Sverrir Ólafsson vinna af ósérhlífni í
þágu sjúkra í Afríkuríkinu Eþíópíu.
24 Hafnar aðgerð og lyfjameðferð
Jóhann G. Jóhannsson tónlistarmaður sendir frá sér nýjan geisladisk
á sama tíma og hann berst við krabbamein.
36 Níræður ferðalangur
Björgvin Árni Ólafsson á Hvolsvelli hefur gert víðreist um dagana og er
hvergi nærri hættur að ferðast.
42 Á hvíta tjaldinu
Einkaviðtal við breska leikarann Chiwetel
Ejiofor, sem leikur í hamfaramyndinni 2012,
og umfjöllun um nafntogaðar kreppumyndir.
Lesbók
48 Unnið með spunarödd
Rætt við Sigurð Flosason, saxófónleikara og tónskáld, sem sent hef-
ur frá sér tvo nýja diska.
50 Vigdís í talsvert nýju ljósi
Páll Valsson hefur ritað ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi
forseta Íslands, og kemur hún út eftir helgi.
52 Umsagnir
Magnaður sellóleikur í Salnum og ævisaga Snorra Sturlusonar.
27
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Særún Norén af systur sinni Noomi Rapace.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is
Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir,
Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson,
Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
M
iðnætti á fimmtudegi í miðborginni.
„Þetta er að lognast út af, held ég,“
segir Steinar Bragi.
Nokkrar skáldspírur standa í
hnapp fyrir utan Næsta bar, sjálfselskandi ljóðskáld
eins og þau kalla sig. Þetta kvöld er Nýhil með
„open mic“, þar sem hljóðneminn er opinn öllum.
Tilefnið er burtför kanadíska ljóðsprundsins Angelu
Rawlings, sem kallar sig a.rawlings á skáldamót-
um. Hún sérhæfir sig í hljóðljóðum.
– Hvernig eru þau? spyr blaðamaður í einfeldni
sinni.
Og svar hennar er óvænt:
„Maður gefur frá sér hljóð.“
– Í bland við ljóð eða hugsanir? spyr blaðamaður
forviða.
„Stundum.“
Blaðamaður mjakar sér inn fyrir, rétt í tæka tíð til
að heyra síðasta atriði kvöldsins, þar sem fullorð-
inn karlmaður stendur á miðju gólfi, hefur tekið
hljóðnemann traustataki og syngur gamlan smell.
Ekki stendur á viðbrögðum. Vinur hans hleypur til
hans, faðmar hann og segir: „Ó, þetta var geð-
veikt!“
A.rawlings flutti ljóð fyrr um kvöldið, þar sem
hún var með frönsk tarotspil, hvaða þýðingu sem
framandi uppruni spilanna hafði – kannski þá, að
hún skildi ekki örlög sín. En hún miðlaði engu að
síður tilfinningum sínum yfir misskildum örlögum
með hljóðrænum tilþrifum. Kannski var Parísar-
skáld í salnum, sem skildi frönsk tarotspil, og náði
hljóðljóðinu í allri sinni dýpt.
Barþjónarnir hafa hlustað á ljóð allt kvöldið, og
einn þeirra er farinn að tala í hljóðum, sem laus eru
við ljóð, og hljóða einhvern veginn á þennan veg:
„Sjáðu verðið!“
Hann bendir á stórar verðmerkingar á barnum.
„Allt special price!“
En leikskólamærin, sem nú vinnur á barnum,
segir að ljóð kvöldsins hafi verið misjöfn. „Sum
voru ögrandi,“ bætir hún við. „Eitt var um að
nauðga ungbarni.“
A.rawlings gerir sig líklega til að hverfa af vett-
vangi og morguninn eftir fer hún af landi brott, en
hún hefur verið á Íslandi í þrjá mánuði á styrk frá
kanadískum stjórnvöldum. Enda er yfirskrift
kvöldsins „Blame Canada“. En hún ætlar sér að
snúa aftur næsta vor og vera allt sumarið, ganga
Fimmvörðuhálsinn og um Þórsmörk, svona með-
fram bókarskrifum. Og hún á til orð yfir Íslendinga:
„Þeir eru hráir, ástríðufullir og áfram um að segja
sögur, fallegar og furðulegar sögur, sem gefa manni
þrótt; þeir eru opnastir allra í heiminum og hér er
besta augnsambandið.“
Hún segist ekki vilja fara „heim“ aftur og gerir
táknrænar gæsalappir með fingrunum utan um
heim. Svo arkar hún af stað tregafullum skrefum,
horfir upp Ingólfsstrætið og tautar eflaust fyrir
munni sér: „Fögur er hlíðin.“
pebl@mbl.is
Ljóðskáld og áhugafólk um ljóðagerð deildi með sér einum hljóðnema á Næsta bar.
Morgunblaðið /Kristinn
Fögur er hlíðin
Sunnudagur 15. nóvember
Styrktartónleikar Caritas með Kristjáni Jóhannssyni
og Diddú hljóma enn á ný í Kristskirkju klukkan 16. Í
ár mun allur ágóði tónleikanna renna til til Mæðra-
styrksnefndar .
Mánudagur 16. nóvember
Kjörið tækifæri til að rækta tungumálið gefst á hinni
árlegu Jónasarvöku sem haldin verður í Þjóðmenning-
arhúsinu klukkan 17:15 á degi íslenskrar tungu.
Fimmtudagur 19. nóvember
Lokasýning á verðlaunasýningunni Utan gátta í Kass-
anum í Þjóðleikhúsinu. Síðasta tækifærið til að líta
þær Villu og Millu augum og upplifa æsilegan húmor.
Föstudagur 20. nóvember
Þeir sem vilja taka forskot á jólastemninguna geta
skellt sér á frumsýningu Disney-myndarinnar A Christ-
mas Carol. Jim Carrey bregður sér í gervi hins bitra
Ebenezers Scrooge.
Við mælum með…
Laugardagur 21. nóvember
Jesús litli frumsýndur í Borgarleikhúsinu klukkan 20.
Trúðarnir úr hinum geysivinsælu Dauðasyndum snúa
aftur og takast á við sjálft jólaguðspjallið.
Sunnudagur 22. nóvember
Í Gerðubergi frá klukkan 13-16 kynna kvenhöfundar
bækur sínar. Safngestum gefst líka kostur á að líta á
forvitnileg eldúsáhöld þeirra Þórarins Eldjárns rithöf-
undar og Sigurðar Árnasonar læknis.
J ó l a s ö f n u n
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur,
Hátúni 12b.