Íslenskt mál og almenn málfræði


Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1983, Page 193

Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1983, Page 193
Ritdómar 191 Þar sem fjallað er um fornafnabeygingu hefði mátt draga betur fram líkindi hennar við lýsingarorðabeygingu. Þar sem talað er um þérun (bls. 104) er ekki kveðið nógu sterkt að orði um minnkandi notkun hennar. Einnig hefði mátt geta um í sambandi við nokkur (bls. 111) og einhver (bls. 112) að sá greinarmunur sem gerður hefur verið á notkun nokkurt/eitthvert annars vegar og nokkuð/eitthvaS hins vegar er mjög á undanhaldi. Þá er villandi að setja formin engan og öngvan o. s. frv. upp hlið við hlið; að vísu er sagt að „Die Formen öngvan usf. gehören der Umgangssprache an, schrift- sprachlich werden sie kaum verwendet“; en ég held að síðarnefndu formin séu líka að hverfa úr talmáli. Þá er við hlið nf. ft. kk. hverjir sett hverir, sem alls ekki er notað. Fornafnið manngi er ekki heldur notað í nútímamáli. Eitthvað er höf. hikandi í afstöðu sinni til tilvísunarorðanna sem og er. Hann segir (bls. 113): „Wie ein Relativpronomen fungiert die indeklinable Partikel sem • ■.“ Samt talar hann t. d. um „Relativpartikeln regierende Prápositionen ...“ (bls. 113), og segir að „Sem und er stehen fiir jeden Kasus des Singulars und des Plurals“ (113). Þennan tvískinnung er ekki hægt að losna við nema viðurkenna að sem og er séu tengingar, en ekki fornöfn, eins og Höskuldur Þráinsson (1980) hefur sýnt fram á. Flokkun sagna er hefðbundin; þeim er fyrst skipt í veikar sagnir og sterkar, og veikum sögnum síðan í fjóra flokka (1., 2., 3. og 4., sem svara til ja-, ia-, e- og ö- sagna). Sterkum sögnum er skipt í 7 flokka; í þeim sex fyrstu eru 1.-6. hljóðskipta- röð, en í 7. flokki eru tvöföldunarsagnir. Að auki koma svo núþálegar sagnir. Til að viðhalda tengslunum við fornmálið má líklega segja að þetta sé eðlilegt, en frá sjónarmiði nútímamáls mætti breyta þessari flokkun talsvert. A. m. k. mætti fella saman 2. og 3. flokk veikra sagna (heyra og þora)\ skilin þar á milli hafa ekkert gildi í nútímamáli. Þá finnst mér eðlilegt að gera ráð fyrir að í veikum sögnum af 4. flokki (kalla) sé -a hluti stofns. Með því móti verður bæði nf. et. og bh. þeirra reglulegur; ekki þarf að gera ráð fyrir sérstakri þátíðarendingu, -að-, ná telja það afbrigðilegt að -a sé ekki fellt brott í boðhætti. Flokkun sterkra sagna er alltaf vandræðamál, bæði í íslensku og öðrum germ- önskum málum; oft eru undantekningarnar sem þó eru taldar til hvers flokks jafn oiargar og sagnirnar sem beygjast reglulega eftir flokknum. Augljóst er að ekki verður komist hjá alimörgum flokkum; en ég vil benda hér á athyglisverða upp- stokkun Sigrúnar Þorgeirsdóttur (1982) á hinni hefðbundnu flokkun í nýrri B.A.- ritgerð. Annars held ég að best hefði verið að taka í einu lagi persónu- og töluendingar allra veikra og sterkra sagna. Munurinn er nefnilega ótrúlega lítill, og má setja um hann einfaldar reglur að mestu leyti (sjá Halldór Ármann Sigurðsson 1982). Að minnsta kosti hefði verið gott að fá á einum stað yfirlit yfir endingarnar. Ymis smáatriði má auðvitað tína til um sagnbeyginguna. Á bls. 115 er réttilega sagt að allar nýjar sagnir séu veikar; þetta hefði mátt þrengja meira, því að nær allar nýjar sagnir munu fara í 4. flokk veikra sagna. Þá hefði gjarna mátt gefa reglur um það (bls. 122) hvort ending lh. þt. veikra sagna af 3. flokki er -að- eða ■ð-; þótt undantekningarlausar reglur séu ekki til, er hægt að komast þar nokkuð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.