Birtingur - 01.12.1961, Qupperneq 46

Birtingur - 01.12.1961, Qupperneq 46
laun sér til handa. 1 öðru orði talar hann um sölu bóka sinna í milljónum eintaka og vinsældir víða um heim, í hinu telur hann þær torlesnar og lítt við almenn- ingshæfi. Þessi síðari skilningur virðist honum þó sýnu meir að skapi, enda and- leg stórvirki, „það hæsta, sem hægt er að ná“, meira ágæti en veraldarfrægð og vinsældir. Þannig freistar hann stundum túlkunar á verkum sínum sem kemur ó- breyttum lesanda þeirra spánskt fyrir sjónir, svo sem þegar hann kallar sögu sína, Helgafell, „sálfræðilegt bókmennta- verk um landnám Islands og fæðingu ís- lenzku þjóðarinnar, byggt á sögulegri og sálfræðilegri rannsókn“. Þessi skilningur finnst manni torfenginn af bókinni sjálfri sem ekki sýnist annað en læsilegur og dá- lítið reyfarakenndur róman frá víkinga- öld blandinn angurværri rómantík og ör- lagatrú. Og ekki tekur betra við þegar hann býður lesendum þann skilning á Gyðjunni og uxanum að þar sé reyndar í skáldskaparlíki „tilraun til að skýra úr- kynjun menningarkerfis, sem komið er að endalokum sínum“. Nú er hverjum höf- undi að sjálfsögðu frjálst að leggja þann skilning í verk sín sem honum sýnist, — rétt eins og iesandi þeirra nýtur að sínu leyti sama frelsis. Hitt er hálfbágt að sjá fullorðinn og góðkunnan höfund lýsa því yfir upp úr þurru að hann hafi í önd- verðu ætlað sér að skrifa allt aðra bók en hann hefur skrifað — og mistekizt það. Sú skoðun mun ekki ótíð að það sé á ein- hvern hátt með öllu forkastanlegur at- vinnuvegur að gera einfaldar, alþýðlegar skemmtisögur, bækur sem eru miklum fjölda fólks nothæf neyzluvara án þess að gera tilkall til að leysa lífsgátur eða fjalla af móði um hinztu rök. Þó geta slík verk verið að sínu leyti ágætar bæk- ur, og í flokki þeirra finnast einnig verk sem tvímælalaust má telja til alvarlegra bókmennta; hitt er meira álitamál hvort nokkru sinni hefur verið samin góð skáld- saga sneydd skemmtunargildi. En æski- legt mun, ef vel á að farnast, að höf- undar geri sér nokkurn veginn grein fyr- ir hvað þeir eru að fara í skáldsmíð sinni, og þar verður misbrestur á um Krist- mann ef marka má skýringar hans nú á fyrri verkum sínum. Þessi andkannalega kenning, sem getið var, virðist sem sé hafa smitað yfir á hann, a. m. k. gerir hann sér ærið far um að lýsa alvöru sinni í listviðleitni og hefur á stundum mörg orð um ábyrgð og hlutverk rithöfundar- ins: „Ég leit í anda þessar milljónir mannssálna, er orð mín höfðu snert,“ seg- ir hann á einum stað, „og það fór um mig eins og rafmagnslost, hvílíkur á- byrgðarhluti það er að sá fræi sínu í slíkan akur. Einhvern tíma hlaut maður að standa skil á lánuðu pundi og verja verk sín fyrir þeim dómstóli, sem ekki verður glapin sýn. Það er ægileg misgjörð að sá illgresi í huga mannanna, en einnig stórkostlegt tækifæri að geta ræktað þar fagran gróður, sem gerir heiminn betri.“ Þetta uppeldishlutverk er sem oftar að vefjast fyrir honum um þær mundir sem hann hefur lokið Lampanum en er með Gyðjuna og uxann í smíðum. Honum er ljóst að hann þarfnast endurnýjunar sem rithöfundur, og þótt hann sé „sem iyrr“ ákveðinn að „vinna einungis í þjónustu 44 Birtingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.