Birtingur - 01.12.1961, Page 51

Birtingur - 01.12.1961, Page 51
hér segi af hégóma einum og kukli, og guðsleitin sé mestmegnis vanmáttug í- myndun. Það er þetta þróttleysi, getu- leysið að gæða lífsreynslu sína lífi og lit, sem veldur mestum vonsvikum af „sögu skálds“. Iiér skal engum getum leitt að því hvað valdið hafi skipbroti Kristmanns Guð- mundssonar á rithöfundarferlinum. Á einni örstund óvenjulegrar sjálfskyggni segir hann að hann hefði betur haldið áfram á þeirri braut sem mörkuð var með Morgni lífsins, „skrifað bækur fyrir almenning, bækur, sem ég ætlaðist til, að seldust vel og yrðu vinsælar“. Þetta er ugglaust rétt hugsað, og þá hefði Krist- mann trúlega skrifað betri bækur en raun hefur orðið á hin síðari ár. Hinar fyrri sögur hans búa óneitanlega yfir ýmsum góðum kostum, á ytra borði að minnsta kosti, og manni finnst að þeirra hefði hann getað notið betur með vaxandi þroska og þjálfun. En óneitanlega vekur ævisagan vissa tortryggni. Kristmann virðist með öllu sneyddur félagslegum skilningi og jafnvel áhuga. Hitt er þó verra að mannskilningur hans og margum- töluð sálfræðikunnátta eru fádæma ein- hliða og grunnfær. Tilfinning hans virðist öll yfirborðsleg og jafnvel ósönn, hugsun- in ristir hvergi djúpt, og listrænn þróttur bregzt honum þegar frarn í sækir, átökin við mál, stíl og efnivið verða ósköp lin- leg. Manni býður í grun að list hans hafi frá upphafi skort kjölfestu þrátt fyrir nokkra skjótunna sigra í fyrstu, og flótti hans inn í trú á „örlög“ sín og aðra hulduheimspeki verður sízt til að hamla gegn þeim grunsemdum. Þannig verður „saga skálds“ með nokkrum hætti bauta- steinn Kristmanni Guðmundssyni, lok þjóðsögu, þótt það muni sízt vaka fyrir honum sjálfum. Kristmann Guðmundsson: ísold hin svarta. Saga skálds. Bókfellsútgáfan, Reykjavík 1959. Dægrin blá. Saga skálds. Bókfellsútgáfan, Reykjavík 1960. Loginn hvíti. Saga skálds. Bókfellsútgáfan. Reykjavík 1961. Birtingur 49

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.