Vera - 01.12.1984, Síða 21
Jean Ishibashi, sem var á ferö hér í ágúst s.l., er af japönsku bergi
brotin. Hún ferðaðist um landið og sótti ráðstefnur um Friðarsam-
band Nörðurhafa sem haldin var hér. Hún var fulltrúi American
Friends Service Committee á ráðstefnunni.
Ég hitti Jean í önn dagsins og átti við hana eftirfarandi spjall um
starf hennar, stöðu kvennahreyfinga í USA og um friðarmál.
Jean er starfsmaður áðurnefndra samtaka, American Friends
Service Committee og ég bað hana að segja okkur eitthvað um
þessi samtök og verkefni þeirra.
..AFSC eru samtök kvenna innan
Kvekarahreyfingarinnar í Bandaríkjunum.
Kvekarar eru fyrst og fremst friðarsinnar
°9 í fyrri heimstyrjöldinni neituðu þeir að
Qegna herskyldu — Friður án réttlætis er
ekki sannur friður er okkar mottó svo frið-
arstarf tengist ekki aðeins stríði eða stríðs-
Ufidirbúningi, í því felst líka að koma á
mannúðlegra samfélagi. Kvekarar starfa
Því með öllum þeim hópum sem beittir eru
kúgun. Það er því eðlilegt að konur innan
Þreyfingarinnar taki þátt í kvenfrelsisbar-
áttunni. Fólk frá okkur vinnur ekki aðeins
' Bandaríkjunum. Við vinnum líka í þriðja
áeiminum. Við í AFSC vinnum fyrst og
fremst með þeim konum sem verst eru
settar og allt okkar starf miðar að því að
styrkja hóp þessarra kvenna, þannig að
Þær sjálfar geti tekið upp baráttuna — geti
sa9t valdhöfum sannleikann um kjör sín
°9 aðstæöur og krafist úrbóta.”
— Viltu lýsa þínu starfi nánar?
,,Já, ég vinn meðal fátækra þeldökkra
kvenna og barna í fátækrahverfum San
Fransisco. Ástandið þar er hræðilegt. Fá-
tækt og atvinnuleysi ótrúlega mikið. Að
sjálfsögðu er það ekki vegna þess aö
Bandaríkin séu fátækt land, heldur að fjár-
munirnir eru notaðir til vígbúnaðar og í
neyslu hinna ríku. Megin inntakið í mínu
starfi er að fá konurnar til að ræða þessi
mál, skilja samhengi þeirra og stöðu sína
útfrá því.
Ég nota öll tiltæk ráð til þess að ná til
kvennanna, t.d. með þvi að skipuleggja
barnagæslu, gera við þakleka, koma á
húsfundum þar sem málin eru rædd. Ég,
ásamt starfsmönnum annarra samtaka,
hef útbúið strætisvagn þar sem hægt er að
vélrita og fjölrita dreifiblöð og áskoranir.
Þar er líka aðstaða fyrir börn og fleira.
Vagninn hefur reynst vel sem útbreiðslu-
frá San Fransisco.
H,ÍH>aö