Birtingur - 01.01.1957, Blaðsíða 67
minnsta kosti eins mikið og verið hefur.
1 byrjun þessa árs varð gífurleg hækkun á
pappír (öðrum en dagblaða- og
glæparitapappír), og þegar þetta er ritað
hafa prentarar nýlega sagt upp samningum.
Er því sýnt að útgáfukostnaður eykst
verulega á þessu ári. Birtingur er í raun
eign áskrifendanna, því að tilvera hans
byggist á að þeir séu fúsir að greiða hann
því verði sem útgáfan kostar- Við komumst
þess vegna ekki hjá að ihækka árgjaldið
um tuttugu krónur, en eftir sem áður er
Birtingur ódýrt rit borinn saman við annað
prentað mál, og mun það sannast enn
betur í jólakauptíðinni, þegar nýjar bækur
koma á markaðinn.
Vegna nýrra kaupenda skal þess getið, að
enn er hægt að fá við áskriftarverði 3. og 4.
hefti Birtings 1955 á 15 krónur hvort
hefti og 1.—4. hefti 1956 á 20 krónur hvert
hefti. — Islendingar hafa orð á sér fyrir
að vera dálítið tómlátir og svifaseinir á
stundum, og varfærni þeirra gagnvart
nýjungum í listum hefur orðið mörgu mætu
riti að aldurtila í frumbernsku: menn
hafa viljað sjá hvemig það spjaraði sig,
áður en þeir gerðust kaupendur — og beðið
þangað til ungviðið var búið að taka
andvörpin. Við gerðum okkur grein fyrir
þessu í upphafi, bjuggum okkur þess vegna
undir þolslund og höfum nú fengið sæmilega
þjálfun í þeirri íþrótt. En stundum kemur
seinlætið silakeppnum í koll, og svo fór um
þá sem gerðust ekki kaupendur að
Birtingi frá upphafi. Þegar síðast fréttist var
1. hefti Birtings 1955 komið í hundrað
króna verð hjá fornbóksölum, og 2. hefti
1955 mun vera álíka fágætt. Þessi tvö hefti
kosta því núorðið þriðjungi meira en
áskrifendur hafa greitt fyrir Birting allan
frá upphafi, og verður ekki reynt hér að
gizka á hvað í þau verði boðið á
bókauppboðum Sigurðar Benediktssonar að
nokkrum árum liðnum. — Upplag þeirra
sex hefta, sem enn eru fáanleg, er
mjög takmarkað og þess vegna ráð að afla
sér þeirra fyrr en síðar.
Fáeinir menn eiga enn ógoldið árgjald
seinasta árs, og má ekki lengur dragast að
greiða það af höndum. Með útkomu þessa
heftis fellur árgjaldið 1957 í gjalddaga.
Eru kaupendur úti á landi vinsamlega
beðnir að innleysa póstkröfuna strax þegar
hún berst þeim, en kaupendum í Reykjavík
treystum við til að borga árgjöld sín í
Bókabúð Braga. Verður ekki ofbrýnt fyrir
áskrifendum hve mikill léttir og sparnaður
væri að því, ef allir greiddu árgjöldin
ótilkvaddir, því að öðrum kosti neyðumst
við til að ráða innheimtumann, en laun
hans mundu nægja til að kosta útgáfu
heils heftis. Kysum við fremur að verja því
fé til bættrar og aukinnar útgáfu og
væntum skilnings kaupenda í þessu efni
sem öðrum.
*
Birtingur óskar lesendum gleðilegs sumars
og þakkar gott samstarf á liðnum vetri.
53