SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Blaðsíða 30
30 31. október 2010 ystu nöf með líferni sínu og með eindæmum að hann skuli hafa lifað það af. Bandaríski skemmtikrafturinn Jay Leno velti því einu sinni fyrir sér af hverju Bandaríkjamenn gætu ekki smíðað flugvélar, sem þyldu jafn mikið og Keith Richards. Í heróínrússi Á áttunda áratug liðinnar aldar var Rich- ards orðinn heróínfíkill. Þegar platan Exile On Main Street var tekinn upp árið 1971 var hann í heróínrússi. Gjaldþrot blasti við hljómsveitinni og hún lokaði sig af í Frakklandi til að gera plötuna. Richards vakti allan sólar- hringinn á meðan aðrir voru ívið reglusamari og sváfu til dæmis á nóttunni. Richards ber Exile On Main Street uppi og sagt er að Jagger hafi ekki verið ánægð- ur með það. Næstu árin komst Rich- ards ítrekað í kast við lög- in. Hann ferðaðist um með plastpoka fullan af eit- urlyfjum og svaf með byssu undir koddanum. Á sama tíma tók Jagger mál hljómsveitarinnar fast- ari tökum og gerði hana að vel reknu fyrirtæki. Í lok áttunda áratug- arins tókst Richards að losa sig úr viðjum heróínsins og segist nú hafa verið án þess í 30 ár. Hann var tilbúinn að Minningar frá steinöld Þegar sagt var frá því að ævisaga Keiths Richards væri væntanleg var fyrsta spurningin hvort hann myndi nokkuð. Bókin er mörg hundruð síður og á kápunni gefur hann fyrirheit: „Hvort sem þið trúið því eða ekki, ég man allt.“ Karl Blöndal kbl@mbl.is taka aftur þátt í að reka hljóm- sveitina, en Jagger svaraði ítrekað: „Æi, þegiðu, Keith. Hættu þessu kjaftæði.“ Richards segir að þetta hafi verið „dálítið áfall“ og bætir við: „Mick hafði greinilega vanist því í milli- tíðinni að vera herra Rolling Sto- nes. Hann hafði engan áhuga á að hleypa mér aftur inn. Mick vildi vera góður í viðskiptum og hann er það, en …“ Það varð hvellur þegar í ljós kom að Jagger hafði samhliða 20 milljóna dollara plötusamningi fyrir Rolling Stones gert einnar milljónar dollara plötusamning fyrir sjálfan sig um miðjan níunda ára- tuginn. Richards skammaðist út í fé- laga sinn og hneykslaðist á hon- um fyrir að lifa lífi fína fólksins. Sólóferill Jaggers komst hins vegar aldrei á skrið og áð- ur en áratugurinn var á enda hringdi hann í Richards og spurði hvort ekki væri rétt að hóa Rolling Stones K eith Richards, gítarleikari hljómsveitarinnar The Rolling Stones, er frummynd rokk- tónlistarmannsins. Hann og Mick Jagger eru gangverkið í einni fræg- ustu og vinsælustu hljómsveit samtímans. Rolling Stones voru allt, sem Bítlarnir voru ekki. Ef Bítlarnir voru sætabrauðs- drengirnir, þá voru Rolling Stones pöru- piltarnir, lifðu hratt og brenndu kertið í báða enda, heimur þeirra blanda af tón- list, áfengi, eiturlyfjum og kvenfólki. Þeir voru andbítlarnir. Þegar þeir komu í bæ- inn læstu sómakærir foreldrar dætur sínar inni. Nú hefur Keith Richards ákveðið að op- inbera sína sýn á lífið í fjölleikahúsinu. Í liðinni viku kom út ævisaga hans. Life heitir hún eða Líf og er James Fox með- höfundur Richards að verkinu. Bókin var farin að vekja umtal áður en hún kom út, einkum vegna þess hvernig hann ber Mick Jagger þar söguna. Jagger hefur ávallt ver- ið sagður heilinn á bak við velgengni Roll- ing Stones í viðskiptum, en Richards er greinilega ekki alls varnað. Fyrir þremur árum bauð hann upp réttinn til að gefa ævisögu sína út á bókamessunni í Frank- furt. Margir voru um hituna og upp úr krafsinu hafði hann 5,5 milljóna evra fyr- irframgreiðslu. Sagt er að forlagið hafi viljað að bókin héti My Life. Richards mun hafa strikað orðið mitt út. Í einu viðtali lætur Richards að því liggja að hann hafi heldur viljað fara í tónleika- ferðalag en skrifa bók, en félagar hans í hljómsveitinni hafi sagt nei. Jagger sér sennilega eftir því núna. Við fylltum upp í eyðurnar Jagger og Richards eru frá Dartford, smábæ fyrir utan London. „Allir frá Dart- ford eru þjófar,“ skrifar Richards. „Það er í blóðinu.“ Þar hittust þeir á brautarpalli og smullu saman. Richards sá um undir- bygginguna, hljómagangana og gítar- riffin, Jagger um laglínurnar. Nafnið að hljómsveitinni kom úr lagi með Muddy Waters og sex vikum eftir að þeir byrjuðu voru þeir orðnir frægir. Endanlega slógu þeir síðan í gegn með (I Can’t Get No) Sat- isfaction: „Bítlarnir gátu ekki tekið öll sætin á vinsældalistunum. Við fylltum upp í eyðurnar.“ Frægðinni fylgdi sukk og svall og Richards var stórtækur. Eiturlyfjaneysla dró Brian Jones til dauða skömmu eftir að hann hafði verið rekinn úr hljóm- sveitinni. Jimi Hendrix, Janis Joplin og Jim Morrison fóru sömu leið. Breska tón- listarblaðið New Musical Express birti lengi vel lista yfir hvaða poppstjörnur væru næstar á listanum. „Það var eini list- inn, sem ég var efstur á í tíu ár. Satt að segja varð ég fyrir nokkrum vonbrigðum þegar ég féll niður um nokkur sæti. Að lokum lenti ég í níunda sæti. Guð minn góður, nú er allt búið.“ Richards fór út á Keith Richards í hljómsveitarrútunni með hauskúpuhringinn á baugfingri. Mick Jagger og Keith Richards við tökur á Exile On Main Street í Frakklandi 1971. Richards vakti heilu sólarhringana í heróínrús. Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.