Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Page 62
eink. 9.16. Úr Menntaskólanum á Akureyri útskrif-
uðust 36 stúdentar. Hæsta einkunn lilaut ASalsteinn
Sigurðsson, I. eink. 7.36 (eftir Örsteds einkunnastiga).
Þeir Guðmundur Hannesson prófessor og sr. Bjarni
Jónsson vígslubiskup voru kjörnir heiðursdoktorar
við Háskóla íslands. Óskar Þórðarson læknir varði
við Kaupmannahafnarliáskóla doktorsritgerð um
rannsóknir á blóðstorknunarefni. Kaupmannaliafnar-
háskóli tók ritgerð eftir Jóhannes Björnsson lækni
um æðakölkun gilda sem doktorsritgerð. Enn fremur
tók Khafnarháskóli ritgerð eftir Óla P. Hjaltested
lækni um berklarannsóknir gilda sem doktorsritgerð.
Sveinn Bergsveinsson cand. mag. varði við Kaup-
mannahafnarháskóla doktorsritgerð um áherzlur í ís-
lenzku. Nokkrir íslendingar munu hafa lokið em-
bættisprófum við erlenda háskóla, en nægar upplýs-
ingar eru ekki fyrir hendi.
Siglingar. Samgöngur voru nær eingöngu við Bret-
land og Bandaríkin. Miklar hættur voru á þessum
siglingaleiðum, og um skeið tók nær alveg fyrir sigl-
ingar íslenzkra skipa til Bretlands. Strandferðir voru
með svipuðum hætti og áður. íslenzk skip unnu nokk-
uð að eyðingu tundurdufla.
Skiptjón urðu með allra mesta móti á árinu. Hlut-
ust allmörg þeirra af styrjaldarorsökum. Drukknuðu
alls rúmlega 140 manns á árinu (að meðtöldum þeim,
er fórust í ám og vötnum). Mestu sjóslysin voru
þessi: í febrúarlok fórst togarinn „Gullfoss“ við ís-
land með 19 mönnum. Hinn 10. marz var togaranum
„Reykjaborg" sökkt af kafbáti milli íslands og Bret-
lands, og fórust þar 13 menn, en tveimur var bjarg-
að. í marzmánuði fórst línuveiðarinn „Pétursey" með
10 mönnum milli Bretlands og íslands. Hinn 29. júni
var flutningaskipinu „Heklu“ sökkt með tundurskeyti
milli íslands og Ameríku. Fórust þar 14 menn, en
fáeinir björguðust. í september fórst línuveiöarinn
(60)