Vera - 01.06.2000, Side 22

Vera - 01.06.2000, Side 22
anna þar sem barist er fyrir mannréttind- um hvar sem er í heiminum, ekki bara í eigin þrönga hring. Eg tel líka mikilvægt að stjórnmálamenn festist ekki í hugmyndafræðilegum deilum um vinstri eða hægri. Slíkt skiptir kjósend- ur engu máli og hefur ekki sýnileg áhrif á möguleika fólks til að lifa góðu lífi. Einnig er hætta á því að stjórnmálafólk horfi ekki nógu langt fram á við, vinni einungis að afmörkuðum verkefnum. Akvarðanir sem hafa langtímaáhrif skipta hins vegar alla máli, það ættum við að hafa hugfast og vanda okkur þegar við tökum slíkar ákvarðanir." Þegar 18 ára stjórnartíð Margrétar Thatcher og félaga berst í tal hryllir Glenda sig og segir að það hafi verið skelfilegir tímar sem hafi haft hræðilegar afleiðingar fyrir fjölda fólks. „Samfélagið var í rusli þegar okkur tókst loks að sparka þeim úr ríkisstjórn 1997. Gífurlegt atvinnuleysi var viðvarandi, m.a. ur en þegar við tókum við þó það sé ekki orðið eins gott að það ætti að vera. Hjá Ihaldsflokknum réð markaðurinn öllu en um leið þurfti sumt fólk að sofa á götunni. Að þeirra mati var allur ríkisrekstur slæm- ur en allur einkarekstur góður. Helst hefðu þau viljað einkavæða alla heilbrigðisþjón- ustu og þau reyndu svo sannarlega að eyði- leggja skólakerfið. A þessum árum jókst fjöldi þeirra sem þurfti að treysta á velferð- arkerfið og ofurtrú á einkarekstur varð til þess að margir reyndu að starfa sjálfstætt en algengt var að það gengi ekki upp og fólk missti eigur sínur.“ Glenda ákvað að bjóða sig fram til þings árið 1992 og um líkt leyti hætti hún að leika. Fyrir kosningarnar tók hún þátt í að skipuleggja átak til að fjölga konum á þingi, Women into Parliament Week. Hún vann þingsæti í norð-vesturhluta London, Hampstead and Highgate, en þar hafði Verkamannaflokkinn ekki átt þingmann frá blandaði sér í þann slag. Eins og kunnugt er var Frank Dobson valinn fulltrúi flokksins en hann tapaði í kosningunum fyrir öðr- um félaga úr Verkamannaflokknum, Ken Livingston, sem bauð sig fram sjálfstætt. Glenda segir að það hafi verið stórkost- leg stund að upplifa kosningasigurinn 1997 en hún hafi ekki áttað sig á því fyrr en ári seinna þegar hún horfði á þátt á BBC um kosningarnar. „Eg var orðin svo þreytt eftir kosningabaráttuna og svo tók gífurleg vinna við þegar við tókum við landsstjórn- inni,“ segir hún. Og hvernig finnst henni að til hafi tekist? „Mjög vel. Kjósendur höfðu það alveg á hreinu hverju við lofuðum.Við tókum það margoft fram að við gætum ekki breytt ástandinu á einni nóttu. Við þurfum annað kjörtímabil og helst það þriðja. Kjörtíma- bilið er fimm ár og rennur því út árið 2002 en ég tel mjög líklegt að kosningar verði á næsta ári. Við stöndum ágætlega í skoðanakönnunum og ég tel að við eigum Mikilvægasti árangur okkar, að mínu mati, cr að okkur hcfur tekist að snúa frá því viðhorfi að manncskjan sé cinskis metin, cn það viðhorf fcstist í scssi á tímum Thatchcrs. Okkur hefur líka tckist að beina fé aftur inn í heilbrigðis- og mcnntakcrfið og minnka atvinnuleysið vcrulcga. vegna hruns atvinnugreina en sú þróun var reyndar ekki bara bresku ríkisstjórninni að kenna. Það sama var að gerast um allan heim. Breytingar eru eitt af lögmálum lífs- ins og við erum nú stödd á miklum breyt- ingatímum sem oft er nefnt hnattvæðing. Heimurinn er að skreppa saman vegna gíf- urlegrar samþjöppunar fjármagns og ótrú- lega hraðrar tækniþróunar. Við getum ekki snúið tímanum við né neitað að horfast í augu við það sem hefur gerst. En það er hægt að koma á breytingum. Ástandið í Bretlandi er betra núna held- því 1966. Glenda hefur átt sæti í fjölda mikilvægra nefnda og lagt megináherslu á þróunarhjálp, húsnæðismál og samgöngur en einnig á velferðarmál, umhverfismál og jafnréttismál. Þegar Verkamannaflokkurinn tók við völdum árið 1997 varð hún aðstoð- ar samgöngumálaráðherra með ábyrgð á samgöngum í London, flugi, siglingum og járnbrautum. Hún sagði því starfi lausu í júlí 1999 þegar hún sóttist eftir því að verða borgarstjóraefni í London fyrir Verkamannaflokkinn, m.a. vegna þess að henni fannst ófært annað en að kona að geta haldið völdum. íhaldsflokkurinn hefur verið ótrúlega lélegur í stjórnarand- stöðu, eins og hann kunni ekki að vera ábyrgur minnihluti. Þess vegna hefur myndast ákveðið tómarúm og virkasta stjórnarandstaðan verið í eigin flokki. Það er oft auðveldara að gagnrýna eigin ríkis- stjórn heldur en annarra. Mikilvægasti árangur okkar, að mínu mati, er að okkur hefur tekist að snúa frá því viðhorfi að manneskjan sé einskis met- in, en það viðhorf festist í sessi á tímum Thatchers. Okkur hefur líka tekist að beina 22 • VERA

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.