Birtingur - 01.01.1957, Blaðsíða 60
kröfur við valdhafana, naut hún samúðar
þjóðar okkar. Hinn 30. október gaf
ráðstjórnin út yfirlýsingu um að treysta til
hins ítrasta vináttu og samvinnu milli
Ráðstjórnarríkjanna og annarra sósíaliskra
landa. Sovétherinn, sem var í Ungverjalandi
samkvæmt Varsjársáttmálanum, var látinn
hverfa frá Búdapest undireins og stjórn
Imre Nagy óskaði þess, sú sama, sem
áður hafði sjálf farið fram á það, að
ráðstjómarher kæmi henni til hjálpar.
Þið munið hvað síðan gerðist.
Gagnbyltingarmenn höfðu ályktað, að þeirra
stund væri upp runnin.
Það er augljóst, að ennþá vitið þið ekki allt,
en vissulega hafið þið fengið vitneskju
inn hluta af því sem átti sér stað. En samt
sem áður hafið þið ákveðið að mótmæla,
„jafnvel þótt afturhaldsöfl, sem fluttu
hvatningarorð í útvarp uppreisnarmanna,
hafi tekið þátt í þessari uppreisn."
„Hafi tekið þátt í . . . . “ Ef þeir hefðu ekki
gert annað en „taka þátt“ í henni! Þeir
„fluttu hvatningarorð í útvarp . . .“ Ef
þeir hefðu ekki gert annað en „flytja
hvatningarorð. * ‘
Mundu vikur og mánuðir þurfa að líða áður
en þið sjáið allan sannleikann um ógnaröld
fasismans, sem brotizt hafði út í
Ungverjalandi, áður en þið horfizt í augu
við allar staðreyndir og afleiðingar þessara
staðreynda ?
Svo er mál með vexti, að það er engum
framar neitt leyndarmál, að Vesturveldin
hafa sent flugvélar merktar vestur-þýzka
sambandslýðveldinu og Englandi til
Búdapest, með hundruð liðsforingja, gamalla
horthy-sinna, sem höfðu verið í her Hitlers
Við getum bent ykkur á amerísku
„miðstöðina í Salzburg", en þaðan voru
sendir inn í Ungverjaland njósnarar,
undirróðursmenn, loftbelgir hlaðnir
áróðurspésum, senditækjum o. s. frv.
Við minnum ykkur á hvatningarorð til
uppreisnarmanna í Ungverjalandi, sem dag
hvern, hverja stund, löngu áður en
atburðirnir hófust, hljómuðu frá mörgum
útvarpsstöðvum Vestur-Evrópu og Ameríku.
Þið vitið að sjálfsögðu, að jafnvel sum
blöð í Vestur-Þýzkalandi hafa sérstaklega
ásakað stöðina „Útvarp frjálsrar Evrópu“
fyrir að hafa hvatt til uppreisnar í
Ungverjalandi og að hafa lofað hjálp frá
útlöndum.
Hafið þið nokkurntíma heyrt slík hvatningar-
orð til vestrænna þjóða frá útvarpsstöðvum
í sósíaliskum löndum? Og hvað hefðuð þið
sagt um slík hvatningarorð ?
Og hvaða ályktanir hefðuð þið dregið af
þeim?
Meðal þeirra höfunda, sem að þessu bréfi
standa, eru menn, sem muna hvitu
ógnaröldina og vita hvað hún er.
Á þeim árum, þegar borgarastyrjöldin
geisaði í Úkraínu, komum við til bæja og
þorpa þar í landi og sáum lík ungs fólks,
kvenna, gamalmenna, sem orðið höfðu
píslarvottar hvítliða- Meðal þeirra voru ekki
aðeins félagar úr æskulýðssamtökum
kommúnista og kommúnistar; það voru blátt
áfram starfsmenn ráðstjórnarskipulagsins,
verkamenn úr þjóðnýttum verksmiðjum.
Og allt þetta átti sér stað í Úkraínu á því
sama ári 1919, þegar ungverska afturhaldið
var að brjóta á bak aftur ungverska
lýðveldið.
Sumir þeirra höfunda, sem að þessu bréfi
standa, tóku þátt í síðari heimsstyrjöldinni
og muna vel eftir vígstöðvunum við
Voraneje. Þeir muna vel til hvers
46