SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Blaðsíða 21
15. nóvember 2009 21
Jinka er stærsta borgin í
Suður-Omo-héraði, suð-
vestast í Suður-Eþíópíu,
og jafnframt aðsetur
héraðsstjórnarinnar.
Syðsti hluti héraðsins er
láglendi. Þar búa þjóð-
flokkar sem að mestu
leyti stunda hjarð-
mennsku. Norðurhluti
héraðsins er hálendi,
gróðursælt. Þar stunda
menn landbúnað. Íbúar
héraðsins eru um hálf
milljón, en tilheyra 15
þjóðflokkum sem hver
um sig talar eigið tungumál. Lestrarkunnátta, bókmenntun er
nánast engin í sumum þessara þjóðflokka, heldur búa þeir við
aldagamla menntun mótaða af hjarðmennsku í harðbýlu um-
hverfi frá náttúrunnar hendi. Meðal hálendisbúa eru fleiri skól-
ar og lestrarkunnátta sennilega nokkru almennari.
Bærinn Jinka er í vexti og miklar vegabætur eru í héraðinu
enda vinnur eþíópíska ríkið að því að bæta aðbúnað, meðal
annars fyrir ferðamenn. Hjarðþjóðflokkarnir í suðurhluta hér-
aðsins þykja nýstárlegir og eins Mago-þjóðgarðurinn.
Bærinn Jinka var reistur á síðari árum stjórnartíðar Haile Se-
lassie keisara. Sjúkrahúsið er ríkisspítali byggður 1993.
Norska kristniboðsfélagið (NLM) varð við áskorun heilbrigð-
isyfirvalda í Eþíópíu um rekstur spítalans.
Sér um reksturinn
Kristniboðsfélagið sér um rekstur skurðlæknis- og fæðing-
ardeildar. Stjórnun sjúkrahússins er að öðru leyti í höndum eþí-
ópskra lækna og hjúkrunarliðs. Á skurðlæknis- og fæðing-
ardeild eru 60 sjúkrarúm. Kristniboððsfélagið ábyrgist að einn
skurðlæknir, ljósmóðir og sérmenntuð hjúkrunarkona stjórni
skurðlæknis- og fæðingardeild.
Næsta sjúkrahús er í Arba Minch í Norður-Omo fylki í 300
km fjarlægð. Samgöngur þangað eru með áætlunarbílum á
vegi sem hentar best bílum með fjórhjóladrifi.
Flugsamband var einnig til Arba Minch og Addis Ababa, en
áætlunarflug hefur verið lagt niður. Flugvöllurinn er þó nothæf-
ur. Jinka er í um 900 km fjarlægð frá Addis Ababa og tekur tvö
daga að keyra á milli en gista þarf á leiðinni.
Höfuðborg héraðsins
Jinka
AFRÍKA
Jinka
SÚDAN
KENÝA
SÓMALÍA
DJÍBÚTÍ
ERÍTREA
EÞÍÓPÍA
fræðing. Aðalviðfangsefni þeirra er að byggja upp
kunnáttu og reynslu í stjórnun sjúkrhúss og auka kunn-
áttu í nær öllum starfsgreinum frá ræstingu til þjálfunar
ungra lækna og hjúkrunarliðs.
– Hvenær komstu í annað skipti til Eþíópíu?
„Árið 1966. Ég var heima í tvö ár, 1965 og 1966, og fór
svo aftur 1966. Svo er ég í Eþíópíu mikið fram til ársins
1981. Þá voru krakkarnir komnir á menntaskólaaldur og
við þurftum helst að setjast að í Evrópu til að geta komið
þeim í skóla og fundið okkur starf við hæfi á meðan. Við
vorum náttúrlega að hugsa um Ísland en börnin voru þá
nær eingöngu norskumælandi og því varð það úr að við
settumst að í Noregi.“
Var fyrirtækjalæknir
– Við hvað starfaðirðu í Noregi?
„Ég var fyrirtækjalæknir í verksmiðju sem heitir Fal-
cenbridge Nikkelverk.“
– Hvernig fyrirtæki var þetta?
„Það framleiðir nikkel og fleiri málma. Svo hætti ég
þar og fór aftur suður til Eþíópíu árið 1992. Þar var ég
mikið fram til ársins 2000 á vegum Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga og norsku kristniboðasamtakanna.“
– Hefur þú hvatt Sverri til að feta þessa slóð?
„Bara óbeint. Hann vildi sjálfur verða læknir.“
– Hugur hans hefur þá af trúarlegum ástæðum staðið
til að láta gott af sér leiða?
