Birtingur - 01.01.1957, Síða 31

Birtingur - 01.01.1957, Síða 31
þá stendur mér á sama um rafmagnið. Ég hef óendanlega meiri ánægju af og áhuga á verki eftir Léger eða Brancusi, því sé rafmagnið aðalatriðið þá gæti ég jafnvel eða betur fræðzt um það á einhverri vísindasýningu samtímans. Það sem mér finnst mjög meinlegt er, að þessi afstaða til skáldskapar færist yfir á mannlegt svið og að skáldin og rithöfundarnir, segjum skáldrithöfundar eru taldir hinir illu andar skáld-listamanna, málara og myndhöggvara. Góði engillinn er vitanlega vísindamaðurinn. Að sjálfsögðu gerir listamaðurinn rétt, ef hann hefur áhuga á því að.ganga á vit hins síðar nefnda, en hvað knýr hann til þess að fórna honum sínum óaðskiljanlega förunaut? Hvenær var talið nauðsynlegt að fyrirlíta rithöfundinn til þess að sanna aðdáun sína á vísindamanninum ? Er krafturinn aðeins í því hagnýta og hönd á penna ekki framar hönd á plógi? Hlýtur skáldið sem skrifar að vera háður baudelaire-örlögum sínrnn: hæddur útlagi í landinu? Máski hefur honum dottið í hug, að einn góðan veðurdag myndu sumir listamenn hrópa með stórborgurunum. Fleiri orðum þarf ekki að þessu að eyða, heldur vinna að því, að vinsemd ríki aftur að skoðanaskiptum loknum. Ég skrifa þessa grein aðeins vegna þess, að ég óska þess einlæglega að rofnir verði múrarnir og raunverulegt samstarf hef jist milli lista- mannanna sjálfra, síðan við samherjana, skáldin og rithöfundana, og við þá sem nefnast gagnrýnendur, sem ekki eru alltaf virtir að verðleikum, þótt oft yfirsjáist þeim. Verið róleg. Ég er ekki að óska eftir allsherjar friðargerð í listum, almennum faðmlögum og óhugsanlegum samruna. Svo barnalegur er ég ekki né kröfuharður. Heldur ekki nægilega góður. Auk þess myndi ég vera svo heiðarlegur að segja: mér finnst ekki girnilegt að eiga orðastað við meðalmenn og uppskafninga, sem of oft eru þeir sömu, og þess vegna væri mér nær skapi að loka augunum fyrir villum þeirra, sem ég get metið vegna gáfna og hæfileika. Fyrst og fremst er um það að ræða, innan ramma þeirrar fagurfræði er mest ber á, að eyða alltof mörgum fölskum mótsögnum, að koma á nauðsynlegri samvinnu vegna stöðugt fátæklegri sjónarmiða og greiða fyrir skoðanaskiptum öllum til hagnaðar, þar sem hver virðir skoðanir annars. Til þess mætti taka fimm atriði til athugunar, miðuð við það, sem nú er efst á baugi. Vísindastefna, endalok geometrisma, tachismi, afturhvarf til stórverka, hreyfing- Fyrsta atriðið hefur áður verið rætt, og geri ég það ekki frekar að umtalsefni. Jafnframt var minnzt á þær aðstæður, er geometrisminn hefur skapað sjálfum sér til eyðileggingar. Þetta tvennt: afturför geometrismans og fjarstæða vísinda- stefnunnar, er sjáanlega hvað öðru skylt, annað er framhald hins. Maður finnur sama ósveigjanleikann og þessa þröngu raunspeki, sem afsakar, hjá fáum einum, mikinn áhuga fyrir skýrleika. En kref jist samtíðin af okkur skýrleika í skáldskap, þá er ekki átt við það að mála eða móta skýrleikann bókstaflega, sem væri of einstætt fyrirtæki; aðalatriðið er að vera skýr þegar málað er eða mótað, svo og í tilfinningum fyrir listinni. Það er ekki að undra þótt hóflaus geometrismi hafi vakið hóflausan tachisma. Slíkur uppsteitur var óhjákvæmilegur og er nú hörkuleg staðreynd. 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.