Akranes - 01.04.1958, Blaðsíða 28

Akranes - 01.04.1958, Blaðsíða 28
og gott sé rifið niður ásamt því gamla og úrelta. Þegar frá líður og bardagahitinn rénar fara menn aftur að kunna að meta það sem gamalt er og gott, hvaða stefnu sem það telst til. Annars hafði rómantik- in aldrei farið hér út í svipaðar öfgar og í nágrannalöndunum, enda verður ekki séð annað en að eldri skáldin nytu fullr- ar viðurkenningar hjá sumum Verðandi- mönnunum að minnsta kosti*), þótt þeir teldu nauðsyn á að ný stefna væri hafin og hætt að feta eingöngu hinar gömlu brautir. Verðandi byrjaði með kafla úr Brandi, hinu fræga leikriti Ibsens. Þá komu tvær frumsamdar sögur, sin eftir hvorn þeirra Einar og Gest, fyrstu sögurnar sem sáust eftir þá. Saga Einars hét „Upp og niður“, segir hún frá læknaskólastúdent sem varð fyrir vonbrigðum i ástamálum, lagðist út af því í óreglu, hætti við læknisfræðina og fór á prestaskólann, vígðist svo til prests trúlaus og með lamaðan siðferðisþrótt. Eg *) Sérstaklega var H. Hafstein þegar á þeim árum skyggn á kosti eldri skáldanna, sem sjá má meðal annars á kvæði hans til Matthiasar 1883, og Jónasar Hallgrímssonar og Bólu-Hjálmars. Gesti Pálssyni hætti aftur á móti við að gjöra æði litið úr eldri skáldunum. Áttu þeir Benedikt Gröndal ritdeilu um „Realismus og idealismus" í Isafold 1883, en kurteisleg var hún yfirleitt einkum frá Gests hálfu. Gestur reit og fremur harðan ritdóm um kvæði Matthiasar, er komu út 1884 og orti Hatthias út af þvi kvæði til Gests Pálssonar, sem að vísu er laust við skáldskap, en sýnir allvel hvemig margir litu hér þó á hina nýju stefnu. Þar gerir hann t. d. Gesti þannig upp oiðin: Húmhúg er himinn, homo api, sálin fosfór, sæla draumur; frelsi flónska, fiðrildi er ást, guð tóm grýla; Gestur er einn. 9Ú hef heyrt, að Einari þyki nú litið koma lil þessarar frumsmíðar sinnar, en ég efasl um að hann hafi nokkum tima síðar kom- izt jafn langt og á köflum í þeirri sögu. Þar er skörp ádeila á hræsni og yfirdreps- skap í opinberu lifi og prívatlífinu, sem hitti miklu betur þá en ádeilurnar í seinni sögum hans nú. Til dæmis má taka atvik- ið þegar söguhetjan er að halda ræðuna fyrir minni embættismannsins frjáls- lynda. Þar er sálarlífi sögupersónanna lýst vel og skiljanlega, og þær standa manni miklu Ijósar fyrir augum en flestar siðari sögupersónur Einars, sem margar eru æði þokukenndar. Þar er góð lýsing á Reykjavíkurlífinu um 1880, og gamli erfidrykkjuósiðurinn í sveitinni er sýnd- ur skýrt i sinni lökustu mynd, þó lesarinn sé ekki leiddur í stofuna fyrr en daginn eftir að drykkjan fór þar fram. Ekki er heldur neinn viðvaningsbragur á sögu Gests, „Kærleiksheimilið“. Hún er vægð- arlaus ádeila út af harðýðgi mannfélags- Gestur orti aftur þessa stælingu á háfleygi Matthíasar; Ég standa vil á háum Heklutind, og horfu þaðan on’ á skýjalind, og fyrirlita flónska pólitik og fróa mér við himinljósin rik, sem una sér um uppheims hlómaveg og enginn þekkir nema guð og ég. Mun Gestur hér liafa þótzt sýna góða mynd af þeim skáldskap, sem hann vildi feigan, skóldskapn- um, sem hélt sig langt fyrir utan og ofan lifið. Einar Hjörleifsson hélt 1885 að mig minnir fyrir- lestur í Winnipeg um islenzkan skáldskap eftir 1850 og gjörði }>ar fremur lítið úr eldri skáldun- um, og yfir höfuð var hann um þessar mundir einna ósanngjarnastur þeirra félaga við allt, sem ekki var eftir nótum nýju stefnunnar. Þannig tel- ur hann í formála fyrir kvæðum B. Thorarensens, sem hann gaf út 1883, að visan „Hver vann hér svo að með orku“, stórspilli hinu fagra kvæði Jónasar um Fjallið Skjaldbreið, bara af því að skáldið lætur þar í ljósi þó trú sina, að Guð hafi stýrt þeim náttúruumbrotum er lýst er i kvæðinu. A K R A N E S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.