Birtingur - 01.12.1961, Blaðsíða 64
Til lesenda
Hér lýkur sjöunda árgangi Birtings réttum sjö árum eftir aö fyrsta hefti hans í núverandi bún-
ingi kom út í febrúar 1955. Árgangarnir hafa því nákvæmlega haldið áætlun, og aldrei hefur Birt-
irigur verið við betri heilsu en nú: mun stærra hefti en þetta er þegar fullsett og komið í press-
una. Eins og menn sjá er árgangurinn 1961 miklu fleiri síður en ráð er fyrir gert: ljóðaheftið sem
út kom snemma hausts fá kaupendur aukalega án endurgjalds. Er það reyndar ekki í fyrsta sinn
sem árgangur hefur orðið stærri en við er miðað í árgjaldinu: þeir hafa verið það allir sjö, og
nemur samanlögð umframútgáfa hátt í þrem heftum.
Birtingur hefur algjöra sérstöðu meðal íslenzkra tímarita að því leyti, að hann hefur engan millj-
ónung, engan ríkisstyrk, ekkert skipulagt lið, engaii lófaloðinn sérhagsmunahóp á að treysta. Hann
hefur jafnan staðið með íslenzku þjóðinni gegn óvinum hennar innan lands og utan með þeim
afleiðingum, að sum vestræn málgögn hafa naumast árætt að segja frá útkomu hans og efni (í
skrifuðum orðum er honum sendur hjálmtýskur tónn í Lesbók Morgunblaðsins), en stund-
um hafa dunið á honum uppsagnir úr austri af sömu sökum. Hann hefur aldrei hirt um
að dekra við atómljóðafjendur, abstrakthatara né handhafa neins konar annarra átoríseraðra sjón-
armiða. Við höfum aldrei haft fé til að auglýsa ritið, tíma né mannafla til að efla útbreiðslu þess.
Er, það er íslendingum til sóma, að þeir hafa skilið nauðsyn þesss að til væri þó eitt frjálst
tímarit á landi hér og tryggt útgáfu Birtings án eftirgangsmuna. En nú þarf að stórauka útbreiðslu
Birtings. Hingað til hefur megingildi hans verið í því fólgið, að hann hefur haft áhrif á tiltölulega
fámennan hóp, sem hefur áhrif á aðra. Hér eftir þarf Birtingur að komast fyrir augu a 11 r a sem
áhuga hafa á íslenzkum bókmenntum, íslenzkri menningu, íslenzku þjóðfrelsi. Þess vegna skorum
við á kaupendur Birtings að gera n ú þ e g a r skyndiáhlaup og sýna hug sinn til hans með því
a'e útvega einn nýjan kaupanda hver í þessari viku. Er hægt að tilkynna nýja áskrifendur í
síma 19933 eða skriflega til Birtings, Óðinsgötu 4.
Verðlagsþróunin hefur löngum leikið okkur grátt. Við höfum alltaf þráazt við í lengstu lög að
hækka árgjaldið, þó að dýrtíðarskrúfan snerist nótt og dag. Þess vegna höfum við jafnan orðið
ári á eftir og stundum tveim með þá tekjuaukningu, sem til þurfti að mæta vaxandi kostnaði.
Þannig hefur árgjald Birtings verið óbreytt frá 1959 þrátt fyrir gífurlega vel heppnaða viðreisn.
En nú getur ekki lengur við svo búið staðið. Við ætlum þó að freistast til að hækka árgjaldið
um aðeins 25 krónur í von um að velunnarar Birtings færi honum svo marga nýja kaupendur,
að verulegur tekjuauki fáist einnig að þeirri leið.
Við þökkum lesendum tryggð við ritið um liðna tíð og óskum þeim árs og friðar.
62 Birtingur