Birtingur - 01.01.1957, Page 106

Birtingur - 01.01.1957, Page 106
hlotið hið mesta lof stéttarbræðra hans og hann raunar tekið þátt í því hrósi, þó allir, sem séð hafa, telji sýninguna leikafrek, og leikritið, sem um er að ræða, sé viðurkennt verk. Hvert er nú orðið hlutverk leikdómara? Er það bara að hampa gamanleikjum ? Er það fólgið í því að ráða fólki frá að sækja sýningar, sem listrænt gildi hafa? Er það bara að skrifa eins og fólkið vill að þeir skrifi, er það bara að láta smekk og vilja f jöldans segja sér fyrir verkum? Nei, ekki einu sinni það. Því á hverri sýningu í Iðnó á verki þessu hafa áhorfendur mjög óspart látið hrifningu sína í Ijós. Fólki geðjast því að sýningunni, en leikdómarinn vill ekki að það sæki hana. Af hverju? Þó það sé staðreynd, að f jöldi landsmanna þekki leikritið af endurteknum flutningi í útvarpi, skýrir hún aðeins tregðu fólks til að sækja sýninguna í upphafi, en réttlætir síður en svo afstöðu leikdómarans, og er forráðamönnum Leikfélags Reykjavíkur engan veginn til hnjóðs. Eða er ekki Gullna hliðið sýnt á nokkurra ára fresti hér í bæ og víðar, þó svo til allir þekki verkið ? Og Skugga Sveinn? Og fleiri íslenzk verk, og ýmis verk góðra höfunda, gamalla sem nýrra, úti um allan iheim? Ekki réttlætir það heldur viðbrögð leikdómarans, þó ásamt með Browning-þýðingunni væri sýndur eftir Saroyan stuttur einþáttungur, sem ekki féll honum í geð. Þó þátturinn sé haglega saminn er hann mjög framandi okkur íslendingum og missir marks hjá öllum þorra manna, en hann er ekki aðalviðfangsefni kvöldsins, og er raunar mikils hróss maklegur hvað sem almenningsvinsældum líður. Samtímis Browning-þýðingunni var í Þjóðleikhúsinu sýndur leikur eftir Huxley, Brosið dularfulla, þar sem Inga Þórðardóttir og Haraldur Björnsson unnu tvö minnisstæð leikafrek. Leikdómarar fundu því mjög til foráttu, að heimspekilegra vangaveltna höfundar gætti þar um of. Þar að auki hafði höfundur g'erzt svo óvarkár að leyna ekki morðingjanum þar til í síðasta atriði að hætti Agötu Kristí. Útkoma: Hugsun kom fram, það er forkastanlegt, reyfarabragur var ekki nægur, það er líka synd. Mig minnir þó að Guðmundur Kamban prédiki mjög í Marmara, og kunni fólk samt að meta hann. Sú spurning hlýtur að vakna, hvort leikdómarar hérlendir séu á eftir tímanum, á eftir listamönnum, jafnvel á eftir f jöldanum. Það er alkunna, að fleiri eru þeir höfundar sem vilja semja alvarleg verk, dramatísk og jafnvel tragisk, heldur en þeir, sem helga sig léttum skemmtiverkum. Þessir sömu höfundar neyðast þó oft til að skrifa gamanverk sér til framdráttar- Einnig er það alkunna, að fleiri eru þeir leikarar, sem betur geðjast að dramatískum hlutverlcum en hinir, sem heldur kjósa sér gamanmál. Svo rammt kveður að þessu, að jafnvel frá Hollívúdd, því höfuðbæli léttmetis og hismis, berast fregnir um það, að skemmtisöngvarar og dansmeyjar heimti nú að fá að leika skapgerðarhlutverk. En leikdómarar okkar eru nú alla jafna ginnkeyptastir fyrir gamanleikjum og försum. Þetta var nú út í hött, heldur svona. Þá er það orðatiltækið að leikur falli, sem nefndur leikdómari notar gáleysislega. Það er sannarlega annað en að leikur sé ekki sóttur. Leikur fellur, ef frumsýningargestir taka honum illa og leikdómarar finna honum flest til foráttu. Hvorugu var til að 90
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.