Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Side 5
4. Þyri Lovísa Karólína Amalía AgÚ6ta Elisabet, fædd 14. marz 1880.
§. Kristján Friðrekur Vilhjálmur Valdemar Gústav, fardJur 4. marz 1887.
4. Dagmar Lovísa Elísabet, fædd 23. maí 1890, gift 23. nóv. 1922 Hof-
jægermester Kammerjunker Jörgen Karl Gustav Castenskiold á Kong-
stedlund, fæddum 30. nóv. 1893.
Samkvæmt lögum um ákvörðun tímans 16. nóv. 1907, skal hvarvetna á
Islandi telja tímann eftir miðtíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan Greenwich.
/ almanaki þessu eru því allar stundir taldar eftir þessum svonefnda íslenzka
miðtíma, 27 mínútum 43,2 sekúndum á undan miðtíma Reykjavíkur.
í þessu almanaki er sú breyting gerð frá fyrri almanökum, að tími er alls-
staðar reiknaður í klukkustundum og mínútum frá síðast liðnu miðnætti. Sólar-
hringurinn byrjar á miðnætti (0 00) og endar á næsta miðnætti (24 00). Mið-
nætti milli 15. og 16. ágúst verður þá annaðhvort 15. ágúst 24 00, eða 16. ágúst
0 00. Sú stund sólarhrings, sem áður var kölluð kl. 12 35 f. m., heitir nú aðeins
0 35, en sú stund, sem áður var kölluð kl. 5 13 e. m., heitir nú 17 13. Frekari
skýring ætti að vera óþörf, þar sem flestum mun þessi tímareikningur kunnur
úr útvarpinu.
Með lögum nr. 8, 16. febr. 1917, er ríkisstjórninni heimilað að flýta klukk-
unni, ef það þykir henta (»sumartími«), og verður, ef það er gert, að sjálfsögðu
að taka tillit til þess við notkun almanaksins.
(3)