Birtingur - 01.01.1957, Síða 89

Birtingur - 01.01.1957, Síða 89
Um réttmæti heimspekilegrar tilgátu hefur aldrei náðst samkomulag meðal heimspekinga og stafar það fyrst og fremst af því, að ekki er til sameiginleg heimspekileg aðferð, sem allir heimspekingar viðurkenna. Er því ekki undarlegt, þótt heimspekikerfin séu sundurleit, enda telur einn það ágæta heimspeki, sem annar dæmir hæpnar staðhæfingar eða jafnvel merkingarleysu. (Hef ég hér einkum í huga ágreininginn meðal heimspekinga um heimspeki Hegels). Hafa því í heimspeki komið fram ýmsar stefnur, og ákvarðast mismunur þeirra aðallega af því, að fylgjendur hverrar stefnu beita mismunandi aðferð við rannsóknir sínar og byggingu kerfa sinna og líka af því að þeir ganga út frá ólíkum grundvallarsjónarmiðum á eðli málsins (þessu nauðsynlega tæki hugsunarinnar) og eðli veruleikans. Upp af þessum grundvallarágreiningi um eðli málsins er sprottin hin krítiska (gagnrýnandi) heimspeki síðustu áratuga, sem leggur megináherzlu á nákvæma merkingargreiningu. Hafa sumir jafnvel gengið svo langt að halda því fram, að merkingargreining sé hið eina, sem heimspekingum sé heimilt að fást við, því vilji þeir segja eitthvað um heiminn, sem vísindin geta ekki sagt, verði það orðin tóm, setningar, sem að vísu hanga saman í kerfi frá formrökfræðilegu sjónarmiði, en vanti allan staðreyndagrundvöll. — Þetta er mjög athyglisverð kenning, og er meiri sannleikur í henni fólginn en leikmann í listinni kann að gruna, og tel ég því meiri. nauðsyn að leggja áherzlu á þetta sjónarmið, sem mér er vel ljóst, að fólk, sem er lítt þjálfað í sértækri eða abstrakt hugsun, hefur sterka tilhneigingu til að álíta djúpa speki hvers kyns háfleygan orðaflaum. Það eins og sefjast af hinum fögru orðum, sem það er orðið vant, og dettur ekki í hug að taka gagnrýnandi afstöðu og spyrja hinnar einf öldu spurningar: Hvað áttu við? Nú mætti ætla, að ég væri hér fyrirfram að gefa í skyn, að skoðanir eða kenningar dr- Helga Péturs séu merkingarlitlar eða jafnvel merkingarlausar. En því fer víðs f jarri og væri misskilningur að halda það. Ég hef aðeins bent á nokkur atriði, almenns eðlis, sem ég tel nauðsynlegt að hafa í huga sérstaklega við lestur heimspekirita. Þessar athugasemdir leggja engan fordóm á ritsmíðir dr. Helga, enda væri slíkt mjög óheimspekilegt, en þær gætu kannski orðið einhverjum til leiðbeiningar, sem hefur fullan hug á að skilja, hvað höfundur Nýals er að segja, í stað þess að trúa því sem hann segir án nákvæmrar rannsóknar. Mun ég nú leitast við að gera nokkra grein fyrir því, sem ég tel vera grundvallarkenningar eða skoðanir dr. Helga eins og þær eru settar fram í Nýal (sem kom út í þrem heftum árin 1919, 1920 og 1922. Ég fæ ekki séð, að hinir seinni Nýalar: Ennýall, Framnýall, Viðnýall, Sannýall og Þónýall auki nokkru, sem máli skiptir, við þær undirstöðuskoðanir, þann grundvöll, sem lagður er í Nýal). Heimsfræði og heimspeki dr. Helga er fyrst og fremst að finna í fyrsta hefti Nýals, sem hann kallar „Hið mikla samband“. Æskilegt væri, að höfundur hefði þegar í þessari ritgerð gert nánari grein fyrir þeim lögmálum, sem hið mikla samband byggist á, greint rækilegar frá þeim rannsóknum, sem leiddu til uppgötvunar þessara lögmála, fært öll þau rök fyrir þeim, sem hann 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.