Ný saga - 01.01.2000, Page 59

Ný saga - 01.01.2000, Page 59
Snorri og bræður hans hai'a verið eins konar „æðri“ list, þ.e. list sem var stunduð og rnetin af yfirstéttinni, og þjón- aði því svipuðum tilgangi og t.d. óperan í Frakklandi á 18. og 19. öld. Það var merki um að maður tilheyrði þjóðfélagshópi höfðingja að bera skynbragð á þessa list og kunna eitt- hvað fyrir sér í henni. Skáldskapur var þáttur í virðingu manna og kemur það berlega fram í viðbrögðum Snorra þegar óvinur hans einn lætur yrkja spott urn kveðskap hans.61 Það gat því einnig komið sér vel fyrir ein- hvern sem vildi klifra í þjóðfélagsstiganum að vera skáld gott, ekki ósvipað því þegar metnaðarfullir einstaklingar af lægri stigum, t.d. í Vestur-Evrópu á síðustu öld, tileinkuðu sér liegðun yfirstéttarinnar í sama tilgangi. Reyndar má vera að slík eftiröpun hafi ált sér stað á íslandi á 12. og 13. öld, en í heimildum eru rnörg dæmi um að l'ólki sé lýst sem „kurt- eisu“.62. Þetta franskættaða orð er dregið af orðinu „cour“ sem merkir hirð. Þeir sem voru kurteisir kunnu að hegða sér við hirðina og voru að því leyti gjaldgengir sem höl'ðingjar eða sem fylgdarmenn þeirra. Hefð var fyrir því að skáldskapur í bundnu máli tengdist höfðingsskap, þcir sem íslend- ingar höfðu löngum komið sér í mjúkinn hjá fyrirmönnum Noregs með því að yrkja um þá lof. Þella stunduðu fleiri Sturlungar en Snorri, enda áttu þeir ættir að rekja til nafn- kenndra hirðskálda frá fyxstu öldum Islands- byggðar. Það er þó ekki l'yrr en eftir miðja 12. öld sem ritun sagna um Noregskonunga hefst og eru l'yrstu höfundar þeirra klerkar sem einkum rita um kristniboðskonungana Ólaf Tryggvason og Ólal' Haraldsson. Reyndar er ekkert vitað um Eirík Oddsson sem ritaði um miðbik 12. aldar „fyrstu söguna“ sem menn telja sig hafa vissu fyrir að Islendingur setti sarnan. Hún fjallaði um Sigurð konung slembidjákn, en ekki er ólíklegt að Eiríkur þessi hafi verið klerkur.63 Leikmenn sem vitað er að setlu slíkar sög- ur saman á 13. öld eru þeir frændur Snorri Sturluson, sem ritaði Heimskringlu, og Sturla Þórðarson, sem ritaði Hákonar sögu Hákon- arsonar. Auk þess er líklegt að Ólafur hvíta- skáld, bróðir Sturlu, hafi samið Knýtlinga sögu um Danakonunga.64 Við þennan lista má bæta höfundi Morkinskinnu, því fræðimenn sem hana hafa rannsakað telja að þar hafi leikmaður stýrt penna l'remur en klerkur.65 Sögur þessar voru að líkindunx settar saman fyrir konungana sjálfa, eins og þátturinn af Slurlu Þórðarsyni sýnir, en þar segir frá til- drögurn þess að Magnús konungur lagabælir fól honum að rita sögu föður síns.66 Þannig eru Snorri, Slurla og Ólafur allir dæmi urn skáld sein verða sagnaritarar, urn leikmenn senx hafa tekið ritlistina, menningartæki kirkjunnar, í sína eigin þágu. En hvers vegna lagði Sturla Sighvatsson slíkan hug á að láta skrifa upp bækur Snoira? Ællaði hann sjálfur að færa þær Noregshöfð- ingjum? Það kann að vera, en þó er líklegra að tilgangurinn hafi eini'aldlega verið sá að eiga þær til að þær yrðu lesnar upp t'yrir hann og hcimilisfólk hans. Ekki bara vegna þess að það var kurteisleg skemmtun og Sturla því getað sýnt höfðingsskap sinn nxeð slíkunx upplestri, heldur líka vegna þess að sjáll't inni- hald þeirra var menningarauðmagn. Kon- ungasögur eins og Morkinskinna og Heirns- kringla juku ekki aðeins þekkingu njótenda þeirra á sögu Noregs og Islands, heldur hafa þær einnig skerpt skilning þeirra á stríðs- rekstri, höfðingjavaldi, konungsvaldi og hirð- mennsku.67 Þær liafa verið tæki sem gerðu mönnum kleil't að skilja veruleikann sem í kringum þá var og hafa áhrif á hann, hluti af því sem myndaði habitus íslenskrar höfð- ingjastéttar á síðustu áratugum þjóðveldisins. Eitl af því sem Bourdieu segir að keppt sé um í hinu l'élagslega rými er valdið til að gæða félagslegan veruleika merkingu.68 Hér korna saman annars vegar táknrænt auðmagn, því samfélagið viðurkennir að handhafi þess sé til þess bær að gefa því merkingu, og hins vegar menningarlegt auðmagn sem er nauðsynlegt senx tæki til að búa merkinguna til. I kristnu samfélagi miðalda er kirkjan öl'Iugasta og við- urkenndasta uppspretta slíkra skilgreininga, en líta má svo á að konungsvaldið hal'i smám saman orðið það líka, m.a. með því að eigna sér menningarleg tæki kirkjunnar, þ.ám. söguskoðun hennar og sagnaritun. Samkvæmt Bourdieu er barátta þjóðfélags- hópa að verulegu leyti átök um skilgreining- ar.69 Nýir hópar geta því lileinkað sér tæki eldri hópanna í því skyni að „endurskilgreina" Það gat því einnig komið sér vel fyrír einhvern sem vildi klifra í þjóðfélags- stiganum að vera skáld gott
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.