Ný saga - 01.01.2001, Blaðsíða 34

Ný saga - 01.01.2001, Blaðsíða 34
Sagnfræðin á hraðbraut veraldarvefsins Ef rafrænir miðlar eiga að ná fótfestu og verða fullgildir í samfélagi sagn- fræðinga þarf að safna efninu, varðveita það og miðla, rétt eins og þóka- og skjalasöfn gera við þrent- aðar útgáfur og ábyggilegar heimildir og menn ætla. Þau hafa það hlutverk að koma í veg fyrir að þekking í þessu formi glatist, og tryggja að hver sem er geti flett upp í bókum, blöðum og tímaritum sem gefin hafa verið út. Það er styrkur hins prentaða orðs í vísindaheimin- um. Gunner Lind lektor við Kaupmanna- hafnarháskóla lýsir þessu vandamáli í afar fróðlegu viðtali við Nýja sögu, en þar segir hann: „En ef það á að tryggja að heimildirnar séu til varanlega, er varlegt að treysta bara á Netið. ... Einhver verður að bera ábyrgð á að uppfæra og tryggja aðgang.“10 Ef rafrænir miðlar eiga að ná fótfestu og verða fullgildir í samfélagi sagnfræðinga þarf að safna efninu, varðveita það og miðla, rétt eins og bóka- og skjalasöfn gera við prentað- ar útgáfur. Mikil umræða er nú meðal bóka- safna og bókasafnsfræðinga um hvernig eigi að varðveita rafrænt efni á vefnum. Margar þjóðir hafa stigið fyrstu skrefin og til dæmis hafa Danir lögleitt skilaskyldu á rafbókum (ebooks), eins og áður hefur komið fram, og þar er unnið að því að koma lögum yfir varð- veislu vefsíðna. Rafbækur eru fyrsta skrefið og það einfaldasta. Hvernig ráðið verður við ringulreið vefsins er önnur og stærri spurning. Niðurlag Heimildaútgáfa og efni er tengist bóka- og skjalasöfnum eru tilvalin til útgáfu á vefnum. Leitarmöguleikar tölvanna nýtast til fulls, að- gengið gjörbreytist og varðveisla skjala verð- ur betri. Það kostar hins vegar mikla vinnu að koma skjölum á stafrænt form og vinna kost- ar peninga. Mikilvægt er að helstu stofnanir gefi þessum málaflokki gaum sem allra fyrst, safnafólk og fræðimenn verða að leggjast á eitt að finna góð verkefni og afla fjár til að hrinda þeim í framkvæmd. Rafrænir miðlar hafa verið í sviðsljósi fjöl- miðla og í raun samfélagsins alls síðustu ár. Það er ljóst að tæknilega eru möguleikarnir óþrjótandi en takmarkanirnar liggja annars staðar. Það er dýrt að halda úti netmiðlum enda eru flestir eða allir vefir og vefsetur urn sagnfræði kostuð af stofnunum eða stærri fyr- irtækjum sem hafa aðra kjarnastarfsemi. Hi- story Today, H-Net og Söguvefur Nýja bóka- félagsins eru dæmi um það. Tekjur af netstarf- semi hafa reynst ótryggar nema í hefðbundn- urn greinunr eins og t.d. bóksölu. Netið er því alls ekki sú gróðalind sem margir spáðu. Það er aftur á móti að verða sífellt stærri þáttur í verslun, viðskiptum, kynningu og markaðs- setningu fyrirtækja, svo ekki sé minnst á líf almennings. Netið var engin bóla og þessi samskipta- og miðlunarmáti mun að öllum líkindum halda áfram að stækka og þróast með ógnarhraða eins og hann hefur gert síðustu tíu árin. Möguleikarnir eru miklir og þeir sem ekki ætla að kanna þá sitja eftir. Það er því mikil- vægt að sagnfræðingar geri tilraunir með raf- rænar útgáfur og vefinn almennt. Það er fag- inu mikilvægt að velta fyrir sér kostum og göllum, finna lausnir á vandamálunum og setja sér vinnureglur um vefútgáfur. Annars er hætt við að tæknimennirnir verði útgefendur framtíðarinnar, en ekki þeir sem hafa þjáll'un og þekkingu á efninu sem verið er að gefa út. Enn fremur er brýnt að koma elstu skjöl- um okkar á rafrænt form. Það er mikilvægt, ekki aðeins til að tryggja varðveislu skjal- anna, heldur tengjast þau þannig vinnulagi og þekkingarheimi sagnfræðinga framtíðarinnar sem munu gera auknar kröfur um stafræn gögn og tölvutæka leitarmöguleika. Tilvísanir 1 Landshagir 2000. Hagstofa Islands. Hagskýrslur Islands III, 77 (Reykjavík, 2000), bls. 278. 2 http://www.sapnanct.is. Forsíöa vefsins. 3 Agripið kom fyrst út árið 1982 í bókinni Kortasafn Há- skóla ístands og var titill greinarinnar „fsland á landa- bréfum. Nokkrir drættir“. A vefnum er stytt og breytt út- gáfa. 4 A vefnum www.memoware.com/palm er að finna hug- búnað og bækur fyrir Palm. 5 Heimasíða forritsins er www.microsoft.com/reader. 6 lan Simpson, „E-Books Barcly a Blip on Publishing Radar", www.vahoo.com. 8. febrúar 2001. 7 Bókmenntavefur strik.is hýsir bókina (www.strik.is/menning/bokmenntir/tenglasida.ehtm). 8 /www.indiana.edu/~ahr/report.htm. Skýrsla frá ráðstefnu ritstjóra sagnfræðitímarita í Bandaríkjunum sem haldin var í Indiana University í ágúst 1997. History Journals and Electronic Future 9 GeoCities er þjónusta rekin af Yahoo.com þar sem hver sem er getur skráð sig og setl upp sína eigin heimasíðu. Undir þessu léni er því að finna allskyns efni frá öllum heimshornum. Það er ekki einu sinni mögulegt að vita hvort nöfnin sem höfundarnir gefa upp séu hin réttu. 10 Ragnheiður Mósesdóttir, „Island var stöðutákn fyrir hinn einvalda konung", Ný saga 12 (2000), bls. 61-66.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.