Birtingur - 01.01.1957, Page 100

Birtingur - 01.01.1957, Page 100
þungum sjó þá skipti það engu máli, nema hvað hann var á landinu og mátti brotna, en hann var síður en svo í ætt við stafina mína og ljósbrotin sem urðu tryllt af gleði og brutu öll lögmál þá stund: Súgur var f rá stöfum sem hófust upp af jörðu og fóru til hrafnanna. Þar áttu þeir heima! Þar áttu þeir nú aldeilis heima, hvítir, meðal hrafna! Þeim var þyrlað af vængjum hrafnanna og reikuðu meðal þeirra að gamni; en hryggur minn var í ferðatösku manns sem lifði á kaupum og sölu, kaupum og sölu. Ég fann að ég var á ferð. Ég fann að ég sniglaðist áleiðis að vatninu, framhjá nokkrum skýjum, sem voru að sjá eins og bómull, þess fullviss að ef leitað yrði á mönnum kæmist upp að þeir eru skrítnir. Ég þóttist vita að þeir væru að þefa hver af öðrum og bíða: Hvað skyldi hann segja og hvað skyldi hann gera, he ? Og hver hugsar að hinn sé ekki í lagi og hinn hugsar að hver sé ekki í lagi þótt enginn viti í raun og veru hver hinn eða hver eru. Þess vegna gat ekki verið nein skömm að leyfa stöfum að draga sig þótt þeir væru berir. Stafir eru bestir í heimi tra la la la la la. Stafir eru bestir í heimi tra la la la og la. Við komumst ekki að vatninu fyrr en um lágnætti. Ég lét mig engu varða þótt ferðin gengi hægt en dró að mér kelduilminn af því ég var þyrstur, en hann minnti mig á vatn; en leirinn þvoði augnalok mín sem voru nýkomin út úr bókasafni frá síðasta vetri. Ég man ekki hvort ég hugsaði þessa stund, en mér leið mjög vel. Mætti segja mér að hugsanir mínar hafi ekki komist öllu lengra en að sefgrösunum við tjörnina; og þótt einhver hefði komið til að bola mér frá tjörninni hefði ég sjálfsagt haldið mér 1 grösin með kjafti og klóm því að öllu var gaman. Hendur mínar voru einar að verki, en augu mín höfðu sokkið í vatnið og lituðust um. Ég man að vatn var í vitum mér, og það var líka í grennd við mig, nóg af vatni, mold og litlum trjám sem ég veit ekki hvað heita og stendur á sama af því þau voru hjá mér. Það voru bara hendur mínar sem héldu. Það voru bara hendur mínar sem gerðu eitthvað. Það var bara höndum mínum að kenna ef eitthvað var einhverju að kenna. Það var bara höndum mínum að kenna ef eitthvað var einhverju að kenna. Það voru bara hendur mínar sem héldu. Það var bara þeim að kenna ef eitthvað var einhverju að kenna þótt það sé ekki víst því ástin var til, 1 vitum mér og augum. Ég hugsa að líkaminn hafi ekki loðað við mig lengur, grár, meyr og afbrýðisamur. Ég hugsa að hann hefði farið niður í flæðarmál ef ég hef ði sagt honum það og látið brimið afmá glæpsamlegt eðli sitt, hvítnað í sandinum og eyðst. En á þessari stundu var hann forvitinn. Þá var það að mér vaknaði sá grunur, eftir að hafa ekki hugsað neitt um stund, að ég hafi einhvern tíma horft í vatni. En smám saman sannfærðist ég um að ég hafi einungis orðið þyrstur í húsi: í borg: við glugga: þyrstur þótt ég hafi drukkið af öllu þreki: Ógnsár þorsti hafði eitt sinn snúið mér 1 hringi við glugga og knúið hjálparvana hugann til að viða að myndum frá liðnum tíma, kvalinn hrakist um týnda daga í leit, að lokum róast: Að lokum var bytta með svörtu sulli allt sem þurfti: nóg til að hugurinn færi út í kuldann og hresstist, langt burt í f jarlægð þar sem vatnið var. Það var enginn vafi að blekið hataði mig ekki, en það var ekki mikið blek sem ég átti í stórri borg. Það var enginn vafi að ég hafði séð blek svífa við gluggann. Hvort ég sá það ekki bera við hvítan himin 86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.