Birtingur - 01.01.1957, Síða 61
liðsforingjar Horthys eru líklegir ■— þessir
ungversku bandamenn Hitlers. Grimmd
þeirra stóð í engu að baki villimennsku
Gestapolögreglimnar.
Þið vitið vel, að afturhald og gagnbylting
staðnæmast aldrei á miðri leið. Engu skiptir
hvaða ríki er tekið sem sögulegt dæmi,
hvort heldur Ungverjaland, Rússland eða
Frakkland.
Munið þið hvaða verknaði nazistar létu sér
sæma að drýgja á meðan Frakkland var
hersetið? Þið hafið séð í grafreitum
Pere-Lachaise og Ivry grafir franskra
manna, sem skotnir voru. Þið vitið hvað
gerðist á Mont-Valérien og í Vercors, þar
sem fallhlífarmenn Gestapo útrýmdu svo
mörgum föðurlandsvinum.
Hvaða munur er á gangbyltingarmönnunum
ungversku og nazistum? Einfaldlega sá,
að nazistar höfðu á sínum tíma náð
undirtökum á Frakklndi og ungversku
gagnbyltingarmönnunum hafði mistekizt að
ná völdum í Ungverjalandi.
Okkur virðist, að á þessum erfiðu dögum
hafið þið lagt trúnað á rógburð, lygar
og illviljaðar upplýsingar, sem dreift hefur
verið í Frakklandi um vini
Ráðstjórnarríkjanna- Það var einmitt sömu
dagana sem þið birtuð yfirlýsingu ykkar
gegn okkur og kölluðuð á „sigur
sannleikans", að hermenn frá
Ráðstjórnarríkjunum hættu lífi sínu við að
bjarga tugum og kannski hundruðum
þúsunda mannslífa frá ógnum fasisma, sem
var að brjótast út.
Ef þetta hefði ekki átt sér stað, erum við
sannfærðir um, að eftir nokkurt skeið
hefðuð þið gefið út yfirlýsingu annarrar
tegundar — andmæli gegn blóðugri
ógnarstjórn gagnbyltingarmanna í
Ungverjalandi.
Eins og löngu er kunnugt hafa fasistar ekki
tilhneigingar til að sannfæra menn með
rökum. Þeir byrja á ræðum í Ríkisdeginum
og enda á líkbrennslum í Auschwitz. Um
ungversku fasistana er það að segja, að þeir
byrjuðu á að hengja fólk á götum
Búdapest og setja Bartholomeuskrossa til
merkis yfir húsdyr kommúnista. Þeir
byrjuðu á að myrða fólk þúsundum saman
og síðan tugþúsundum saman. Þeir víluðu
ekki fyrir sér neinar fasistaðferðir, allt frá
bókabrennum til gyðingaofsókna. Er það
tilviljun, að fasistar eyðilögðu í Búdapest
minnismerkið af Dimitroff? Nafn hans er
einkum tengt hinum sögulegu réttarhöldum í
Leipzig (réttarhöldunum vegna
þinghússbrunans. Þýð.), þeim djarflegu
svörrnn, sem þessi hugrakki og þá
varnarlausi maður hafði veitt fasismanum,
sem kominn var til valda í Þýzkalandi.
Fasistarnir þekkjast sem sé á ,,stimpilinum“,
og þegar þeir brenna þjóðsafnið
í Búdapest og skjóta fólkið, sem reynir að
slökkva eldinn, þá er auðvelt að þekkja
„stimpil" fasistanna, hinna ungversku
lærisveina Hitlers og stríðsfélaga Horthys.
Þannig var ástandið, þegar leiðtogar okkar
ákváðu fyrir tilmæli byltingarstjómar
verkamanna og bænda í Ungverjalandi að
veita Ungverjalandi hernaðaraðstoð í
baráttunni við gagnbyltinguna-
Þetta var gert í ömggri vissu um það, að
„afskiptaleysi", hefði leitt til þess að bæði
við og þið hefðum orðið vitni að því, að í
miðri Evrópu væri risið upp hefnigjamt
fasistaríki.
Skiptir það ykkur engu að vita í nafni hvers
hermenn Ráðstjórnarríkjanna hindruðu
framrás gagnbyltingarmanna ?
47