Vera - 01.06.2000, Síða 40
A N D B E A.
J Q N S D Q I I I&
S K B.
E
A
Þrjár Nínur Bjarkir
í fyrra fékk ég senda kilju í umslagi sem var með póststimpli Keflavikur.
Sendanda láðist að geta nafns sins, þanmg að mér er enn hulin ráðgáta
hver sendi mér Under det rosa tácket eftir sænsku blaðakonuna og
femínistaspekúlantinn Ninu Björk, sem ég vissi hvorki haus né sporð á...
svona erum við í poppinu illa að okkur... ég hélt auðvitað að hér væri
komin sænsk þýðing á verki eftir okkar nú nýlátna skáld og rithöfund. Við
nánari athugun kom í Ijós að svo gat ekki verið, þannig að beinast lá við
að spyrja Dagnýju Krístjáns um þessa konu með þetta islenska nafn, og
í stuttu máli fékk ég þær upplýsingar að þessi sænska Nina Björk væri
,,kúlasti“ nútímafeminístinn i Skandinavíu... eða a.m.k. í Sviþjóð. En það
er ekki hún sem ég ætla að skrifa um hér, heldur ein enn Nína Björkin.
Elíasson er hin síðast nefnda
Nína Björk, fædd og uppalin
á íslandi, fór 1968 til Dan-
merkur í framhaldsnám í
tónlist við Det rytmiske
musikkonservatorium, en hér
heima hafði hún verið í
píanónámi. Nína Björk Elías-
son hefur verið tónlistar-
kennari í mörg ár í Dan-
mörku, aðallega í raddbeit-
ingu og líka talkennslu, en hefur meðfram verið að semja lög og
flytja þau með fáeinum félögum á ýmsum kúltúrstöðum. Tónlist
hennar er einskonar blanda af þjóðlaga-, vísna- og kabarethefð,
djassi og poppi; norræn heimstónlist er hún nefnd á upplýsinga-
blaði sem fylgdi geisladiski hljómsveitar Nínu Bjarkar sem kom út
í fyrra.
Klakki heitir hljómsveitin og er búin að vera starfandi í sjö ár;
fyrsti (fyrri...) geisladiskurinn, Sortner du sky kom út 1995 og fékk
flna dóma í Skandinavíu og Mogganum; inniheldur lög við ljóð
danskra og íslenskra skálda; sá nýi nefnist I kjól úr vatni sem er
hending úr Fæðingu máfsins eftir Sjón en öll ljóðin á þessum diski
eru eftir íslenska höfunda: Sjón á eitt í tvennu lagi, Steinunn Sig-
urðardóttir á tvö, Sigurður Pálsson þrjú, Linda
Vilhjálmsdóttir fjögur og Nína Björk Árnadótt-
ir fimm. Nína Björk Elíasson samdi tíu laganna
við ljóðin, Hasse Poulsen gítarleikari fimm og
ásláttarleikarinn Martin Berghöj eitt. Þeir hafa
verið í Klakka frá upphafi... a.m.k. Hasse, en
nýrri liðsmaður er Olav Gudnason kontrabassa-
leikari, fæddur og uppalinn í Danmörku en er
íslenskur í móðurætt. Tveir gestaleikarar eru á
disknum, víbrafónleikarinn Thomas Sandberg og
Norðmaðurinn Iver Kleive, frábær við kirkjuorgelið, en diskurinn
er að mestu hljóðritaður í Havnelev-kirkju á þrem dögum fyrir
tveim árum. Þetta er svakalega vel spilandi fólk og örugglega gam-
an að vera á hljómleikum hjá því þar sem mann grunar að spuninn
vefjist ekki fyrir því: beint á Jómfrúna með Klakka eða/og á Næsta
bar, þar sem ég hitti Nínu Björk Elíasson (NBE) í vor, eftir ábend-
ingu frá Jensi Kr. Guð... ég hafði nefnilega ekki hugmynd um til-
vist hennar frekar en hinnar sænsku nöfnu hennar.
NBE hefur sinnt meiru en tónlistinni á sinni ævi; á þrjár dætur og
sú elsta, Sigrún Guðbrandsdóttir, hannaði bráðflottar umbúðirnar
um I kjól úr vatni; allar eru þær í tónlist og þær eldri, Sigrún og
Hanna, hafa báðar verið í hljómsveitum.
Nína Björk segist ekki alltaf syngja texta heldur nota röddina
sem hljóðfæri og hún treður stundum upp með einum hljóðfæra-
leikara. Á döfinni hjá henni er að músisera með klassískt mennt-
uðum konum og semja fyrir píanó, flautu og selló... Ekki segist
hún hlusta mikið á heimstónlist, hins vegar t.d. konur eins og
Björk og færeysku söng- og leikkonuna Anniku Höjdal sem býr í
Danmörku. Annars er NBE lítillætið uppmálað í sambandi við eig-
inn feril, vill greinilega láta tónlistina tala; I kjól úr vatni á að vera
hægt að ná í hjá Japis eða á netinu hjá færeyska útgáfufyrirtækinu
Tutl sem tónlistarmaðurinn Kristian Blak rekur (minnir mig):
tutl@post.olivant.fo
Öll ljóðin á I kjól úr vatni fylgja með í
diskbæklingi og ekki bara á frummálinu
heldur í dönskum og enskum þýðingum
Mette Famö og Sverris Hólmarssonar. Þessi
útgáfa öll er virkilega listræn hvar sem á
hana er litið og ef einhver er svo smekkleg-
ur að vilja fá Nínu Björk og félaga til lands-
ins er bókunarsíminn: 00 45 39 643 626.
40 • VERA