Ný saga - 01.01.2001, Side 14

Ný saga - 01.01.2001, Side 14
Svanur Kristjánsson Mynd 13. Louis G. Dreyfus Jr. var sérstakur sendi- maður Roosevelts Bandaríkjaforseta við hátíðahöldin á Islandi 17. júní. Bandarísk stjórn- völd töldu að Sveinn Björnsson hefði mótað þá skilmála sem íslenska ríkis- stjórnin setti fyrir herverndar- samningnum og Bandaríkin samþykktu Þessar ályktanir er vert að rökstyðja nánar hér í lokin. Þegar Sveinn Björnsson var kvaddur til starfa á íslandi vorið 1940 ferðaðist hann um langan veg; fyrst frá Danmörku til Ítalíu, síð- an með skipi til Bandaríkjanna og loks með millilandaskipinu Dettifossi til íslands. Tók sú ferð tíu daga. Samskipa Sveini frá Bandaríkj- unum var nýskipaður aðalræðismaður Banda- ríkjanna á íslandi, Bertel E. Kuniholm að nafni. Hann var fyrsti sendimaður Bandaríkja- stjórnar á íslandi. Að sögn Sveins áttu þeir Kuniholm ítarlegar samræður í ferðinni.36 Yfirmaður Sveins Björnssonar sem ráðu- nautar ríkisstjórnarinnar var Stefán Jóhann Stefánsson félagsmálaráðherra, sem jafn- framt fór með utanríkismál. Snemma í júlí 1940 afhenti Sveinn Stefáni Jóhanni „sem algert trúnaðarmál skriflegar skýrslur urn viðtöl sem hann hefði þá nýverið átt við Kuniholm, ræðismann Bandaríkjanna hér, og Howard Smith, sendiherra Breta, hvorn um sig.“37 I desember sama ár átti Kuniholm samtal við Stefán Jóhann og hafði þá í farteskinu mótaðar hugmyndir um sérstakt samstarf ís- lands og Bandaríkjanna. „Af samtalinu öllu kom í ljós mikill áhugi á því að ísland bæði um vernd Bandaríkjanna - beinlínis eins og verið væri að „agitera“ fyrir beiðni Islands um vernd.“38 Einnig er eftirtektarvert að Kuniholm tengdi saman hugsanlega hervernd Bandaríkjanna og efnahagslegt samstarf landanna: „í sambandi við beiðni um vernd Bandaríkjanna þyrfti að semja um ver/Jun og viðskipti - áleit að ísland myndi geta fengið mjög hagstæða samninga þar.“39 Svo virðist sem í samtölum sínum hafi Sveinn Björnsson og Kuniholm komist að sömu niðurstöðu. Þeir töldu að hagsmunir Bandaríkjanna og íslands færu saman í öllum grundvallaratriðum. Hin sameiginlega sýn varð grundvöllur að herverndarsamningi landanna árið 1941. Sveinn Björnsson var þá orðinn ríkisstjóri. „Hann [Sveinn] er þó með í öllum ráðagerðum“ um samninginn, að sögn Stefáns Jóhanns Stefánssonar.41’ Bandarísk stjórnvöld töldu að Sveinn Björnsson hefði mótað þá skilmála sem ís- lenska ríkisstjórnin setti fyrir herverndar- samningnum og Bandaríkin samþykktu.41 Roosevelt Bandaríkjaforseti vildi hins vegar hafa vaðið fyrir neðan sig og ekki skuldbinda Bandaríkjastjórn skilyrðislaust til að kalla her- inn heim að styrjöldinni lokinni heldur þegar „núverandi hættuástandi“ í heiminum lyki.42 Bandaríkjaforseti vildi augljóslega einnig eiga kost á nýjum samningum við Islendinga sem hann vonaði að tryggði Bandaríkjastjórn bækistöðvar á íslandi eftir stríð. I för Sveins Björnssonar til Bandaríkjanna 1944 kom í Ijós, að forseti íslands var sam- mála viðhorfum Bandaríkjastjórnar um að viðhalda sérstöku sambandi landanna eftir stríð. Ennfremur styrktust enn böndin rnilli Sveins og bandarískra stjórnvalda. Eftir myndun nýsköpunarstjórnarinnar haustið 1944 sameinuðust forseti Islands og banda- rísk stjórnvöld í andstöðu við stjórnarþátt- töku „kommúnista“, vildu koma stjórninni frá völdum og mynda nýja ríkisstjórn sem hefði náið samstarf við Bandaríkin.43 Þannig sagði forseti íslands við sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi sumarið 1945: „„Við höfurn aldrei beðið ykkur um að fara, er það nokk- uð?“ Bætti Sveinn því við að íslendingar vildu að Bretar og Bandaríkjamenn tryggðu öryggi landsins, en ekki Sovétmenn.“44 Sveinn var ljóslega ekki neikvæður gagnvart beiðni um bandarískar herstöðvar og vildi nýja ríkisstjórn til valda í landinu.45 Haustið 1945 barst beiðni frá Bandaríkja- stjórn um þrjár herstöðvar, í Keflavík, Foss- vogi og Hvalfirði, til afnota í 99 ár. Ólafur Thors, forsætisráðherra, ráðfærði sig við for- setann um hvernig best væri að bregðast við.46 Vorið 1946 virðist síðan Ólafur fallast á skiln- ing Bandaríkjastjórnar á herverndarsamn- ingnum frá 1941. Styrjöldinni sé ekki form- lega lokið né hafi „hættuástandi" í heiminum verið aflétt. í apríl 1946 sagði Ólafur Thors við bandaríska sendiherrann að „hann krefj- ist ekki brottfarar bandaríska hersins að svo stöddu.“47 Haustið 1946 náðu íslensk og bandarísk stjórnvöld Ioks samkomulagi um aðstöðu fyr- ir bandaríska herinn á Islandi eftir að styrj- öldinni er lokið. Herverndarsamningurinn frá 1941 var felldur úr gildi og bandaríski herinn hvarf úr landi. í stað herverndarsamningsins 12
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.