Birtingur - 01.12.1961, Síða 53

Birtingur - 01.12.1961, Síða 53
En ég er hvorki lengur ég sjálfur né húsið mitt mitt hús lengur. — Vinur, mig langar að deyja virðulega í rúmi úr járni, og helzt af öllu við rekkjuvoðir úr líni. Sérðu ekki sárið á brjósti mér uppað barka? — Þrjúhundruð brúnum rósum er þakin hvíta skyrtan. Blóð þitt vætlar og lyktin umlykur mittislindann. En ég er hvorki lengur ég sjálfur né húsið mitt mitt hús lengur. — Leyfðu mér aðeins að koma uppá veröndina háu, leyfðu mér, leyfðu mér upp á veröndina grænu. Mánaveröndina litlu þar sem vatnið niðar. Svo ganga félagarnir uppá veröndina háu ag skilja eftir blóðferil, skilja eftir slóð í tárum. Litlar blikkluktir \ skulfu á húsþökunum. Þúsund kristalsbjöllubumbur stungu morgunsárið. Grænt, hve ég elska þig, grænt, græni blær, grænu greinar. Þeir gengu saman tveir. Andlangur vindurinn skildi eftir í munni annarlegt bragð af galli, myntu og kryddjurt. — Vinur! Hvar er hún, seg mér, hvar er biturðhaldna stúlkan? Hve oft hún beið þín, Birtingur 51

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.