Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Blaðsíða 45
skammti af lungnabólgusýklum, en gat bjargað þeim
með þessu lyfi. Síðan var það reynt á mönnum með
lungnabólgu, og árangurinn var ágætur.
Sérstakir sýklar valda jafnan taklungnabólgu, og
reyndist lyfið mjög vel gegn þeim. En fjölmargir
sýklar aðrir geta valdið bólgu í lungum, einkum
svo nefndri blettalungnabólgu, og er lyf þetta oft á-
brifalaust á slika sýkla.
Whitby birti rannsóknir sínar í mai 1938, og síðan
hefur hver skýrslan rekið aðra um gagnsemi lyfsins.
Það hefur reynzt vel við ýmsum kvillum, er þessi
ákveðni lungnabólgusýkill veldur, en einnig við lek-
anda, jafnvel þar, sem sulfanilamid hefur brugðizt.
Þá hefur það reynzt öllum lyfjum betur við heila-
himnubólgu, sem getur gengið sem skæð farsótt.
Árið 1939 reyndu þrír enskir læknar lyfið við
þessari veiki suður i Súdan. Hún hafði gengið þar
árlega um skeið, og nálega 80% þeirra, er tóku veik-
ina, dóu. Farsóttin 1939 fór illa af stað og virtist
mjög skæð. Læknarnir höfðu ögn af sulfanilamid í
fórum sínum, en töluverðar birgðir af lungnabólgu-
meðalinu, og ákváðu þeir að reyna það, því að góð
ráð voru dýr.
En nú vandaðist málið. íbúar Súdan vissu af
reynslu liðinna ára, að ekkert gagn var í lyfjum
læknanna við þessari veiki, og þeir kusu fremur að
leita sinna eigin særinga- og töframanna. Þá hug-
kvæmdist læknunum að leita samvinnu við þessa
,,starfsbræður“ sína, en þeir vildu engu lofa um lið-
sinni í því að hvetja fólkið til að taka inn lyfið. Þeir
óku í bifreið sinni frá einum til annars, en sneru
siðan við. Þeir urðu forviða, er þeir sáu, að nú höfðu
sjúklingarnir verið fluttir út að veginum úr ýmsum
áttum, til þess að leita hjálpar þeirra. Særinga-
inennirnir sáu sér leik á borði. Þeir sögðu sjúkling-
unum, að ensku læknarnir hefðu í fórum sínuro
(43)