Birtingur - 01.01.1957, Qupperneq 81
en ég get ekki sagt ykkur nánar frá þessum áætlunum, því þær eru
strangasta hernaðarleyndarmál. Það eina sem ég get sagt ykkur
er að þær f jalla allar mn töku Grænlands, okkar gömlu nýlendu.
Ég hef hér nákvæmustu upplýsingar sem völ er á um hafnir og aðra
staðhætti bæði þar og í Færeyjum. Meir en þúsund vélritaðar
heilarkarsíður, auk uppdrátta og korta. Öll frístundavinna mín í tíu ár,
unnin á meðan aðrir skemmtu sér við vín og konur. Þið getið hugsað
ykkur mig sitja yfir þessu langt fram á nætur uppi í loftkompu minni,
óþekktan mann með hrikalega herstjórnarhæfileika sem aldrei hafa
fengið að njóta sín. Það er alltaf þannig sem grundvöllur er lagður að
miklum atburðum í heimssögunni! (þögn) Þið munuð hafa tekið eftir
að ég nefndi Færeyjar? Hernám Færeyja er fyrsta skilyrði þess að
við getum hafizt handa á Grænlandi. Þetta er mín kenning, drengir,
rökstudd og sett hér fram á ljósu máli af mér sjálfum. (þögn) En
við förum ekki í stríð alveg formálalaust, ef þið haldið það, nei, ónei. öll
stríð þurfa nákvæman undirbúning. Fyrst þarf að stappa stálinu í fólkið og
gefa því hugsjón og siðferðisstyrk. Það þarf siðferðisstyrk til að fara út
í stríð, vinir mínir, mikinn siðferðisstyrk. Við mundum byrja á því,
að vekja athygli á líkránum dana á Grænlandi. Já, ég sé þið verðið
hlessa, en Isannleikurinn er sá, að í fimmtíu ár hafa danir verið að ræna
líkum úr íslenzkum kirkjugörðum á Grænlandi. Ég bið ykkur vel að
merkja, að þetta eru ekki beinagrindur, heldur lík. Það gerir
frostið í jörðinni. Og mundi nú ekki flestu íslenzku fólki fara að renna
blóðið til skyldunnar, þegar það heyrir þetta! Ja, hvað finnst
ykkur? Her okkar fær strax í upphafi það göfuga hlutverk að uppræta
þessa ósvinnu, þessa fótumtroðslu á grafhelgi íslenzkra manna og
kvenna, hinna einu og sönnu grænlendinga. Mundi ekki fylgja því
nokkur siðferðisstyrkur, ég spyr? Ætli við þyrftum mikið meira til að
fyllast hetjumóði! (þögn) Þið sjáið að það er ekkert smáræði sem þarf
að taka tillit til, þegar menn undirbúa stríð, og þar sem er her verður
alltaf að undirbúa stríð, hvort sem mönnum er alvara eða ekki, því
annans úrkynjast herinn og endar með að vera ekki meiri her en
Hjálpræðisherinn. Þetta er mín kenning! (þögn) Þetta er allt skrifað
hér og geymt í möppunni. Meir en þúsund vélritaðar heilarkarsíður!
(hlær lítið eitt) Þið farið nú að skilja að dönsku leyniþjónustunni þætti
ég feitur biti að ná í. (þögn) Ég sé að þið eruð dolfallnir yfir að ég
skuli hafa hugsað þetta allt. En það er af því að ég hef herstjórnargáfuna.
Já, þessa makalausu herstjórnargáfu, þótt enginn vissi hvað í mér bjó.
Ég fór líka vel með það og sagði það engum, því ég get verið þögull
eins og gröfin, þegar því er að skipta. En það er alltaf. erfitt að þegja
67