Birtingur - 01.12.1961, Síða 33

Birtingur - 01.12.1961, Síða 33
einurð í vitfirrtri leit sinni að „hreinleik- anum“ og féllu þannig í vonlausa sjálf- heldu fagurkerastefnunnar (esteticismo), list listarinnar vegna (ars gratia artis) ... Pereat mundus, fiat ars. Aðeins tvær þessara stefna skildu eftir sig lifandi kveðskap á Spáni. Þær voru Ultraisminn (ultraísmo), sem lifði aðeins 1919 til 1923, og Surrealisminn (super- realismo), sem var langlífari; ferill hans hófst 1923—1925, hann náði hámarki sínu 1928, hvarf af sjónarsviði 1930 fyrir gagnsókn andbyltingastefnanna, en birt- ist aftur í nýjum þríþættum búningi 1935 og er enn við lýði, þó stjarna hans sé ef til vill aðeins farin að lækka. Ultraisminn (E1 Ultraismo) í dýflissu skáldsins eru veggirnir eins og sáld. Dýflissa eða búr, Guð hlustar en opnar aldrei dyrnar. Kaðalstigar, sálmar, þjalir, bænir, bölbænir sem þið skilduð eftir handa okkur, gömlu fangar, eru okkar andlegu spor. í dag þegar flugvélarnar hafa sungið yfir svölum okkar ofan úr símjúkum greinum loftsins og sólin — hin gamla spík himinsins andspænis reikandi dögum — er eins, höfum við gert okkur gogga úr stáli til að særast ekki á rimlunum. (Juan Rivas Panedas: La cárcel del poeta . . .) Hinn 19. febrúar 1919 birtist í Madrid- blöðunum grein með fyrirsögninni: „UL- TRA, stefnulýsing, til handa bókmennta- elskandi æsku” (ULTRA, manifiesto a Ía juventud literaria). Þó er í stefnuskrá þessari frekar lýst yfir stefnuleysi með orðurn eins og þessum: „Bókmenntir okk- ar verða að endurnýjast, sækja stöðugt fram, en undir okkar fánum rúmast allar stefnur undantekningarlaust, svo framarlega sem þær túlki nýja viðleitni. Seinna munu allar þessar stefnur öðlast karna og útskýra sig sjálfar." Þar með opnaðist flóðgáttin, ráðizt var gegn öllu, gegn öllum skáldum, e. t. v. að J. R. Jiménez einum undanskildum. Ultra- isminn greip alla, eins og faraldur eð'a öllu heldur umturnaði öllu, braut allt, fór eins og jarðskjálfti um byggð. Ultraism- inn var . . . „loftræsari sem trylltist í loft- lausu andrúmslofti" . .. „að segja allt það, sem ekki má“ .. . „hin ævarandi æska hins andlega“ . . . „lestin, sem brun- ar í sífellu: maður á að stíga inn eða út á meðan hún er á ferð“ . . . „froskurinn loðni“ . . . o. s. frv., samkvæmt skilgrein- ingu sinna eigin dýrkenda. 1 heild var ultraisminn aðeins ný leit, djörf leit að nýjum gæðum; til þess gerði hann uppreisn gegn hefðbundnum venj- um, og hann miðaði að tvennu eftirsókn- arverðu: hreinni ljóðlist (poesía pura) og nýjum táknleiðum. Hann drap niður mærðina og væmnina í postmodernistun- um. Umburðarlyndi ultraismans leiddi í ljós nýja möguleika, áhugi hans var sí- fágun, síendurnýjun. En hann hafði einn- ig augljósa galla: hann skorti bjartsýn- ina; hann óraði aðeins fyrir mörgu, sem hann gat aldrei náð; hann skorti ljóðræna hæfileika, lýrisku gleðina, ró hins full- komna forms, samræmi efnis og hrynj- Birtingur 31

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.