Morgunblaðið - 16.01.2010, Page 14

Morgunblaðið - 16.01.2010, Page 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 2010 TIL stendur að setja af stað verk- efni í sjávarútvegsráðuneytinu þar sem kanna á kosti þess að tak- marka veiðar afkastamikilla skipa á grunnslóð og í fjörðum. Þetta kom fram í máli Jóns Bjarnasonar, sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra, á blaðamannafundi í gær. Markmið- ið með þessu er að vernda grunn- slóðina þar sem smærri bátar stunda umhverfisvænar veiðar. „Í samstarfsyfirlýsingu núver- andi ríkisstjórnarflokka er tiltekið að kanna skuli takmörkun á veiðum afkastamikilla skipa á grunnslóð. Til okkar í ráðuneytinu berast stöð- ugt yfirlýsingar og ályktanir frá þeim sem vilja loka víkum og fjörð- um fyrir veiðum, þannig að þessi umræða er mjög sterk,“ sagði ráð- herra á fundinum sem telur þá ákvörðun að skoða takmörkun veiða við strendur landsins falla vel að markmiði Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. Flestar þær áskoranir um friðun miða sem settar hafa verið fram lúta að einstaka miðum eða fjörð- um. Róttækari sjónarmið hafa þó verið sett fram svo sem að allt svæðið umhverfis landið innan þriggja til fjögurra sjómílna verði verndað. Sjávarútvegsráðherra hefur falið Guðjóni Arnari Kristjánssyni, verk- efnisstjóra í ráðuneytinu og for- manni Frjálslynda flokksins, að kanna möguleika þess að takmarka veiðarnar með þeim hætti sem að framan er lýst. Ef vill verði svo sér- stökum starfshóp falin frekari úr- vinnsla málsins. Skoðað verður sér- staklega hvernig önnur ríki haga veiðum á grunnslóð og hvaða tækj- um þau beita við veiðistjórnunina. Hafði samfélagsleg áhrif Skýrsla um hvernig til tókst með strandveiðar sl. sumar var einnig kynnt á blaðamannafundinum í gær. Að mati ráðherrans tókst vel til með veiðarnar og hann vill halda áfram á sömu braut. Til stendur að setja lög um málið nú á vorþingi. Aðdragandi strandveiða síðasta sumar hafi verið skammur og því hafi ýmsir agnúar komið fram sem nú verði sniðnir af. „Mér finnst sérstaklega athygl- isvert að sjá hvaða samfélagsleg áhrif strandveiðarnar höfðu í hinum minni byggðum. Þetta gaf fólki samfélagslega vitund um að sjórinn og fiskurinn væri líka þeirra og eins gátu menn sem voru komnir í land aftur stundað takmarkaðar veiðar,“ segir Jón Bjarnason. sbs@mbl.is Vill takmarka veiðar stórskipa á grunnslóð Strandveiðarnar tókust vel og höfðu jákvæð áhrif Morgunblaðið/Sigurður Bogi Verndun Jón Bjarnason kannar breytingar á veiðum á grunnslóð. UM tugur uppsjávarveiðiskipa lá á fimmtudag í höfn- inni í Vestmannaeyjum. Minna hefur verið af gulldeplu á miðunum suður af Reykjanesi heldur en um þetta leyti í fyrra. Auk þess hefur verið bræla á miðunum og héldu skipin því til Eyja. Algengt var að stærri skipin fengju um 100 tonn af gulldeplu á dag áður en veður versnaði. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson og Súlan frá Ak- ureyri eru nú við loðnuleit austur af landinu í þeirri von að finna meiri loðnu svo hægt verði að gefa út upp- hafskvóta. Bjarni Friðriksson og Dröfn eru farin í síld- arleiðangur og verður útbreiðsla og sýking í stofninum könnuð frá Breiðafirði suður um til Vestmannaeyja á næstu dögum. aij@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir Flotinn liggur við landfestar Verðmæti þess afla sem strandveiðimenn fiskuðu síðasta sumar var 850 milljónir króna. Alls 554 bátar fóru til veiðanna, gerðir út af 529 aðilum. Flestir þeirra, eða alls 80%, réru sjálfir og þá yfirleitt einir á bát. Sama hlutfall hafði áður stundað útgerð og litlu færri höfðu störf tengd sjómennsku að sínu helsta viðurværi. Þetta kemur fram í skýrslu um strandveið- arnar sem Háskólasetur Vestfjarða, undir forystu Sigríðar Ólafsdóttur, vann. Fram kemur í skýrslunni að sjómenn hafi í stórum dráttum fylgt þeim reglum sem um þær gilda. Viðbót strandveiðiflotans hafi skapað aukið álag á ýmsar stofnanir. Megi skrifa það á reikning þess að skammur tími gafst til undirbúnings þeirrar umsýslu og eftirlits sem veiðarnar kröfðust. Mikil verðmæti en aukið álag á stofnanir Sigríður Ólafsdóttir Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–14 Þarftu að losa um verðmæti? Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu Ennfremur erum við sífellt að leita að verkum gömlu meistaranna fyrir viðskiptavini okkar. Listmunasala hefur gengið vel undanfarið Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi2 Taktu þátt í að móta sterkan lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir sætið2. w w w .t h o rb jo rg h e lg a .is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.