Birtingur - 01.12.1961, Side 63
um sjötta hluta þessa upplags; og seig
þá heldur brúnin á Ólafi vini mínum og
afgreiðslumanni Jónssyni, sem meðal ann-
arra orða er að kafna í lagernum sínum.
En ekki nóg með það. Þegar bóksalar fóru
að telja saman bækur sínar um áramótin,
þá kom á daginn að þeir sátu uppi með
mikinn meiri hluta þessa sjöttungs óseld-
an. Hafði bókin dáið svo rækilega í búð-
unum hjá þeim, að þeir endursendu flestir
öll óseldu eintökin — töldu óþarft að hafa
slíka vöru á boðstólum. Eftir því sem ég
veit bezt, liggja um fjórtán fimmtándu
hlutar af upplagi Foi’setabókarinnar ó-
seldir í birgðaskemmum menntamálaráðs.
Af þessum eina fimmtánda parti keypti
forsetaskrifstofan sjálf dálítinn slurk; og
vona ég hún hafi fengið þann afslátt, sem
hana langaði til. Ég endurtek: ennþá einu
sinni þekkti íslenzka þjóðin ekki sinn
vitj unartíma. Er svona fólki yfirleitt við
bjargandi?
Menntamálaráð hafði í hyggju að græða
stórlega á Forsetabókinni; mér skildist í
haust, að hún ætti að verða mesta sölu-
bók ársins — eins og maklegt hefði verið.
En þessar ráðagerðir hafa altso farið út
um þúfur; ráðið situr uppi með stórfellt
fjárhagslegt tap. En hér er þó mikil bót
í máli, að mínu viti. Ég álít nefnilega, að
það eigi ekki að græða á merkilegum
bókum. Menningarafrek, hvert sem það
er, verður jafnvel þeim mun ljósara og
ótvíræðara sem það gefur minni pening
í aðra hönd. Útgáfa Forsetabókarinnar er
eitt þeirra stórvirkja, sem bera laun sín
í sjálfum sér; og það væri þarflaus til-
ætlunarsemi að heimta fyrir það önnur
laun að auki. Mergurinn málsins er ekki
sá að hafa upp úr menningunni, heldur
hinn: að kosta miklu til hennar. Mér sýn-
ist hallinn á Forsetabókinni vera ein
þeirra sælu fórna, sem öðru hverju þarf
að færa til að menning standi og þjóðlíf
blómstri. Og útgáfa hennar er ljóst dæmi
þess, hvernig ber að verja þeim ríkisstyrk
sem gat í upphafi þessa máls. Vitaskuld
á að nota ríkisstyrk til að heiðra ríkið
og höfðingja þess.
Fyrir nokkrum árum gaf menntamála-
ráð út myndabók, sem kallast Hestabók-
in. Nú kom Forsetabókin; og hefur ráðið
augljóslega fitjað hér upp á nýjum bóka-
flokki. Ég er strax farinn að hlakka til
Hænsnabókarinnar.
Bjarni Benediktsson.
Birtingur 61