„Hann er trúaður eins og ég og það lá því beinast við
fyrir hann að láta gott af sér leiða.“
– Ef við beinum talinu aftur að Eþíópíu, þá hafa ann-
irnar jafnan verið miklar, ekki satt?
„Jú. Ég hef oft verið eini læknirinn á sjúkrahúsi og
þurft að sinna öllu sem að höndum ber. Það var ekki
hægt að senda frá sér sjúklinga. Maður þarf að fást við
ýmislegt, skuðlækningar, fæðingarhjálp og hitabeltis-
sjúkdóma og annað sem til fellur. Þetta er mjög fjöl-
breytt.“
Bjargað hundruðum mannslífa
– Sverrir segir mér að þið hafið gert marga keisaraskurði.
Þið hafið bjargað hundruðum mannslífa?
„Já, já.“
– Og fólkið hefur verið þakklátt?
„Já. Yfirleitt er fólk mjög þakklátt. Ég man eftir manni
sem að klifraði hátt upp í tré til að sækja hunang sem
hann átti í hunangsbúi uppi í trénu, datt niður og braut á
sér annan ökklann. Þetta var opið brot og hann sagði mér
að heimamenn hefðu haldið að slíkt opið brot gæti eng-
inn lifað af.
Hann kom á sjúkrahúsið og ég gerði að þessu. Hann lá
svo á spítalanum og jafnaði sig. Seinna þegar honum var
batnað hittumst við og þá sagði hann mér að sér þætti
merkilegast að ég hefði getað sagt honum strax að hann
myndi ná fullum bata. Þetta var ósköp venjulegt opið fót-
brot. Samt var þetta svo stórkostlegt fyrir honum vegna
þess að fólkið í kringum hann taldi að hann væri dauða-
dæmdur eftir slysið.“
Styður sjúkrastarfið
– Hefur norska ríkið komið að störfum þínum í Eþíóp-
íu?
„Norska þróunarhjálpin, NORAD, styður sjúkrastarfið,
meðal annars sjúkrahúsið í Jinka.
Þegar ég hefi farið til Eþíópíu eftir að ég komst á eft-
irlaun hef ég farið á eigin vegum.“
– Hvenær fara læknar á eftirlaun í Noregi?
„Við 67 ára aldur.“
Þú hefur hætt þá?
„Já, við læknisstörf í Noregi, en ég hélt áfram störfum í
Eþíópíu.
Við 75 ára aldur missir norskur læknir lækningaleyfið
nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi, að hann sé
læknir á elliheimili eða eitthvað slíkt. Ég missti lækn-
ingaleyfið í Noregi. Hins vegar eru þessi takmörk ekki í
gildi á Íslandi. Þess vegna leyfði ég mér nú að starfa áfram
í Eþíópíu sem íslenskur læknir enda er þörfin þar svo
geysileg og í minni síðustu ferð gagnlegt að geta hjálpað
Sverri í þessu tilfelli.“
– Hvað með lifibrauðið. Hvenær eiga norskir læknar
rétt á eftirlaunum?
„Sjálfur á ég rétt á þeim frá 67 ára aldri sem læknir í
norska og íslenska kristniboðssambandinu. Ég hef allan
tíma minn í Eþíópíu verið á launum hjá sambandinu.“
– Sverrir sagði að launin dygðu fyrir uppihaldi.
„Já, þau gera það. Þau eru ekki til að verða ríkur af.“
– Ævitekjurnar eru því lægri en hjá norskum kollegum
þínum sem hafa alltaf starfað í Noregi?
„Já. En ég kvarta ekki. Þegar ég komst á eftirlaun var
norska læknafélagið mjög rausnarlegt við mig.“
– Þeir hafa kunnað að meta þetta?
„Já. 16 af mínum starfsárum mat það svo að ég fengi
eftirlaun sem tryggð eru öllum læknum. En þegar upp er
staðið skipta peningar litlu máli, að bjarga mannslífi er
besta tímakaupið sem manni býðst.“
Gólf skurðstofunnar er þak-
ið blóðdropum eftir keis-
araskurð. Suma daga er að-
gerðin gerð þrisvar á dag.
Gamall maður
jafnar sig fyrir
utan spítalann.
Piltur lærir á hækjur.
Sverrir bíður eftir
því að sjúklingur
sé svæfður.
Fituæxli fjarlægt úr
vinstri olnbogabót á
eldri konu.