Birtingur - 01.12.1961, Blaðsíða 14

Birtingur - 01.12.1961, Blaðsíða 14
í draumnum dansi dansi dúkkan mín að það er eins og hinar fínsprottnu taugar herpist við hið talaða orð og verði sén- eraðar í danglinu einsog hrosstaglið þeg- ar eitthvað heyrist dumpa á hinn kanís- gula frostmel — þetta fínstrengjaða taugaknippi veifast þá einsog til að láta sem ekkert hafi skeð: heyrðist mér nokk- ur vera að tala? Usssussu. Má ég biðja um músíkboxið og parfýmtánkinn góða. Þey þey, heyriði ekki þögnina. IV. Preludium ante post-festum: Skugga- Sveinn: Gloria in vacuum^ vade me -cum. Solo, sine arbiter: Kindur í kofanum jarma. Fyrrum tíðkaðist að leikkraftar þjóðar- innar reyndu sig í þessu einfalda alþýðu- leikriti, þar sem hver kynslóð leitaðist við í þáverandi nútíð sinni með virðingu fyrir fortíðinni að útvega framtíðargetu í stærri verkefnum. Annarsvegar þesskon- ar draumar um framvindu. Hinsvegar var einsog þjóðin sæi sjálfa sig í þessum leik enda gengu fulltrúarnir bókstaflega úr röðum fólksins, brugðu sér frá í brauð- stritsönninni til að leika Gvend smala og Grasa-Guddu og rámasti bassinn var sett- ur í að sýna þann svarta útilegumann og þétta svip þjóðsögunnar og hneppa í efni. öll þau börn sem fóru í fyrsta sinn í leikhús og gátu ekki sofið fyrir Skugga- Sveini! Nú hefur öll þessi fyrirhöfn verið úr- skurðuð óþörf með því að vitna í Shakes- peare í yfirburðum kunnáttunnar: Much ado about nothing. Þessi úrskurður gildir um alla fyrri tilburði átaksins. Þjóðskáld- ið, þjóðlífsmyndin, þjóðtrúarævintýrið, samþykki áhorfenda. Allt var það fánýtt, sagnaáráttan úrelt andspænis tónaglað- klakkinu, orðið andspænis bofsinu. Jólasýning Þjóðleikhússins var hámód- erne einsog gluggasýning með rafmagns- jólasveinum sem geta spilað tólf jólalög meðan mannleg hljómsveit leikur fimm. Hún bar öll einkenni síns undirbúnings- tíma: kauptíðarinnar fyrir jólin og yfir- gnæfði það viðhorf sem kemur fram þeg- ar fólk pantar að hafa jólin hvít. Til að falla ekki í þá gröf að fara að leika sam- kvæmt hefðinni og til að hriiida frá sér kröfunni um hefð var ekkert tækifæri ó- notað til að upphefja greinarmun á tíma og ótíma með söng. Hvar voru nú öll þessi gömlu lög sem þjóðarhjartað var að burðast með frá því við lærðum þau börn? Hér var engin bernska viðurkennd nema síbernska sem kemur ekkert hjartanu við. (Heldur kem- ur að ofan.) Nú var nýr dagur risinn. Til að það færi ekki framhjá neinum var brugðið á það i’áð að leikhússtjórinn talaði við bróður sinn í útvarpinu sem er bókmenntaráðu- nautur hans hæfilegur og stjórnarformað- ur auk þess að vera að embætti bók- menntaráðunautur hjá sjálfum sér þegar hann er sjálfs sín: Ekki vænti ég við mættum fá lánaðan manninn úr morgun- leikfiminni hjá yður. Því miður gleymdi sá hljóðnemanum sín- um í fimleikasal útvarpsins svo að það var ekki gott að vita hvort maðurinn var að syngja hið hugljúfa: Geng ég fram á gnýpu, eða: Ó hve dimmt í dauðans dal. 12 Birtingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.