Birtingur - 01.12.1961, Page 45

Birtingur - 01.12.1961, Page 45
ósköp eru þær óþesslegar aö vera sprottnar af umtalsverðri reynslu. Eitt dæmi af mýmörgum: í öðru bindi segir á einum stað í nokkrum línum af heim- sókn til Tarjei Vesaas, sem síðar gerðist einn af fremstu skáldsagnahöfundum á Norðurlöndum; þeirri frásögn er skeytt í kafla þar sem segir á viðlíka mörgum síðum af viðureign við selstúlkur sem sækja í að spilla skírlífi Kristmanns. Þetta dæmi segir sitt um efnishlutföll í ,,sögu skálds“. Allvíða segir Kristmann af menntunarviðleitni sinni og lestri, einkum í heimspeki og bókmenntum, telur sig meira að segja einhvers staðar hafa les- ið flest það sem máli skiptir í heimsbók- menntunum, enda hefur hann síðar ritað ,,heimsbókmenntasögu“ allfræga. En hér gegnir sama máli og fyrr: kynnin af heimsbókmenntunum verða skáldinu ekki frásagnarverð í ævisögu frekar en menn- ingarstraumar samtímans. Enn gegnir sama máli um æskuár hans heima fyrir, og er það þó hræringasamur tími í ís- lenzkum bókmenntum, en Kristmann þá ungur og upprennandi. Þá sem endranær stendur hann utangátta við strauma sinn- ar tíðar, virðist lifa í eigin heimi ærið þröngum og telur fæst frásagnarvert sem ekki er honum nákomið persónulega. Sam- kvæmt því fjallar „saga skálds“ að meg- inefni um margháttað stúlknastand og kvennamál Kristmanns annars vegar, andlega viðleitni hans, hulduheimaskipti og sjálfsleit hins vegar, og eru þessir þættir raunar samofnir. Um þessi efni er margt á huldu að vísu, enda leysist frásögnin löngum þegar sízt skyldi upp í heldur óljósan orðareyk. Kristmann vott- ar að vísu skilmerkilega að hann hefur frá öndverðu ríkan metnað og vilja til skáldskapar, en hitt er torskildara af hverjum jarðvegi þessi skáldskaparvilji er sprottinn eða hversu hann þróast. Þar um kann ævisagan að vera nokkur heim- ild, en þá nánast með óbeinum hætti. Eins og fyrr segir verður nokkur brota- löm á ritferli Kristmanns um þær mund- ir sem liann hverfur heim eftir Noregs- vistina. Sjálfur telur hann dulin rök knýja sig til heimferðar, á Tslandi hljóti hann að heyja hildarleik við örlög sín í stað þess að hvíla í hægum sessi erlendis við frægð. Hann nemur framtíð sína af völumunni í Búdapest: armóð, basl, róg og andstöðu í föðurlandi sínu á fyrsta og þriðja skeiði ævinnar, heimsfrægð og fé ærið erlendis þar sem hann mun dvelja að mestu annað og fjórða æviskeiðið, „síðast langt í vestri — gróðurmikið land — eilíft sumar — stórt haf — og þar muntu deyja í hárri elli — áttatíu og fjögurra ára eða meir.“ „I starfi þínu muntu ná því hæsta, sem hægt er að ná,“ segir honurn völvan, en „það hæsta er ekki alltaf mest í heimsins augum, uro- iim“. Ekki skal ég leiða getum að því hvort þessi orð og annað örlagatal í ævisög- unni lýsa skoðun Kristmanns sjálfs á lífsferli sínum, en hitt er víst að ærins tvískinnungs gætir hjá honum þar sem hann ræðir um eigin verk. Honum verður tíðrætt um frægð sína sem hann ítrekar þó jafnan að ekki sé sér nema hismi og hégómi, kveðst m. a. hafa eytt öllu tali áhrifamikilla aðdáenda um Nóbelsverð- Birtingur 43

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.