Birtingur - 01.12.1961, Blaðsíða 37

Birtingur - 01.12.1961, Blaðsíða 37
Énn höfum við skinið og ilminn. (León Felipe Camino: Deshaced ese verso . . .) Ein grundvallarhugmynd „nútíma“-listar var hugmyndin um hreina list. Eins og Sedlmayr hefur bent á er „hrein“ list einna helzt neikvætt hugtak. Hrein er sú list sem reynt hefur að hreinsa til, farga hinu og þessu, losna við hitt og þetta, þangað til ekki var hægt að fara lengra. En hrein list getur einnig þýtt sama sem óháð list, abströkt, list sem er sjálfri sér nóg. Að sjálfsögðu náði einnig slíkur hugsun- arháttur til skáldanna. Þau ætluðu einn- ig að hreinsa til, losa skáldskapinn við allt óskáldlegt. I líkingu við óháðu mynd- listina reyndu Futuristar og Dadaistar að svipta orð og' setningar merkingu, en „yrkja“ aðeins í merkingarlausum orðum eða atkvæðum. Mallarmé dreymdi um ó- háðan skáldskap, „construire un poéme qui ne contient que poésie“, en Valery komst bráðum að þeirri niðurstöðu að þetta væri ókleift, „construire un poéme qui ne contient que poésie est impossible“, því að, eins og T. S. Eliot sagði: „If you aim only at poetry in poetry there is no poetry either“. „Óháður“ skáldskapur er í raun og veru ekki til nema sem hugtak, en slíkt hug- tak er hættulegt sköpuninni, þar sem það felur í sér mótsögn. Maður skapar ekki lengur neina list ef maður hefur aðeins þann tilgang að skapa list. Hrein ljóðlist í þeirri merkingu er því ekki til. Maðurinn, orðin, merkingin, yrk- isefnin, allt þetta verður að vera með, til þess að hægt sé að tala um skáldskap. Þrátt fyrir þetta vilja margir kalla sig „hrein skáld“, og segjast yrkja „hreint“. Til að verðskulda slíkt nafn verður að nota orð, merkingar, líkingar, sem eiga rót sína í raunveruleilcanum, en h e f j a þau yfir hið daglega merkingar- svið, gæða þau nýjum merkingum, skáldlegum mætt,i sérstakri tilveru milli heima manna og hluta. Hrein ljóðlist er þannig erfið tjáning þess, sem kemur annaðhvort úr djúpi tilfinninga eða úr fylgsnum heil- ans, en hann er ekki beinlínis nakinn kveðskapur, heldur ranghverfur kveð- skapur. Ranghverfir eru hlutir í senn flóknir og einfaldir, en lausir við öll svik. Surrealisminn veitti sínum straumum í farveg hinnar hreinu ljóðlistar og einmitt á þessu svæði milli manns og hluta blómg- aðist og' kvíslaðist hann í leit sinni að hinu ókunna og undarlega. Surrealisminn í þjónustu hreinnar ljóð- listar gaf spönsku ljóðagerðinni fjögur stórskáld, hvert á sinn hátt, fjórar stefn- ur. En allar þessar greinar hreinnar ljóð- listar eiga sameiginlegan hinn surrealist- iska grundvöll: sjálfið hálfsokkið í undir- vitundina, uppreisnina gegn öllu óþarfa skrauti, mælgi, lélegum yrkisefnum, væmninni, ósannindum í ljóðagerðinni. öll þessi skáld eru erfið, torskilin, djörf. Þau eru einnig skáld sem lengi hafa leit- að, reynt, breytt um stefnu — um það verður skrifað á eftir þegar fjallað verð- ur um skáldin hvert um sig — og hafa loks skilað okkur beztu ljóðum sínurn í Birtingur 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.