Birtingur - 01.01.1957, Page 109

Birtingur - 01.01.1957, Page 109
þverstæður lífsgátunnar reka endahnút á hvern ljóðþráðinn eftir annan. Þótt sú endurtekning geti orðið tilbreytingarlaus, er hún ekki til einskis, ávöxturinn er „1 draumi sérhvers manns“, fullkomin tjáning yrkisefnisins. Táknmál Tímans og vatnsins er hreint og sterkt og kliður kvæðanna heillandi, en verkið hefur ekki fengið nógu skýra heildarmynd, það er hin ófullgerða sinfónía Steins. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi: Ljóð frá liðnu sumri. Helgafell. Svo ergist hver sem hann eldist, skáldin því miður líka. Sá sem þetta ritar hefur aldrei haft tilhneigingu til að hefja Davíð til skýjanna, en mér hnykkti við að lesa þessa síðustu bók hans. Hinu góða, gamla skáldi dulúðugrar angurværðar, blossandi ástríðna, svellandi lífsnautnar bregður varla fyrir. I stað þess er kominn geðstirður nöldurseggur, sem finnst öllu vera að fara aftur, ástundar guðrækni meira af vilja en mætti og kastar höndunum til ljóðagerðarinnar. Mærðin hefur oft orðið Davíð hættuleg, og nú flóir skrúðmælgin yfir alla bakka. Bygging hvers kvæðisins af öðru fer í handaskolum, þau líkjast mörg glefsum úr rímuðu eintali án upphafs og endis. Ljóðmyndirnar rekast hver á annarrar horn. Hendingar, jafnvel heil erindi, eru innantómt orðagjálfur, þar sem hvorki finnst heil brú í hugsun né myndum: Dæm þú ekki, drottins kirkja, i drápur þær, sem fjöllin yrkja. eða Yfir fljót getur einhuga þjóð reist öfluga brú. En enginn skyldi í auðmýkt trúa annarra trú. Hvaða samband er milli brúarsmíða einhuga þjóðar og trúnaðartrausts á annarra trú? Úr hástemmdu orðskrúði detta kvæðin fyrirvaralaust niður á flatneskju einfaldasta hversdagsleika: Ef fræið dafnar og festir rætur, þá fyrst munu auðnirnar gróa. Þetta er nú speki, sem segir sex. Ekki er heldur lítils virði að vita að Hollum híbýlum berst hreint loft. Skáldið er sí og æ að ákalla guð sinn, en ekki geta trúarljóð þess talizt innileg. Það er ekki laust við sjálfbyrgingsskap 1 þessari hendingu: .... vitur maður treystir á drottins náð. Guð Davíðs virðist eiga í sífelldum útistöðum við skæða fjendur, og skáldið telur enga vanþörf á að veita honum lið:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.